Morgunblaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Stofnfundur
Félags sjálfstæðismanna um
fullveldismál verður haldinn í Valhöll
við Háaleitisbraut 1. desember 2019
Frjáls þjóð í frjálsu landi
Dagskrá:
1. Fundur settur kl. 14:00
2. Kynning á félaginu
3. Samþykktir bornar undir atkvæði
4. Hátíðarávörp
Að loknum stofnfundi verður aðventu-
kaffi með hugvekju og tónlist.
Húsið opnað kl. 13:30.
Allir velkomnir
á meðan húsrúm leyfir.
Undirbúningsnefnd
Nemendur og starfsfólk Tálkna-
fjarðarskóla héldu upp á 50 ára af-
mæli skólans í vikunni. Raunar kom
á daginn að skólinn er orðinn 51 árs
en það breytti því ekki að hátíðin
tókst vel. Fjöldi bæjarbúa sam-
gladdist skólafólkinu.
„Eftir að ég tók við sem skóla-
stjóri fór ég aðeins að grúska í sögu
skólans og sá að hann tók til starfa á
árinu 1968. Skólahald hér er raunar
miklu eldra. Við ákváðum að halda
upp á fimmtíu ára afmælið í ár. Það
er alltaf tilefni til að fagna góðum
áföngum,“ segir Birna Friðbjört S.
Hannesdóttir, skólastjóri Tálkna-
fjarðarskóla, í samtali við Morgun-
blaðið, en hún tók við starfinu síðast-
liðið vor.
Mikið unnið saman
47 nemendur eru í Tálknafjarð-
arskóla sem er bæði leik- og grunn-
skóli og börnin eru á aldrinum frá
eins árs til fimmtán ára. Kennsla fer
öll fram í sömu byggingunni. Birna
segir að vegna fámennis í árgöngum
sé mikil samkennsla í grunnskól-
anum og flæði á milli skólastiga.
„Við vinnum mikið að samþættum
verkefnum. Mér finnst það mikill
kostur,“ segir Birna spurð hvernig
gangi að reka svo fámennan skóla.
„Mér finnst gott að vera hér, gott
starfsfólk og nemendur og gott sam-
félag. Það sýnir sig í því hversu
margir mættu í gær. Við buðum
eldri borgurum sérstaklega og
þarna voru sagðar ýmsar sögur úr
starfsemi skólans,“ segir Birna en
inn í afmælishátíðina var fléttað dag-
skrá í tilefni af degi íslenskrar tungu
sem var á dögunum. helgi@mbl.is
50 ára afmælis
skólans minnst á
51 árs afmælinu
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Skólastjóri Birna segir að unnið sé
í anda heilsueflandi grunnskóla.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Skipulag byggðar í Vífilsstaða-
landi í Garðabæ hefur smátt og
smátt tekið á sig mynd á teikni-
borðum og í tölvum hönnuða.
Landinu er skipt í nokkra áfanga
og í Vetrarmýri meðfram Reykja-
nesbrautinni er gert ráð fyrir 6-
700 íbúðum og allt að 40 þúsund
fermetrum í atvinnuhúsnæði.
Framkvæmdir eru hafnar við
stórt fjölnota íþróttahús í Vetrar-
mýri en einnig er gert ráð fyrir
knattspyrnuleikvangi þar, stóru
húsi fyrir körfubolta og handbolta
og á fjórða reitnum fyrir íþrótta-
mannvirki gæti til dæmis komið
sundlaug eða skautahöll.
Vel tengt stofnbrautum
Sigurður Einarsson, arkitekt
hjá Batteríinu, segir að svæðið í
Vetrarmýri sé mjög spennandi.
Það sé miðsvæðis og í góðum
tengslum við stofnbrautir. Gert er
ráð fyrir allt að fimm hæða húsum
fyrir fyrirtæki og íbúðir auk
íþróttamannvirkja til framtíðar.
Í norðurhluta Hnoðraholts er
gert ráð fyrir um 400 íbúðum í
Hnoðraholti norður. Svæði í kring-
um Vífilsstaði og í Hnoðraholti
suður er skemmra á veg komið.
