Morgunblaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Af fréttummá ætlaað aukin
harka fylgi glæp-
um og afbrotum
og lögregla eigi
fullt í fangi með
að bregðast við svo vel sé.
Þegar glæpamenn nást er
þeim stungið í fangelsi og
talað er um makleg mála-
gjöld. En hvað svo?
Páll Winkel, forstjóri
Fangelsismálastofnunar,
ræðir opinskátt um þessi
mál í viðtali í Sunnudags-
blaðinu sem í dag fylgir
Morgunblaðinu. Þar lýsir
hann því hvernig margt hafi
breyst til betri vegar í fang-
elsum landsins. Hann
kveðst þó hvergi nærri
hættur að breyta og mörg
verkefni bíði.
Páll leggur áherslu á að
út úr fangelsum landsins
skili sér betri menn og út-
skýrir kosti samfélagsþjón-
ustu. Um leið leggur hann
áherslu á að til að fá að
gegna samfélagsþjónustu
þurfi að uppfylla ýmis skil-
yrði og hart sé tekið á
þeim, sem séu í opnum
fangelsum og reyni að mis-
nota aðstæður.
Í viðtalinu gefur Páll lítið
út á gagnrýni á góðan að-
búnað í fangelsinu. Menn
verði að átta sig á að frels-
issvipting sé stórmál: „Það
er ekki okkar hlutverk að
gera frelsissviptinguna
verri en nauðsynlegt er og
það er okkar verkefni að
framkvæma hana þannig að
einstaklingurinn geti átt
von þegar hann kemur úr
afplánun.“
Athyglisvert er að lesa
frásögn Páls af því hvernig
viðhorf hans til fanga hefur
breyst frá því hann byrjaði
sem ungur maður í lögregl-
unni og hann fór að finna til
meiri samkenndar með
þeim.
Lýsing hans á því hvernig
eiturlyf komast inn í fang-
elsin og hvers vegna erfitt
er að stoppa þau vekur
einnig til umhugsunar og
vitaskuld er það rétt hjá
honum að þar er stóri vand-
inn eftirspurnin. Eiturlyfin
skapa beinlínis hættulegt
ástand meðal fanga. Eitur-
lyfin verði sífellt hættu-
legri. Nú flæði eiturlyfið
spice um fangelsin og 90%
fanga séu í virkri neyslu.
Páll er ekki ánægður með
að hafa ekki aðstöðu til að
skilja á milli fanga og bend-
ir á að það geti verið erfitt
að halda sér edrú
þegar nóg sé af
efnum.
Hann telur
einnig að við
séum á villigöt-
um í þessum efn-
um: „Margt af þessu fólki
er ágætis fólk þegar það er
ekki í neyslu. Og sumir
þeirra eru jafnvel aðallega
dæmdir til fangelsisrefs-
ingar fyrir að fjármagna
neyslu sína. Ef neyslan er
sjúkdómur, þá veltir maður
fyrir sér hvort við séum á
réttri braut með þetta að
dæma þessa einstaklinga
aftur og aftur í fangelsi fyr-
ir að vera veikir. Það er
umhugsunarhefni.“
Það er rétt hjá Páli að
hér er um að ræða víta-
hring, sem finna þarf leið til
að rjúfa. Þeir sem stjórna
smygli og dreifingu fíkni-
efna nota fíklana til að
vinna fyrir sig skítverkin
þegar þeir eru búnir að ná
þeim á öngulinn. Þegar fíkl-
arnir lenda í fangelsi finna
forsprakkarnir næstu
fórnarlömb til að etja á for-
aðið.
Það er lykilatriði að þeir
sem dæmdir eru til að sitja
í fangelsi verði ekki fasta-
gestir. Á Íslandi er
endurkomutíðni fanga lág
miðað við það sem gerist
víðast hvar annars staðar
og segir Páll að sú stað-
reynd sé farin að vekja
áhuga erlendis. Sú aðferð
sem hér er beitt gengur út
á það að undirbúa fanga
undir frelsið í áföngum
þannig að þeir eigi auðveld-
ara eða í það minnsta
möguleika á að koma undir
sig fótunum þegar út er
komið.
Refsingar þurfa að vera í
samræmi við brot. Það er
ekki samasemmerki á milli
þess að leggja áherslu á
betrun í fangelsiskerfinu og
að milda refsingar. Það er
hárrétt hjá Páli að frelsis-
svipting er þung refsing.
Vissulega skiptir það máli
hvernig aðbúnaðurinn og
atlætið er, en fanginn er
eftir sem áður jafn ófrjáls,
hvort sem aðbúnaður er
slæmur eða góður. Sums
staðar er fangelsiskerfið
þannig að menn koma inn í
fangelsin óharðnaðir og
ganga þaðan út forhertir.
Það má ekki verða raunin
hér á landi og er gott að sjá
það markvissa starf sem
unnið er innan fangelsanna
til að stuðla að því.
