Morgunblaðið - 30.11.2019, Page 22
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Heildarfjöldi greiddra gistinátta
dróst saman um 4,9% nú í október
miðað við sama mánuð í fyrra. Þrátt
fyrir samdráttinn jukust umsvifin á
hótelum landsins um 3%. Mestur
varð samdrátturinn á stöðum sem
miðlað er gegnum Airbnb og svip-
aðar síður og nam hann 19,6%. Þá
nam fækkunin á gistiheimilum, far-
fuglaheimilum og íbúðagistingu ríf-
lega 8%. Greiddar gistinætur á öll-
um gististöðum námu 758.400 í
mánuðinum en voru 797.600 á sama
tíma í fyrra. Á hótelum voru gisti-
næturnar 409.215 en ári fyrr voru
þær 398.313.
Breytt neysluhegðun
Vilborg Helga Júlíusdóttir, hag-
fræðingur hjá Samtökum ferðaþjón-
ustunnar, segir að skýringanna fyrir
aukinni aðsókn á hótelin kunni að
vera að leita víða.
„Krónan hefur veikst og verð á
gistingu lækkað þannig að kaup-
máttur erlendra ferðamanna er
meiri en áður. Einnig kann að hafa
orðið breyting á samsetningu er-
lendra ferðamanna. Hugsanlega hef-
ur stærra hlutfall ferðamanna sem
komu hingað til lands með WOW air
verið vanara að nýta Airbnb og svo
getur hert regluverk haft þau áhrif
að óskráð gisting færist yfir í þá
skráðu,“ segir Vilborg.
Sprenging á Austurlandi
Þegar litið er yfir tölur Hagstof-
unnar yfir seldar gistinætur kemur í
ljós að hótelin á höfuðborgarsvæð-
inu halda nokkurn veginn í horfinu í
októbermánuði miðað við sama mán-
uð í fyrra. Hins vegar vekur sér-
staka eftirtekt að á Austurlandi virð-
ist hafa orðið 42% aukning milli ára.
Þannig seldust 11.908 hótelnætur á
Austurlandi nú í október en þær
voru 8.362 í fyrra.
Morgunblaðið leitaði til Hagstof-
unnar og grennslaðist fyrir um hvort
skekkja væri í tölum milli ára.
Hjörvar Pétursson, sem vinnur við
gistináttatölfræði hjá stofnuninni,
varð til svars. Sagði hann að þessar
tölur hefðu vakið sérstaka eftirtekt
og valdið því að stofnunin rýndi þær
sérstaklega. „Við getum ekkert
fundið sem bendir til þess að þetta
sé skekkja eða villa. Það er einfald-
lega þannig að hjá sumum hótelum á
þessu svæði er mikil aukning milli
ára.“
Morgunblaðið leitaði til stjórn-
enda stærstu hótelanna á Austur-
landi. Sigrún Jóhanna Þráinsdóttir,
framkvæmdastjóri 701 Hotels, seg-
ist hafa orðið vör við mikla aukningu
á Hótel Valaskjálf nú í október.
„Þetta hefur komið nokkuð á
óvart en aukningin nemur tugum
prósenta. Þetta er held ég einfald-
lega til marks um að Austurland er
að komast meira á kortið og það er
jaðartíminn sem er að stækka hvað
mest hjá okkur.“ Hún bendir þó á að
Austurland eigi mikið inni og að enn
megi auka umsvifin. Þannig hefur
fyrirtækið þann háttinn á að loka
Hótel Hallormsstað yfir vetrarmán-
uðina, nema við sérstök tilefni, en þá
er hótelið opnað gestum. Hún segir
að það kunni að breytast á næstu ár-
um.
„Við munum breyta því fyrir-
komulagi þegar og ef ástæða verður
til þess vegna aukinnar aðsóknar.“
Í svipaðan streng tekur Auður
Anna Ingólfsdóttir sem rekur Ice-
landair Hotels Hérað á Egilsstöðum.
„Októbermánuður var mun betri
en í fyrra og munar þar tugum pró-
senta. Ég hef enga beina skýringu á
því en Austfirðirnir eru einfaldlega
frábærir og fólk virðist vera að átta
sig á því,“ segir hún kampakát yfir
genginu en hún stendur nú í ströngu
ásamt starfsfólki sínu að undirbúa
vertíðina í kringum jólahlaðborðin.
Sviptingar á hótelmarkaði
4,9% færri gistinætur seldar í október en á sama tíma í fyrra Mestur
samdráttur í gegnum Airbnb Gistináttasprenging á Austurlandi í október
Fjöldi gistinátta ferðamanna á öllum gististöðum 2017-2019
1.800
1.600
1.400
1..200
1.000
800
600
400
200
0
Hótel og gistiheimili
Vefsíður á borð við Airbnb
Aðrar tegundir
Alls voru gistinætur ferðamanna
á öllum gististöðum um
758.400
í október, en þær voru um
797.600 í sama mánuði í fyrra
Þúsundir gistinátta
2017 2018 2019
Heimild: Hagstofa Íslands
okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt.
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Til leigu er lítil falleg
stangveiðiá
í skemmtilegu landslagi á Norðurlandi vestra
Til leigu er stangveiðiáin Hallá á Skagaströnd sem ca 18 km
fyrir utan Blönduós.
Árlegur veiðitími er á tímabilinu 20. júní-20. september ár
hvert. Leyfðar eru tvær stangir og veitt er á maðk og flugu
í ánni. Gamalt veiðihús er við ána.
Tilboð óskast í veiðirétt í ánni fyrir 31. desember 2019.
