Morgunblaðið - 30.11.2019, Page 36
36 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Kveikt
á fyrsta aðventukertinu. Prestur er Svavar Al-
freð Jónsson. Kammerkórinn Hymnodia syng-
ur. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.
Leikfélag VMA skemmtir með atriði úr sýning-
unni Tröll. Umsjón Sonja Kro og Jón Ágúst Eyj-
ólfsson.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Kirkjudagur safnaðarins.
Jólaleikritið Strákurinn sem týndi jólunum sýnt
kl. 11. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Kór Árbæj-
arkirkju og Strætókórinn syngja undir stjórn
Krisztinu Kalló Szklenár organista. Birta Rós
Valsdóttir syngur einsöng og Matthías Stef-
ánsson leikur á fiðlu. Sr. Þór Hauksson og sr.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédika og þjóna
fyrir altari. Eftir messu er kaffisala Kvenfélags-
ins og happdrætti Líknarsjóðsins þar sem allur
ágóði rennur til líknarmála.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Jóhanna María Eyjólfsdóttir djáknakandídat
annast samverustund sunnudagaskólans
ásamt Ingu Steinunni Henningsdóttur. Félagar
úr Hljómfélaginu leiða sönginn undir stjórn
Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Organisti er Bjart-
ur Logi Guðnason. Kaffisopi og safi eftir
messu.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Undirbúningur fyrir að-
ventuhátíð barnanna 8. des. Umsjón með
stundinni hafa Sigrún Ósk, Þórarinn og Guð-
mundur Jens.
Aðventuhátíð í Bessastaðakirkju kl. 17. Flutt
verður aðventu- og jólatónlist. Meðal flytjenda
eru: nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar,
Álftaneskórinn og Garðálfarnir, kór eldri borg-
ara, ásamt Ástvaldi Traustasyni organista. Sr.
Hans Guðberg og Margrét djákni leiða stund-
ina. Fermingarbörn aðstoða í báðum athöfn-
um.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta sunnu-
dag 1. desember kl. 11. Sr. Þorbjörn Hlynur
Árnason þjónar fyrir altari. Kór eldri borgara
syngur. Kaffi og smákökur í anddyri kirkjunnar
að messu lokinni. Fermingarbörnin og fjöl-
skyldur þeirra boðin sérstaklega velkomin.
Sunnudagaskóli kl. 13.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Að-
ventuhátíð í Fólkvangi á Kjalarnesi kl. 17. Sig-
þór Magnússon fyrrverandi skólastjóri flytur
hátíðarræðu. Kirkjukór Reynivallaprestakalls
syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Ósk-
arssonar organista ásamt börnum úr sunnu-
dagaskólanum. Kveikt á fyrsta aðventukertinu
og fermingarbörnin aðstoða við hátíðlega
ljósastund. Kaffi eftir stundina.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Aðventuhátíð Breið-
holtssóknar og Alþjóðlega safnaðarins í Breið-
holtskirkju verður kl. 14 sunnudaginn 1. des-
ember. Kór Breiðholtskirkju syngur undir stjórn
Arnar Magnússonar. Samsöngur og tónlist.
Prestarnir Magnús Björn Björnsson, Toshiki
Toma, Eva Valdimarsdóttir og Steinunn Þor-
bergsdóttir djákni þjóna. Barn borið til skírnar.
Hátíðarkaffi.
BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11
og afmælishátíð kirkjunnar og boðið upp á
vöfflur með rjóma eftir stundina. Daníel, Sóley,
Jónas Þórir og Pálmi sjá um stundina.
Aðventuhátíð kl. 20. Ræðumaður verður Fann-
ar Sveinsson. Allir kórar kirkjunnar koma fram
undir stjórn Jónasar Þóris og Þórdísar Sævars-
dóttur. Fjöldi einsöngvara og hljómsveit. Ljósin
tendruð.
DIGRANESKIRKJA | Aðventuhátíð Digranes-
safnaðar kl. 11. Fjölbreytt tónlistardagskrá í
boði Kammerkórs Digraneskirkju. Organisti og
kórstjóri er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Prest-
ur er Gunnar Sigurjónsson.