Í framkvæmdasamkeppni um
rammaskipulag Vífilsstaðalands í
Garðabæ fyrir um tveimur árum
bar tillaga Arkitektastofunnar
Batterísins, landslagsarkitekta-
stofunnar Landslags og Verk-
fræðistofunnar Eflu sigur úr být-
um. Skipulagsnefnd Garðabæjar
hefur samþykkt að fara með áætl-
anir þeirra um uppbyggingu á
svæðinu í forkynningu og verður
íbúafundur haldinn í Garðabæ 10.
desember.
Ramma- og deiliskipulag
Samkvæmt aðalskipulagi sem
tók gildi fyrir rúmu ári er kveðið
á um að skipulag á svæðinu þurfi
að vinna ítarlegar heldur en gert
var í aðalskipulagi. Því hafi verið
unnið að rammaskipulagi samhliða
deiliskipulagi á hluta þess. Deili-
skipulag er ekki hægt að staðfesta
nema rammahlutinn sé einnig
staðfestur.
Nú liggja tillögur að ramma-
skipulagi fyrir og deiliskipulags-
áætlun fyrir Vetrarmýri, Hnoðra-
holt norður og svæði efst á
Smalaholti eða Rjúpnahlíð þar
sem m.a. gert er ráð fyrir með-
ferðarstofnun fyrir unglinga og
kirkjugarði. Önnur svæði í skipu-
laginu eru m.a. Hnoðraholt suður,
svæði beggja vegna Vífilsstaða og
breyting á legu golfvallarins í átt
að skógræktinni
Spennandi svæði í Vetrarmýri
Skipulag í Vífilsstaðalandi að taka á sig mynd Forkynning og íbúafundur
Tölvumyndir/Batteríið.
Framtíðin Í Vetrarmýri verður blönduð byggð atvinnu- og íbúðarhúsnæðis og fjölbreytt aðstaða til íþróttaiðkunar.
Hnoðraholt norður Ný byggð rís beggja vegna hverfisins sem fyrir er í Hnoðraholti í Garðabæ.
Starfandi útvarpsstjóri telur að
ákvæði upplýsingalaga um að opin-
berum aðilum sé skylt að birta nöfn
umsækjenda þegar umsóknarfrest-
ur er liðinn eigi ekki við Ríkisútvarp-
ið. Stjórn RÚV hefur í því ljósi og
eftir ráðleggingum Capacent ákveð-
ið að birta ekki nöfnin. Kæra fjölmið-
ils vegna þessa er til umfjöllunar hjá
úrskurðarnefnd upplýsingamála.
Stjórn Ríkisútvarpsins ræður út-
varpsstjóra. Umsóknarfrestur renn-
ur út næstkomandi mánudag, 2. des-
ember. Stjórnin hefur leitað til
ráðningarþjónustu Capcent um að-
stoð við ráðninguna. Kári Jónasson,
formaður stjórnar, segir að Capa-
cent hafi hvatt stjórnina eindregið til
að birta ekki lista yfir umsækjendur.
Með því móti fengjust fleiri umsókn-
ir. „Við tókum mark á því.“
Ríkisútvarpið er opinbert hluta-
félag. Upplýsingalögin taka yfir alla
starfsemi lögaðila sem eru í meiri-
hlutaeigu hins opinbera. Tiltekið er
að veita skuli upplýsingar um nöfn
og starfsheiti umsækjenda um starf
hjá hinu opinbera, þegar umsóknar-
frestur er liðinn. Síðar segir að með
sama hætti beri að veita almenningi
upplýsingar um atriði er varða
starfsmenn lögaðila sem falla undir
lögin en umsækjendur ekki tilteknir.
Margrét Magnúsdóttir, starfandi
útvarpsstjóri, telur að samkvæmt
þessu sé heimilt að synja um birt-
ingu þessara upplýsinga.
Hún vekur athygli á því að ákvörð-
un stjórnar hafi verið kærð til úr-
skurðarnefndar og gerir ráð fyrir að
úrskurðað verði fljótt í málinu.
Morgunblaðið/Eggert
Efstaleiti Starfsemi Ríkisútvarps-
ins fellur undir upplýsingalög.
Telur ekki
skylt að
birta nöfnin
Úrskurðarnefnd
fjallar um málið