Lykilatriði að ein-
staklingur eigi von
þegar hann kemur
úr afplánun}
Mannúð og refsing
Á
rið 2019 voru 14% Íslendinga 65
ára og eldri, samanborið við 10%
Íslendinga árið 1980. Spár Efna-
hags- og framfarastofnunar-
innar, OECD, gera ráð fyrir því
að árið 2050 verði 25% Íslendinga 65 ára og
eldri. Hækkandi hlutfall aldraðra felur í sér
áskoranir fyrir heilbrigðiskerfið, en líka tæki-
færi til þess að hugsa hlutina upp á nýtt, gera
betur og breyta.
Þörf fyrir fleiri hjúkrunarrými á landsvísu
er veruleg. Ég kynnti í apríl 2018 áætlun um
stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarrýma á
landsvísu, en áætlunin tók til uppbyggingar
og endurbóta á tæplega 800 hjúkrunarrýmum
til ársins 2023. Á þessu ári hefur verið tekið í
notkun nýtt 40 rýma hjúkrunarheimili á Sel-
tjarnarnesi og hjúkrunarheimili með 60 rým-
um á Sólvangi í Hafnarfirði. Næsta vor verður tekið í
notkun 99 rýma hjúkrunarheimili við Sléttuveg í Reykja-
vík, auk þess sem bygging 60 rýma hjúkrunarheimilis í
Árborg er hafin. Samkvæmt samantekt Embættis land-
læknis frá því í september á þessu ári hefur fjölgun
hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu þegar leitt til
þess að biðlistar hafa styst. Áfram verður unnið að upp-
byggingu hjúkrunarrýma á kjörtímabilinu.
Mikilvægt er að huga að fjölbreytni í þjónustu og auka
möguleika fólks til að búa lengur heima, ef það kýs. Í því
skyni hefur dagdvalarrýmum verið fjölgað markvisst
með áherslu á þjálfun og aukna þjónustu við fólk sem
býr í heimahúsum. Sem dæmi má nefna að árið 2019 var
opnuð á Hrafnistu sérhæfð dagdvöl ætluð
heilabiluðum með aðstöðu fyrir 30 ein-
staklinga, sérhæfðum dagdvalarrýmum í
MS-setrinu var fjölgað um 6 og Hafnarfjarð-
arbæ var veitt rekstrarheimild fyrir 12 nýj-
um dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabil-
un. Ákvörðun var einnig tekin um að koma á
fót fjórum endurhæfingarrýmum við Heil-
brigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki
með áherslu á endurhæfingu fyrir aldraða.
130 milljónir króna af fjárlögum ársins
2019 verða nýttar til að styrkja mönnun í
heimahjúkrun og auka þjónustuna, auk þess
sem ég hef ákveðið að ráðstafa 200 milljónum
króna af fjárlögum næsta árs til að koma á fót
heilsueflandi móttökum um allt land innan
heilsugæslunnar. Móttökurnar verða ætlaðar
eldra fólki og einstaklingum með fjölþætt eða
langvinn heilsufarsvandamál og markmið þeirra er að
tryggja þessum hópi þverfaglega og heildstæða heil-
brigðisþjónustu og innleiða skipulagða heilsuvernd fyrir
aldraða. Þessu tengt hef ég ákveðið að stofna sérstaka
verkefnahópa um heilsueflingu aldraðra, heimahjúkrun
og hjúkrunarheimili og sveigjanlega dagdvöl.
Með aukinni þjónustu heim og fjölgun hjúkrunar- og
dagdvalarrýma er komið til móts við vaxandi þörf fyrir
þjónustu við aldraðra. Þetta er mikilvægur liður í því að
tryggja rétta þjónustu á réttum stað í samræmi við heil-
brigðisstefnu til ársins 2030.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Fjölbreytt þjónusta við aldraða
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Magn gagna sem fer umfarsímanetin hér álandi heldur áfram aðvaxa stórum skrefum,
en mikil aukning hefur verið á
gagnamagninu allt frá innleiðingu
4G. Á fyrri hluta þessa árs jókst
gagnamagn á farsímanetinu um
50,4% frá sama tíma á síðasta ári.
Tala enn minna í heimasíma
Notkun heimasíma minnkar aft-
ur á móti í sífellu. Sú þróun að lands-
menn tali æ minna í heimasímann
hefur staðið um árabil og hélt áfram
á fyrri hluta þessa árs. Þá fækkaði
áskrifendum með fastlínusíma um-
talsvert milli ára. Notendum með
fastlínuáskrift fækkaði um 6%.
Tæplega sjö þúsund færri heim-
ili voru með áskrift að fastlínusímum
á fyrri hluta ársins en á sama tíma í
fyrra og fækkaði töluðum mínútum í
heimasíma um tæp 15% milli ára.