Heimilt er að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar gefur Magnús Guðmannsson Vindhæli,
sími 841 9091/ 452 2738, vindhaeli@simnet.is
Fullveldishátíð
.Sunnudaginn 1. desember
Í húsakynnum Heimssýnar að
Ármúla 4-6, kl. 20:00-22:00
Hátíðarræður halda:
Ögmundur Jónasson og
Styrmir Gunnarsson
Tónlist og léttar veitingar
Allir velkomnir
Heimssýn
„Þetta mál er í vinnslu. Við af-
greiðum beiðnina auðvitað eins
fljótt og unnt er,“ segir Guðjón
Helgason, upplýsingafulltrúi
Isavia, sem m.a. rekur flugstöð
Leifs Eiríkssonar, en félaginu var
gert skylt að veita bílastæðaþjón-
ustunni Base Parking aðgang að
upplýsingum um tekjur vegna
reksturs Isavia á bílastæðum við
flugstöðina. Greint var frá úr-
skurði Úrskurðarnefndar um
upplýsingamál í Morgunblaðinu í
gær. Nefndin vísaði einnig beiðni
Base Parking um aðgang að upp-
lýsingum um kostnað vegna
reksturs bílastæðanna, hversu
miklu fjármagni hefði verið varið
í uppbyggingu bílastæðanna sl.
þrjú ár, og hversu mikið fjár-
magn Isavia ohf. hefði fengið frá
bílastæðasjóði Sandgerðisbæjar
sl. þrjú ár til nýrrar meðferðar
og afgreiðslu. Í skriflegu svari
frá Guðjóni segir að Isavia líti
„ekki svo á að niðurstaða Úr-
skurðarnefndar feli í sér gildis-
mat af neinu tagi, heldur aðeins
ábendingu um að félagið þurfi að
kanna hvort fyrir liggi reikn-
ingar eða önnur gögn í bókhaldi
þess sem falli undir beiðni kær-
anda. Í kjölfarið þarf að taka af-
stöðu til þess hvort kærandi eigi
rétt á að fá aðgang að slíkum
upplýsingum“.
Kanna hvort gögn liggja fyrir
Afgreiða beiðni Base Parking eins fljótt og hægt er
● Tekjur Iceland Seafood International
hf. (ISI) fyrstu níu mánuði ársins voru
332,2 milljónir evra, jafnvirði 44,9 millj-
arða íslenskra króna, sem jafngildir
43,2% hækkun borið saman við fyrstu
níu mánuði ársins 2018, að því er segir í
tilkynningu frá ISI vegna uppgjörs
þriðja ársfjórðungs. Ef tekið er tillit til
níu mánaða uppgjörs Oceanpath og
Solo Seafood sem komu inn í sam-
stæðu ISI á árinu 2018 nam tekjuhækk-
unin 4,9%. Þá segir að hagnaður
félagsins á tímabilinu fyrir skatt hafi
verið 7,6 milljónir evra, eða einn millj-
arður íslenskra króna. Er þetta hækkun
um 541 milljón króna en hækkunin er
um 40 milljónir króna ef tekið er tillit til
hagnaðar fyrirtækjanna sem gengu inn
í samstæðuna. Fram kemur í tilkynning-
unni að „minna framboð af þorski frá
Íslandi á þriðja ársfjórðungi á þessu ári
miðað við sama tíma í fyrra hafði nei-
kvæð áhrif á tekjur og hagnað sam-
stæðunnar á ársfjórðungnum“.
Þrátt fyrir minni þorsk er félagið með
óbreytta afkomuspá, sem gerir ráð fyrir
að hagnaður ársins fyrir skatt verði um
það bil 1,5 milljarðar króna.
Tekjur Iceland Seafood
45 milljarðar króna
30. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.28 122.86 122.57
Sterlingspund 158.14 158.9 158.52
Kanadadalur 91.94 92.48 92.21
Dönsk króna 18.017 18.123 18.07
Norsk króna 13.305 13.383 13.344
Sænsk króna 12.744 12.818 12.781
Svissn. franki 122.44 123.12 122.78
Japanskt jen 1.1168 1.1234 1.1201
SDR 167.79 168.79 168.29
Evra 134.62 135.38 135.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.0831
Hrávöruverð
Gull 1457.55 ($/únsa)
Ál 1770.0 ($/tonn) LME
Hráolía 63.91 ($/fatið) Brent
● Landsframleiðsla jókst um 0,2% að
raungildi á fyrstu níu mánuðum ársins í
samanburði við sama tímabil í fyrra.
Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Á
sama tímabili drógust þjóðarútgjöld
saman um 0,9%. Einkaneysla jókst að
raungildi um 2,0%, samneysla um
2,8% en fjármunamyndun dróst saman
um 9,1%. Útflutningur dróst saman um
6,8% og innflutningur um 9,7%. Á
þriðja ársfjórðungi nam samdráttur
landsframleiðslu 0,1% sem skýrist af
neikvæðum áhrifum utanríkisviðskipta
á hagvöxt. Þar vegur þyngst samdráttur
í útflutningi á þjónustu en hann mæld-
ist 16,7% á tímabilinu.Á þriðja ársfjórð-
ungi jukust þjóðarútgjöld um 3,2%.
Vöxtur einkaneyslu mældist 2,1%, sam-
neyslu 2,9% og fjármunamyndunar
2,9%. Á ársfjórðungnum dróst útflutn-
ingur saman um 12,9% en samdráttur í
innflutningi nokkru minni, um 8,6%.
Landsframleiðsla 0,1%
minni á 3. ársfjórðungi
STUTT
Allt um sjávarútveg