Morgunblaðið - 30.11.2019, Side 12
Lífið er núna Nýja afmælis-
armbandið er gert úr fallegum
bláum og svörtum perlum.
Samperl Glatt á hjalla í gær þegar Hulda byrjaði að perla með nokkrum
sjálfboðaliðum. F.v. Þorri Snæbjörnsson, Arnar Sveinn Geirsson, Laila Sæ-
unn Pétursdóttir, Hulda, Halla Dagný Úlfsdóttir og Sara Snorradóttir.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta verður notaleg stundog tilvalið tækifæri fyriralla fjölskylduna til aðkoma saman og gera eitt-
hvað skemmtilegt. Allir geta tekið
þátt, bæði krakkar og fullorðnir.
Við hvetjum fólk til að koma og
leggja hönd á perlu og leggja góðu
málefni lið í leiðinni. Það verður
jólastemning á svæðinu og frábær
skemmtiatriði,“ segir Hulda Hjálm-
arsdóttir, framkvæmdastjóri
Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur, en félagið
ætlar að blása til viðburðar á morg-
un, sunnudag, undir nafninu Perlað
af Krafti á aðventunni.
„Við ætlum að bjóða fólki að
koma á Hótel Natura við Nauthóls-
veg í Reykjavík milli klukkan eitt
og fimm og perla með okkur
afmælisarmbönd. Kraftur hefur
haldið upp á tuttugu ára afmæli
sitt á þessu ári með ýmsum hætti
og okkur fannst við hæfi nú í lok
árs að fagna afmælinu með sér-
stöku afmælisarmbandi, í nýjum lit-
um, með slagorðinu „Lífið er
núna“.
Við fórum af stað með þetta
verkefni fyrir tveimur árum, að búa
til armbönd með þessu slagorði og
fengum sjálfboðaliða til að perla
þau með okkur. Við höfum selt
þessi armbönd til styrktar félaginu
og þau hafa selst svo vel að við get-
um staðið enn betur við bakið á
okkar félagsmönnum en áður. Fyr-
ir það erum við afar þakklát,“ segir
Hulda og bætir við að samperlið á
morgun, sunnudag, sé tólfti og síð-
asti viðburðurinn á afmælisárinu.
„Þar munu koma fram Lalli
töframaður, hljómsveitin Ylja og
Prins Jóló til að skemmta sjálf-
boðaliðum. Við ætlum líka að sýna
heimildarmyndina „Lífið er núna“
en hún segir í máli og myndum frá
síðustu 20 árunum í tilveru Krafts.“
Guðni forseti ber armbandið
Hulda segir að Kraftur sé fé-
lag sem sé alfarið rekið fyrir vel-
vilja fólks og fyrirtækja í landinu
og þar af leiðandi skipti sköpum að
fá sjálfboðaliða til að koma og
leggja þeim lið á þennan hátt, að
perla með þeim.
„Einnig er ótrúlega mikill
heiður fyrir Kraft að undanfarin
tvö ár hefur Guðni forseti borið
armband Krafts við öll opinber til-
efni. Þegar við perluðum með
stuðningsmönnum íslenska lands-
liðsins í fótbolta þá gáfum við
landsliðsmönnunum armbönd sem
þeir báru í öllum leikjum sem þeir
spiluðu á heimsmeistaramótinu. Við
sjáum því armböndin víða og okkur
þykir afar vænt um að fólk beri
þannig út þennan boðskap sem
okkur er svo kær, að muna það að
lífið er núna, en við sem höfum
greinst með krabbamein erum
rækilega minnt á hvað það skiptir
miklu máli að njóta líðandi stund-
ar,“ segir Hulda og bætir við að
armbandið sé dásamleg jólagjöf,
því það sé gjöf sem gefur áfram.
„Armbandið er bæði gjöf til
þess sem þiggur og líka gjöf til fé-
lagsins Krafts,“ segir Hulda sem
hlakkar til að perla með lands-
mönnum á morgun á fyrsta sunnu-
degi í aðventu.