Þessar upplýsingar koma fram í ný-
birtri tölfræðiskýrslu Póst- og fjar-
skiptastofnunar um fjarskiptamark-
aðinn á fyrri hluta ársins 2019.
Fram kemur í skýrslunni að í
farsímanetum er hlutfallslega meira
gagnamagn notað í símum en í öðr-
um tækjum sem eru eingöngu fyrir
gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum.
,,Netsímaáskrifendum (VoIP)
hefur fjölgað með aukinni lagningu
ljósleiðara og niðurlagningu á eldra
heimasímakerfi (PSTN kerfi)
Símans. Síminn og Vodafone eru
stærstu fyrirtækin á markaði fyrir
heimasíma með um 93% hlutdeild,“
segir í umfjöllun um niðurstöðurnar.
Farsímaáskriftum fjölgaði á
fyrstu sex mánuðum ársins og voru
þá komnar í rúmlega 470 þúsund.
Var aukningin mest í gagnaáskrift,
sem fjölgaði úr rúmlega 49 þúsund í
fyrra í tæp 62 þúsund á fyrri helm-
ingi þessa árs. Gagnaáskrift ein-
göngu jókst um 25,4% á milli ára.
Síminn heldur forystunni í
fjölda farsímaáskrifta
Landsmenn tala einnig meira
og lengur í farsíma en áður, en töl-
uðum mínútum úr farsímum fjölgaði
um 7,7% á milli ára og SMS-skeytum
úr farsímum hefur einnig fjölgað
nokkuð milli ára.
Ef litið er á markaðshlutdeild
fjarskiptafyrirtækjanna má sjá að
Síminn, sem skaust fram úr Nova á
seinni hluta síðasta árs í fjölda far-
símaáskrifta, hélt áfram toppsætinu
á fyrri hluta þessa árs. Markaðs-
hlutdeild Símans í farsímaáskriftum
var 36,9% á fyrri helmingi ársins,
hlutdeild Nova var 32,8% og Voda-
fone var með 27,6% áskrifta á far-
símanetinu.
Sé hins vegar sjónum eingöngu
beint að gagnamagni á farsímanet-
inu kemur í ljós að Nova er með
langmesta markaðshlutdeild, eða
rúm 60%, Síminn 24,6% og Vodafone
12,7%.
Fram kemur að veltan á fjar-
skiptamarkaði á fyrri hluta ársins
var svipuð og árið á undan en tekjur
af heimasíma og farsíma fóru lækk-
andi. Bent er á að aftur á móti hafa
tekjur af gagnaflutningum og int-
ernetþjónustu ásamt öðrum tekjum
farið hækkandi.
,,Fjárfesting á fjarskiptamark-
aði er aðallega í fastaneti, m.a. vegna
lagningar ljósleiðara,“ segir í um-
fjöllun um fjarskiptafélögin.
Auk þessa má sjá að internet-
tengingum hefur fjölgað lítillega
þegar á heildina er litið. Síminn er
með 46,9% internettenginga, Voda-
fone er í öðru sæti með 32,3%, Nova
10,9% og Hringdu er með 7,6% hlut í
fjölda internettenginga landsmanna.
Ljósleiðaratengingum hefur fjölgað
mikið.
Gagnamagn farsíma
stóreykst milli ára
Fjarskiptamarkaður
» Notkun netsins í farsímum
fer vaxandi og áskrifendur sem
nota netþjónustu á farsímanet-
inu voru rúmlega 12 þúsund
fleiri í ár en á fyrri hluta seinasta
árs.
» Ljósleiðaratengingum fjölg-
aði mikið á fyrri hluta ársins, eða
úr 63.619 á fyrri hluta síðasta
árs í 80.787 tengingar í ár.
» Um mitt ár voru ljósleiðara-
tengingar 59% allra internet-
tenginga. Síminn með flestar
eða rúmlega 64 þúsund, Voda-
fone var með yfir 44 þúsund og
Nova tæp 15 þúsund.
» Yfir 49 þúsund notendur,
eða 35,8% allra tenginga, eru
með yfir eitt
þúsund
megabita
upphals-
hraða á
net-
inu.
Áskriftafjöldi og gagnamagn á farsímaneti
H
ei
m
ild
: P
ós
t-
o
g
fja
rs
ki
pt
as
to
fn
un
Markaðshlutdeild
fjarskiptafyrirtækja á fyrri
helmingi ársins 2019
Síminn, 173.428 áskriftir
Nova, 154.522 áskriftir
Vodafone, 130.119 áskriftir
Aðrir, 12.535 áskriftir (2,7%)
Alls
470.604
áskriftir
Gagnamagn á farsímaneti
á fyrri helmingi áranna
2017 til 2019
2017 2018 2019
Alls milljónir GB á fyrstu
sex mánuðum ársins
Eingöngu gögn
Tal og gögn
47%
53%
39%
61%
40%
60%
11,4
15,8
23,8
37%
33%
28%