Jólalegar og veglegar veitingar til styrktar Hjálp-
arstarfi kirkjunnar.
DÓMKIRKJAN | Fyrsti í aðventu, messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Elínborg Sturludótt-
ir, Dómkórinn og Kári Þormar. Sænsk messa
kl. 14. Prestur er Guðrún Karls Helgudóttir.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 10.30. Við kveikjum á fyrsta
aðventukertinu, Barnakór kirkjunnar syngur
undir stjórn Torvalds Gjerde organista og Rebbi
og Mýsla líta við. Sr. Þorgeir Arason og leiðtog-
ar sunnudagaskólans sjá um stundina. Hress-
ing og litamynd í lokin.
FELLA- og Hólakirkja | Sunnudagaskóli kl.
11 í umsjá Mörtu og Ásgeirs. Aðventukvöld kl.
20. Kór kirkjunnar flytur jólatónlist undir stjórn
Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Matthías
Stefánsson leikur á fiðlu. Reynir Þormar leikur
á saxófón frá kl. 19.40. Einsöngvarar úr röðum
kórsins. Ræðumaður er Þorsteinn Pálsson fyrr-
verandi ráðherra. Prestar kirkjunnar leiða sam-
veruna. Í lokinn er Heims um ból sungið við
kertaljós. Heitt súkkulaði og smákökur eftir
stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta 1.
desember kl. 14. Spádómskerti fyrsta ljós á
aðventukransi tendrað. Séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra
og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina
ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Ferm-
ingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að
mæta.
GARÐAKIRKJA | Ljósastund kl. 15.30. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir talar um sorgina og jólin
og þjónar fyrir altari ásamt Helgu Björk Jóns-
dóttur djákna. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
syngur við undirleik Davíðs Sigurgeirssonar gít-
arleikara. Frumfluttur verður sálmur eftir Þór-
unni Ernu Clausen og Guðrúnu Árnýju Karls-
dóttur. Sjá gardasokn.is.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leið-
ir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista.
Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún
djákni og leiðtogar. Aðventukvöld kl. 18.
Ræðukona kvöldsins er Snjólaug Aðalsteins-
dóttir formaður kvenfélagsins Baldursbrá. Kór
Glerárkirkju og Barna- og æskulýðskórinn flytja
tónlist. Fermingarbörn leiða í ljósaathöfn.
GRAFARVOGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón hefur sr. Sigurður Grétar
Helgason og Þóra Björg Sigurðardóttir. Undir-
leikari er Stefán Birkisson.
Aðventuhátíð kl. 20. Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri Reykjavíkur, flytur hugleiðingu.
Fermingarbörn lesa guðspjall dagsins. Við
syngjum jóla- og aðventusálma. Kirkjukórarnir
og Barna- og unglingakór kirkjunnar verða með
söngatriði.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Séra Grétar Halldór Gunn-
arsson prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar
Örn Agnarsson og Vox Populi leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Vox Fem-
inae annast sönginn, organisti er Ásta Har-
aldsdóttir. Messuhópur þjónar ásamt ferming-
arfjölskyldum og sr. Maríu G. Ágústsdóttur.
Englatréð kynnt. Opnun glerlistarsýningar
Selmu Hannesdóttur og enduropnun sýningar
á málverkum Sigrúnar Sigurðardóttur til styrkt-
ar innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.
Aðventuhátíðin er 8. desember kl. 17, ath.
breyttan tíma. Jólabingó á þriðjudaginn kl. 13,
eftir kyrrðarstund sem hefst kl. 12. Núvitund
kl. 18.15 fimmtudag.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Að-
ventuhátíð 1. des. kl. 14 í hátíðarsal Grundar.
Prestur er Auður Inga Einarsdóttir. Hugvekju
flytur Gerður G. Bjarklind, fyrrverandi útvarps-
þulur, og Valdís Viðarsdóttir les jólasögu.
Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar
Waage organista, en sungnir verða jóla- og að-
ventusálmar.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Kveikjum
á jólatrénu 1. desember kl. 16. Næsta sunnu-
dag verður ljósahátíð Guðríðarkirkju haldin kl.
16. Prestar eru Karl V. Matthíasson og sr. Leif-
ur Ragnar Jónsson. Barnakórinn mun syngja,
ljósin verða tendruð og dansað í kringum
jólatré og aldrei að vita nema að við fáum
góða, rauðklædda gesti. Foreldrafélag Ingunn-
arskóla býður svo upp á heitt súkkulaði og pip-
arkökur.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Irma S. Óskarsdóttir þjónar ásamt
biskupi Íslands, sr. Agnesi Sigurðardóttur,
sem prédikar. Messuþjónar aðstoða. Lesarar
frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Mótettukór Hall-
grímsk. syngur, Hörður Áskelsson stjórnar.
Organisti er Björn S. Sólbergsson. Barnastarf:
Kristný Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarna-
dóttir. Upphaf jólasöfnunar Hjálparst. kirkj-
unnar og nýs starfsárs Listvinaf. Hallgrímsk.
Sýningaropnun Guðrúnar Tryggvadóttur í lok
messu.
Enskir jólasöngvar kl. 14.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Fyrsti
sunnudagur í aðventu á fullveldisdegi. Kordía
kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Una Har-
aldsdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Aðventu-
kvöld 1. des. kl. 18. Kveikt verður á ljósum að-
ventukransins og jólatrénu í kirkjunni. Kirkju-
kórinn, Sunnudagaskólabörn og Barnakór
Skagastrandar flytja falleg jólalög undir stjórn
Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur, organista og
kórstjóra, og Ástrósar Elísdóttur kórstjóra.
Fermingarbörn flytja helgileik.
Ástrós Elísdóttir segir okkur jólasögu og Bryn-
dís Valbjarnardóttir sóknarprestur flytur jóla-
hugleiðingu og friðarbæn á aðventu.
HRAFNISTA Hafnarfirði | Aðventumessa kl.
11 í Menningarsalnum. Jólahugvekju flytur
Sigrún Magnúsdóttir, þjóðfræðingur og fyrrver-
andi ráðherra. Ritningarlestur annast Kristín
Pálsdóttir, fyrrverandi kennari. Organisti er
Böðvar Magnússon. Hrafnistukórinn leiðir
sálmasöng. Sr. Svanhildur Blöndal þjónar fyrir
altari.
HRAFNISTA Reykjavík | Aðventumessa kl.
14 í samkomusalnum Helgafelli. Jólahugvekju
flytur Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður
Landssambands eldri borgara. Organisti er
Bjartur Logi Guðnason. Einsöngur Jóhanna
Ósk Valsdóttir. Félagar úr kór Áskirkju syngja.
Ritningarlestur: Kristín Guðjónsdóttir. Sr.
Svanhildur Blöndal þjónar fyrir altari.
HREPPHÓLAKIRKJA | Helgistund kl. 15
laugardaginn 30. nóv. í tengslum við ljós-
tendrun á leiðum í kirkjugarði. Kaffi á eftir.
HRUNAKIRKJA | Helgistund í tengslum við
ljóstendrun á leiðum í kirkjugarði kl. 14 laug-
ardaginn 30. nóv. Aðventukvöld 1. des. kl. 20.
Ræðumaður er Guðrún Hafsteinsdóttir, for-
maður Samtaka iðnaðarins. Söngur, jólasaga
og lestrar frá fermingarbörnum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Service. Translation into English.
Samkoma á spænsku kl. 13. Reuniónes en
español. Samkoma á ensku kl. 14. English
speaking service. Samkoma Fíló+ kl. 20.
ÍSLENSKA kirkjan í Svíþjóð | Gautaborg.
Aðventuhátíð verður sun. 1. des. kl. 14 í
Västra Frölundakirkju. Íslenski kórinn í Gauta-
borg syngur. Orgel og kórstjórn Lisa Fröberg.
