Morgunblaðið - 30.11.2019, Side 1
L A U G A R D A G U R 3 0. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 282. tölublað 107. árgangur
HVETJA FÓLK
TIL AÐ LEGGJA
HÖND Á PERLU
ÁMUNDI OG
KIRKJURNAR
ÞRETTÁN
NÝ VERK GUÐRÚNAR 51ARMBÖND KRAFTS 12
Hver tími ársins hefur heillandi svip og litbrigði jarðar fylgja
birtunni. Nú erum við á norðurhjaranum að sigla inn í allra
svartasta skammdegið svo sólar nýtur aðeins brot úr degi. Á
þeim skamma tíma dragast þó margar fallegar myndir upp á
himinhvolfið eins og sjá mátti í Örfirisey síðla dags nú í vik-
unni. Harpa og háhýsin við Skúlagötuna settu sterkan svip á
umhverfið og ljósvitinn við hafnarmynnið sendi geisla sína til
sjófarenda með sínum taktföstu slögum. Ágætlega mun viðra
til útiveru í dag, en hálkuskæni liggur víða á láglendi svo
gangandi fólk þarf að sýna varkárni. Þegar komið er fram
yfir helgina má svo búast við hlýindum víðast hvar á landinu
og hiti verður víða 5-7 gráður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litrík veröld í svartasta skammdeginu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir til skoðunar að boðuð hlut-
deildarlán muni bjóðast fjölskyldum
sem misstu húsnæði í hruninu.
Með því munu lánin ekki eingöngu
bjóðast þeim sem eru að kaupa sína
fyrstu fasteign. Það gæti aftur haft
mikil áhrif á fasteignamarkaðinn.
Ragnar Þór situr í starfshópi með
ráðherra en fundað var um tillögurn-
ar í fjármálaráðuneytinu í gær. Unn-
ið er að kostnaðarmati.
Að hans sögn þarf mögulega að
endurskoða lögin svo kröfuhafar geti
ekki gert fjárnám í eignum sem
keyptar eru að hluta með eiginfjár-
lánum. Með þeim eignast ríkið hlut í
íbúð sem eykur kaupgetu lántakans.
Frá miðju næsta ári
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, sagði við
Morgunblaðið að hann teldi raun-
hæft að hlutdeildarlánin yrðu í boði
frá miðju næsta ári. Það væri hvorki
búið að ákveða hámarksfjárhæð lána
né hvort þau stæðu aðeins til boða ef
um nýbyggingar væri að ræða.
Fjöldi fjölskyldna missti húsnæði
sitt í kjölfar efnahagshrunsins. Með
leiðréttingunni 2014 var reynt að
bæta tjón almennings af verðbólgu-
skotinu sem fylgdi í kjölfarið. Með
hlutdeildarlánum er gengið lengra í
að bæta upp þetta tjón.
Spurður hvort hann telji að með
þessum aðgerðum hafi tjón þeirra
sem misstu eignir í hruninu verið
bætt segist Ásmundur Einar efins.
„Ég veit ekki hvort þeim einstak-
lingum sem misstu eignir sínar í
hruninu verði nokkurn tímann bætt-
ur sá skaði sem það hefur valdið fjöl-
skyldum þeirra. Það er erfitt fyrir þá
sem ekki þekkja að setja sig í þeirra
spor. Hins vegar tel ég að aðgerð-
irnar sem við erum að ráðast í eigi til
lengri tíma litið að geta tryggt auk-
inn stöðugleika á húsnæðismarkaði.
Þær ættu að gera öllum kleift að
geta valið sér húsnæði, hvort sem er
á leigumarkaði eða eigin húsnæði,
óháð efnahags- og þjóðfélagsstöðu.“
Sala fyrir tugi milljarða
Pálmar Harðarson, framkvæmda-
stjóri Þingvangs, segir að ef hlut-
deildarlánin verða veitt til íbúða sem
þegar hafa verið byggðar muni það
geta örvað íbúðamarkaðinn.
Samkvæmt talningu Morgun-
blaðsins hafa að minnsta kosti 730
íbúðir selst á miðborgarreitum, á
Hlíðarenda og í Efstaleiti á síðustu
tveimur árum. Ætla má að söluverð-
mætið sé 35-40 milljarðar króna. Sal-
an jókst í miðbænum í haust.
Fjölskyldur sem misstu
íbúðir fái lán frá ríkinu
Formaður VR segir hlutdeildarlán bæta tjón af hruninu
Morgunblaðið/Eggert
Brynjureitur Lánin gætu mögulega nýst til kaupa á miðborgaríbúðum.
MSeldu 80 miðborgaríbúðir … »16
Nýtt eiturlyf,
Spice, tröllríður
nú fangelsunum,
enda er afar erf-
itt að finna það á
gestum eða í
vörum sem koma
inn í fangelsin.
„Ég áætla að í
lokuðu fangels-
unum séu 90%
fanga í virkri fíkn,“ segir Páll Wink-
el, forstjóri Fangelsismálastofn-
unar. Hann segir nauðsynlegt að
bregðast við vandanum með því að
draga úr eftirspurn með betri með-
ferðum fyrir fanga sem glíma við
fíkn.
„Við erum með fíkniefnahund og
mjög öflugt starfsfólk sem leitar á
öllum og í þessu öllu saman, en þeg-
ar komið er efni sem er lyktarlaust,
og þar sem eitt gramm verður að
hundrað skömmtum, þá geturðu
ímyndað þér hvað það er erfitt að
koma í veg fyrir svona sendingar.
Við vitum hvaða fangar eru að
dreifa fíkniefnum innan fangelsanna
en efnin koma hins vegar ekki inn
með heimsóknargestum þeirra.
Þvert á móti eru það heimsóknar-
gestir lágt settra fanga sem eru
þvingaðir til að koma með efni inn í
fangelsin,“ segir Páll í viðtali í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
um helgina.
Spice í
fangelsum
landsins
Páll Winkel
Einar Örn Ang-
antýsson varð
vitni að atburða-
rásinni við Lond-
on Bridge í gær
þegar tveir al-
mennir borgarar
létust og margir
særðust eftir
stunguárás. Lög-
reglan skaut
árásarmanninn
til bana og hafa yfirvöld lýst því yf-
ir að ódæðið hafi verið hryðjuverk.
Einar sagðist hafa orðið var við
óróleika á brúnni. „Þá heyrðust
tveir hvellir, sem við héldum í
fyrstu að væru flugeldar. Svo
fylgdu fleiri skothvellir í kjölfarið
og fyrr en varði var fjöldi lögreglu-
bifreiða kominn á staðinn,“ sagði
hann í viðtali við mbl.is í gær. Upp-
taka sem Einar birti á Twitter af
fólki að flýja af brúnni fór víða og
tóku alþjóðlegir miðlar viðtöl við
hann.
Þrír særðir í Hollandi
Önnur hnífaárás var gerð í hol-
lensku borginni Haag í gærkvöld.
Þrír særðust í árásinni sem átti sér
stað á verslunargötunni Grote
Margstraat, skammt frá þinghús-
inu. Samkvæmt fréttum hollenskra
fjölmiðla í gærkvöld var ekki talið
að um hryðjuverk væri að ræða.
Árásarmaðurinn er sagður vera á
fimmtugsaldri. »24
Fylgdist með
atburðunum
í London
Einar Örn
Angantýsson