Morgunblaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fram kom í máli Dags B. Eggerts-
sonar borgarstjóra á borgarafundi
um loftslagsmál hjá RÚV um daginn
að hlutfall hjólreiða í samgöngum í
borginni hefði aukist í 7%. Það væri
mikil aukning á fáum árum.
Talan var sótt í ferðavenjukönnun
Gallup sem framkvæmd var í
október til nóvember 2017. Til sam-
anburðar var hlutfallið innan við 1%
í sömu könnun 2002, 5% árið 2011 og
6% árið 2014. Það jókst því um 1% í
borginni milli ferðavenjukannana
árin 2014 og 2017.
Hrafnkell Á. Proppé, svæðis-
skipulagsstjóri Samtaka sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH),
segir aðspurður þetta vera mark-
tæka aukningu á hlutfalli hjólreiða í
samgöngum.
Mikill munur frá fyrri árum
„Það má sjá fleiri hjólandi en fyrir
fimm árum. Ég hef hjólað reglulega
frá því ég kom frá Danmörku 2008
og finn mikinn mun. Það er góð sam-
svörun milli tilfinningarinnar og
þessara niðurstaðna,“ sagði Hrafn-
kell um þróunina síðustu ár.
Á höfuðborgarsvæðinu öllu var
hlutfallið innan við 1% í könnuninni
2002, 4% í könnunum 2011 og 2014
og 6% í síðustu könnun 2017. Hlut-
fallið er því hærra í Reykjavík en á
höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Hrafnkels var ferða-
venjukönnunin ekki gerð í fyrra.
Hins vegar sé nú unnið að könnun
fyrir 2019 sem birt verði öðrum
hvorum megin við áramótin.
Hann segir þéttleika byggðar
geta haft áhrif á hlutfall hjólreiða.
Þá kunni þétting byggðar, til dæmis
í Reykjavík, að auka hlutfall hjól-
reiða. Þá sé búsetan enda nær
þungamiðju starfanna.
Tímabilið hefur áhrif
Hrafnkell segir aðspurður það
geta haft áhrif á niðurstöður könn-
unarinnar hvenær hún er gerð.
„Yfirleitt er reynt að framkvæma
könnunina að vetri til en þó ekki í
svartasta skammdeginu. Við getum
kannski sagt að febrúar og október/
nóvember séu nokkurn veginn sam-
bærilegir upp á það að gera. Það
tíðkast að velja tíma þegar ekki er
hávetur, þ.e. langt liðið á haust eða á
veturinn. Þá er allt í gangi. Skólar
eru starfandi. Fríin eru ekki byrjuð.
Þannig er reynt að velja „venjulega“
mánuði þar sem aðstæður eru
hvorki þær bestu né verstu. Best er
að hafa samfellu. Frá 2011 hafa
menn framkvæmt könnunina í októ-
ber og nóvember,“ segir Hrafnkell. Í
samgöngusáttmálanum er gert ráð
fyrir 8,5 milljarða fjárfestingu í hjól-
reiðastígum og innviðum fyrir hjól-
reiðafólk til 2035. Sáttmálinn nær til
höfuðborgarsvæðisins.
Hlutfallið fari í 30%
Hrafnkell segir 6 milljarða renna
til hjólreiðastíga. Afgangurinn muni
fara í undirgöng og göngubrýr.
„Sveitarfélögin hafa stefnt á að
hlutfall gangandi og hjólandi fari úr
20% í 30% á þessu tímabili,“ segir
Hrafnkell og vísar til gildistíma sátt-
málans sem rennur út 2035. Hlut-
fallið mældist þannig 20% í síðustu
könnun á höfuðborgarsvæðinu.
Hlutur gangandi var 14% en hlutur
hjólandi 6%. Hann segir markmiðið
hafa verið sett fram fyrir þessa
flokka saman. Það hafi ekki verið
sundurliðað milli gangandi og hjól-
andi. Hlutfall hjólandi árið 2035 hafi
þannig ekki verið fastsett sem opin-
bert markmið. Hins vegar hafi sveit-
arfélögin sín eigin markmið.
Hrafnkell segir aðspurður aug-
ljóst að loftslagsmálin hvíli þungt á
fólki, ekki síst ungu fólki.
Hlutfall hjólandi jókst um 1%
Svæðisskipulagsstjóri SSH telur marktæka aukningu hafa orðið í hjólreiðum
Markmið um hlutfall hjólandi 2035 ekki verið fastsett Jókst um 1% 2014-17
Morgunblaðið/Hari
Hjólað úr vinnu Hjólastígar hafa verið byggðir upp víða á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum.
Með hvaða hætti ferðaðist þú í dag?
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Sem bílstjóri Sem farþegi
í einkabíl
Fótgangandi Á reiðhjóli Með strætis-
vagni
Annað
58
61 60 61
17
15 15 15
20
15 15 14
0
4 4
6
4 4 4 4
1 1 1 1
Febrúar 2002
Okt.-des. 2011
Okt.-nóv. 2014
Október 2017
Hvað af eftirtöldu á best við
um þig og hjólreiðar?
Hjóla aldrei
Hjóla hluta úr ári
Hjóla allt árið
um kring 12%
10%
10%
47%
43%
48%
41%
49%
39%
Ferðavenjukönnun Gallups á höfuðborgarsvæðinu haustið 2017*
*Unnið fyrir Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðina
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Ljósin á Hamborgartrénu verða
tendruð kl. 17.00 í dag, laugardag-
inn 30. nóvember, en tréð er stað-
sett á Miðbakka Reykjavíkur-
hafnar. Góðir vinir frá Hamborg
senda jólatréð til Reykjavíkur-
hafnar eins og þeir hafa gert árlega
frá árinu 1965.
Við athöfnina flytur fulltrúi frá
Hamborg stutt ávarp og Skúli Þór
Helgason, formaður Faxaflóahafna
sf., þakkar fyrir jólatréð. Dietrich
Becker, sendiherra Þýskalands á Ís-
landi, ávarpar gesti við tréð ásamt
Sverri Schopka, fulltrúa Þýsk-
íslenska félagsins í Þýskalandi. Að
athöfn lokinni er gestum boðið í
heitt súkkulaði og viðeigandi bakk-
elsi í Hafnarhúsinu, ásamt því að
jólasveinar munu kíkja í heimsókn.
Félagar úr Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar leika jólalög. sisi@mbl.is
Kveikt á
ljósunum á
Miðbakka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miðbakki Mikil stemning skapast
jafnan þegar jólaljósin eru tendruð.
Hjálparstarf kirkjunnar undirbýr
nú aðstoð við efnalitlar fjölskyldur
fyrir jólin. Félagsráðgjafar og fleiri
taka á móti umsóknum um aðstoð
frá barnafjölskyldum á höfuðborg-
arsvæðinu sem búa við kröpp kjör
dagana 3.-5. desember kl. 11-15.
Aðstoðin felst m.a. í því að fólk sem
býr við fátækt fær inneignarkort í
matvöruverslunum
Þá hefur Hjálparstarf kirkjunnar
hafið jólasöfnun með 2.500 kr. val-
greiðslu í heimabanka. „Við erum
að safna fé til verkefna okkar í
sveitunum í Eþíópíu og Úganda þar
sem fólk býr við mikinn skort á
vatni og vantar hreinlætisaðstöðu,“
segir Kristín Ólafsdóttir, fræðslu-
fulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar.
Hjálparstarfið að-
stoðar fyrir jólin
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Nánar á
kronan.is/
jolahladbord