Einsöng flytur Herbjörn Þórðarson. Barnakór-
inn syngur undir stjórn Ingiríðar og Ingibjargar.
Ingvar og Júlíus flytja tónlist. Hugleiðingu flytur
Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur og Ágúst
Einarsson stýrir dagskrá. Kirkjukaffi eftir guðs-
þjónustu þar sem Helga Soffía flytur ávarp og
svarar fyrirspurnum.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudaginn kl. 11
fáum við heimsókn í kirkjuna en Stoppleikhóp-
urinn kemur og flytur jólaleikritið Jólin hennar
Jóru.
Kvöldstund í boði fermingarbarna 1. des. kl.
20. Fermingarbörn sjá um dagskrá kvöldsins
ásamt góðum gesti. Jón Jósep Snæbjörnsson
flytur hugleiðingu og syngur með ferming-
arbörnunum okkar.
Miðvikudaginn 4. des. er kyrrðarstund í Kap-
ellu vonarinnar kl. 12. Njótum saman máltíðar
eftir stundina.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson
sóknarprestur þjónar. Sjö ára börn úr Kárs-
nesskóla syngja undir stjórn Þóru Marteins-
dóttur. Skátar færa Kópavogskirkju friðarljós
skáta. Jólaball í safnaðarheimilinu Borgum eft-
ir guðsþjónustuna.
LAUGARNESKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Ungmenni aðstoða við helgihald. Aðventu-
bíó kl. 2.
Aðventukvöld kl. 20. Félagar úr Skóla-
hljómsveit Austurbæjar og Kór Laugarneskirkju
flytja tónlist.
3.12. Kyrrðarbæn kl. 20. Húsið opnað kl. 19.40.
4.12. Foreldrasamvera milli 10 og 12.
Félagsmiðstöðin Dalbraut 18-20. Helgistund
með sr. Davíð Þór og Elísabetu organista.
5.12. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádeg-
isverður og opið hús á eftir.
Hásalurinn Hátúni 10. Helgistund með sr. Dav-
íð Þór og sr. Hjalta Jóni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Ragnheiður Jónsdóttir. Kór Lágafells-
sóknar syngur og leiðir almennan söng undir
stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista. Atli
Freyr Hjartarson leikur á gítar. Meðhjálpari er
Bryndís Böðvarsdóttir. Sunnudagaskóli kl. 13,
sjá nánar www.lagafellskirkja.is
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
og 6-9 ára starf kl. 11. Sr. Guðni Már ásamt
vöskum hópi sunnudagaskólakennara sjá um
stundina. Kveikt á fyrsta aðventukerti og söfn-
unarbaukum fyrir Hjálparstarf kirkjunnar dreift.
Kaffihúsamessa kl. 20. Tríóið Töfratónar leiðir
tónlistina en það skipa Helgi Hannesson á pí-
anó, Steinar Matthías Kristinsson á trompet og
söngkonan Kristín Birna Óðinsdóttir. Heitt
súkkulaði og smákökur á boðstólum. Sr. Guðni
Már Harðarson leiðir stundina og flytur hugleið-
ingu.
MIÐDALSKIRKJA í Laugardal | Aðventuhá-
tíð Miðdalssóknar verður í Héraðsskólanum
Laugarvatni sunnudagskvöld 1. desember kl.
19. Ræðumaður er Bergþóra Ragnarsdóttir
djáknakandídat.
Söngkór Miðdalskirkju og Kór Grunnskóla Blá-
skógabyggðar á Laugarvatni syngja aðventu- og
jólasálma. Fermingarbörn aðstoða við ljósa-
stund og fleira. Sr. Egill Hallgrímsson og sr.
Skírnir Garðarsson leiða stundina. Organisti og
kórstjóri er Jón Bjarnason.
NESKIRKJA | Hátíðarmessa og barnastarf kl.
11. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn
Þorsteins Freys Sigurðssonar ásamt Kór Nes-
kirkju. Stjórnandi og organisti er Steingrímur
Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
Söngur og gleði í barnastarfinu. Umsjón hafa
Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét Heba Atla-
dóttir og Ari Agnarsson. Kaffi, piparkökur og
randalínur að messu lokinni.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík |
Sunnudagaskólinn kl. 11 í safnaðarheimilinu í
umsjón Heiðars, Dísu, Regínu Rósu og Rakelar
Óskar.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum | Aðven-
tuhátíð í Árnesi sunnudag 1. des. kl. 15. Nem-
endur úr Þjórsárskóla syngja og leika, ferming-
arbörn lesa lestra, kirkjukórinn syngur.
Ræðumaður er sr. Kristján Björnsson vígslu-
biskup. Kaffi á eftir.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA |
Hátíðarmessa kl. 14 hinn 1. desember. Prest-
ur: Sigríður Gunnarsdóttir, organisti: Rögnvald-
ur Valbergsson, einsöngur Sigríður Margrét
Ingimarsdóttir. Kvenfélag Skarðshrepps býður
til kaffisamsætis eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Þið munið hann Þorlák – Skálholt á
kaþólskri tíð og lútherskri. Helgi Þorláksson, fv.
prófessor, talar.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sókn-
arprestur þjónar. Organisti kirkjunnar leikur.
Kammerkórinn syngur. Leiðtogar sjá um sunnu-
dagaskólann. Kaffiveitingar og samfélag eftir
athöfn í safnaðarheimilinu. Aðventukvöld kl.
20. Óttar Guðmundsson, geðlæknir, talar.
Barnakór Seltjarnarneskirkju syngur og Kamm-
erkórinn. Kaffiveitingar og samfélag í safn-
aðarheimilinu eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta 1. desember kl. 11. Berg-
þóra Ragnarsdóttir djáknakandídat annast
stundina en með henni verða Egill Hall-
grímsson sóknarprestur og Jón Bjarnason org-
anisti. Kveikt verður á fyrsta kertinu á
aðventukransinum. Söngur, sögur, bænir. Eftir
samveruna verður boðið upp á súpu og brauð í
Skálholtsskóla.
STÓRA NÚPSKIRKJA | Aðventuhátíð í Árnesi
1. des. kl. 15. Nemendur úr Þjórsárskóla
syngja og leika, fermingarbörn lesa lestra,
kirkjukórinn syngur. Ræðumaður er Kristján
Björnsson, vígslubiskup í Skálholti. Kaffi á eft-
ir.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Aðventumessa kl. 14.
Kirkjudagur kvenfélagsins. Kirkjukórinn, Söng-
sveitin Víkingar, Barnagospelkór Útskálakirkju,
forspil frá tónlistarskólanum. Basar kven-
félagsins eftir messu.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari ásamt
konum úr kvenfélagi Garðabæjar. Laufey Jó-
hannsdóttir flytur ávarp. Kór Vídalínskirkju
syngur og Jóhann Baldvinsson er organisti.
Sunnudagaskóli á sama tíma sem Matthildur
Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi leiðir ásamt fræð-
urum sunnudagaskólans. Messukaffi. Sjá
gardasokn.is.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Aðven-
tuhátíð kl. 17. Fjölbreytt dagskrá. Fram koma:
Regína Ósk söngkona, Kór Víðistaðasóknar,
Barnakór Víðistaðakirkju, Helga Þórdís Guð-
mundsdóttir.
Margrét Lilja Vilmundardóttir flytur hugleiðingu.
Fjáröflun kirkjukórs á eftir: Létt hlaðborð gegn
vægu gjaldi. Ath.! Ekki posi á staðnum.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta alt-
arisganga k. 11. Sr. Brynja Vigdís þjónar fyrir
altari og forsöngvarar kirkjukórsins leiða söng
undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar. Með-
hjálpari er Pétur Rúðrik Guðmundsson.
Orð dagsins: Innreið
Krists í Jerúsalem.
(Matt. 21)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Illugastaðakirkja í Fnjóskadal.
S IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S