Fyrir þá sem eru staddir fyrir
norðan á aðventunni þá verður af-
mælisarmband Krafts einnig perlað
á Akureyri í Brekkuskóla á öðrum
degi aðventu, sunnudag 8. desem-
ber milli klukkan 13 og 17.
Nýju armböndin fást í vef-
verslun félagsins Kraftur.org og
vert að taka fram að þau verða seld
í takmörkuðu upplagi.
Hvetjum fólk til að leggja hönd á perlu
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur
með krabbamein og aðstandendur, býður landsmönn-
um til samperls á morgun, sunnudag. Þar mæta Lalli
töframaður, hljómsveitin Ylja og Prins Jóló.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hulda Hjálmarsdóttir Hún hlakkar til að perla með landsmönnum á morgun, sunnudag.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
3 herbergja neðri hæð 108,4m2
Innangengt er úr bílskúr í gegnum þvottahús,
þá fylgir eigninni 113m2 sér afnotareitur
á baklóð hússinsmeð timburverönd.
3 herbergja efri hæð 130,3m2
Aukin lofthæð, auka baðherbergi inn
af svefnherbergimeð 40m2 svölum til suðurs.
Allar upplýsingar veita
Helga Pálsdóttir lögg. fasteignasali
Sími 822 2123 helga@fastlind.is
ÞorsteinnYngvason lögg. fasteignasali
Sími 696 0226 thorsteinn@fastlind.is
OPIÐHÚS
Nýtt í sölu! Bjarkardalur 4-6 Reykjanesbæ
Fullbúnar 3ja herbergja íbúðir með bílskúr. Frábær hönnun!
Lind fasteignasala kynnir í einkasölu nýjar og
glæsilegar, fullbúnar þriggja herbergja íbúðir í
fjórbýlishúsi að Bjarkardal 4-6 í Reykjanesbæ.
Íbúðirnar eru einstaklega vandaðar og skilast með
gólfefnum á öllum rýmum, fallegum innréttingum,
ísskápm. frysti, uppþvottavél og smekklegri lýsingu
frá Lumex. Íbúðirnar erumeð bílskúr, sér inngangi
og þvottahúsi. Verð frá 44,9milljónum.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
laugardaginn30/11
og sunnudaginn 1/12
milli klukkan 14 og 15
Jól á torgi er lítil en vaxandi
hverfishátíð á Markúsartorgi í Breið-
holtinu, en hún verður nú haldin í
þriðja sinn nk. mánudag, 2. des., kl.
17:30-18:20. Kór Hólabrekkuskóla
mun stíga á svið og aðrir sem koma
fram eru Skólahljómsveit Árbæjar
og Breiðholts, kvæðamenn Iðunnar
og nemendur úr Tónskóla Sigur-
sveins. Unglingar lesa ljóð og dans-
að verður í kringum jólatré, sykurp-
úðar grillaðir, boðið upp á pipakökur
og mandarínur og heitt kakó. Veg
og vanda af hátíðinni hefur Kristín
Lárusdóttir, sellókennari, raf-
tónlistar- og kvæðamaður. Markmið
hátíðarinnar er að nýta torgið betur
og virkja starfsemi og fólk í nær-
umhverfinu, rækta íslenskt mál-
umhverfi, íslenskan söng- og tón-
listararf og sameina fólk á öllum
aldri og af öllum kynjum á fallegu
torgi í skemmtun og samsöng. Að
hátíðinni koma Borgarbókasafnið,
Dagþjónustan Iðjuberg, Félags-
starfið í Gerðubergi, Frístunda-
miðstöðin Miðberg, Unglingasmiðjan
Tröð og Tónskóli Sigursveins.
Hverfishátíðin Jól á torgi í Breiðholtinu á mánudag
Sameina fólk á öllum aldri og af
öllum kynjum í skemmtun og söng
Ungir söngvarar Fólk á öllum aldri mun koma fram á hátíðinni.