Morgunblaðið - 30.11.2019, Síða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
✝ Gissur ÖrnGunnarsson
fæddist 31. maí
1973 í Reykjavík.
Hann lést 23. nóv-
ember 2019 eftir
stutt veikindi. For-
eldrar hans voru
þau Hulda Krist-
insdóttir, f. 28. maí
1950, d. 7. júlí 2017,
og Gunnar Levý
Gissurarson, f. 24.
ágúst 1949, d. 14. júlí 2010.
Systkini Gissurar eru Kristinn
Már, Anna Lilja og Eva Björk.
Árið 2010 kvæntist Gissur
Florentinu Fundãteanu, f. 8.12.
1975. Þau áttu engin börn.
Gissur ólst upp í Reykjavík.
Sjö ára gamall fluttist hann með
foreldrum sínum til Afríku þar
sem hann bjó til 11 ára aldurs.
Alla tíð frá því bjó hann í
Reykjavík. Gissur
stundaði nám í Fjöl-
brautaskólanum
við Ármúla. Gissur
tók meðal annars
þátt í Morfís-
keppni framhalds-
skóla fyrir skólann
sinn 2 ár í röð. Giss-
ur kom víða við á
starfsferli sínum en
síðustu ár rak hann
eigið fyrirtæki,
Mystical Iceland. Þar ferðaðist
Gissur með ferðamenn, sýndi og
talaði um Íslandið. Gissur var
virkur í starfi Pírata. Áhugamál
hans voru mörg. Hann vann
mikið að kvikmynda- og þátta-
gerð sem og ljósmyndun.
Útför Gissurar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
30. nóvember 2019, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Vitur kona líkti vinskap við
ferð með strætisvagni þar sem
fólk stígur upp í vagninn og
ferðast með manni um styttri eða
lengri veg, sumir staldra stutt við
en aðrir eru á sömu vegferð um
lengri spöl.
Við Gissur ferðuðumst saman
um langan veg og fögnuðum fyrr
á árinu 30 ára vegferð með góð-
um vinum. Ég gleymi aldrei þeg-
ar við kynntumst fyrsta skóla-
daginn í FÁ og mynduðum fljótt
náinn vinskap með skítahúmor
sem fáir skildu. Þrátt fyrir að lífið
leiddi okkur síðar í sitthvora átt-
ina héldum við alltaf sambandi og
þegar ég barðist seinna fyrir líf-
inu kom Gissur aftur inn í líf mitt
og minnti mig á samninginn sem
við höfðum gert sem unglingar
um að fylgja hvort öðru til leið-
arenda. Á erfiðum tímapunkti
þegar minni menn létu sig hverfa
endurnýjaði Gissur okkar gamla
vinskap og veitti mér mikilvægan
stuðning yfir hafið með bröndur-
um og skæpum.
Það var mér afskaplega dýr-
mætt og lýsandi fyrir karakter
hans að standa með vinum sínum
þegar á þurfti að halda.
Við störfuðum svo saman um
árabil í Pírötum, m.a. í stjórn Pí-
rata í Reykjavík og í fjölmiðlun-
arhópi flokksins og byrjuðum á
síðasta ári vinnslu á spennandi
margmiðlunarverkefni sem veik-
indin komu í veg fyrir að yrði að
veruleika.
Góður vinur er fallinn frá langt
fyrir aldur fram og það er tóm-
legt að hugsa til þess að eiga aldr-
ei aftur eftir að fá símtöl frá hon-
um úti að ganga með Buddah eða
milli dagskrárliða með misvitra
túrista. Ég verð honum ætíð
þakklát fyrir ferðalagið sem við
áttum saman og góðu samræð-
urnar við vagnstjórann.
Ég votta Flori og systkinum
hans djúpa samúð. Gissurar
verður minnst sem góðs vinar og
góðs drengs.
Þórlaug.
Í dag kveðjum við kæran
dreng sem í blóma lífsins féll fyr-
ir lítt þekktri og sjaldgæfri teg-
und heilaæxlis. Lífið er ekki alltaf
sanngjarnt. Í raun illskiljanlegt.
Illvígir sjúkdómar og ótímabær
dauðsföll hafa á skömmum tíma
höggvið stórt skarð í fjölskyldu
okkar.
Við kynntumst Gissuri vel á
uppvaxtarárum hans, sérstak-
lega á meðan fjölskyldur okkar
bjuggu í nokkur ár í Afríku. Strax
á þessum tíma komu hans
skemmtilegu eiginleikar í ljós.
Gissur var einstaklega ljúfur
drengur, alltaf kátur og mikill
grallari.
Hann hafði mikla réttlætis-
kennd og mátti ekkert aumt sjá.
Frásagnargáfa hans var með ein-
dæmum – hann hafði svo gaman
af að segja frá og húmorinn alltaf
á sínum stað. Hann gat endur-
sagt heilu kvikmyndirnar og
uppákomurnar – með sínum orð-
um, leikrænum tilburðum og
hugmyndaauðgi. Þetta varð oft
hin mesta skemmtun enda lítið til
skemmtunar í Tansaníu – ekkert
sjónvarp. Þá gilti oft sú stað-
reynd að góð saga mátti ekki líða
fyrir sannleikann.
Gissur var lífsglaður og hvar
sem hann kom stimplaði hann sig
inn og varð gjarnan miðpunktur
þar sem fólk kom saman. Hann
var í endalausum pælingum um
lífið og tilveruna og fylgdu þessir
eiginleikar honum ævina á enda.
Gissur var vel gefinn og víðlesinn
og krufði til mergjar þau mál sem
vöktu áhuga hans.
Mikil eftirsjá er að Gissuri en
mestur er þó missir þinn, elsku
Flori. Þú ert búin að standa eins
og klettur við hlið Gissa á meðan
hann var að berjast. Þið voruð
svo samrýnd og flott saman.
Hvernig þið hugsuðuð um Búdda.
Síðustu árin hittum við ykkur oft
í göngutúrum með hann.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur
til fjölskyldunnar, til þín elsku
Flori, til systkinanna Didda,
Önnu og Evu og fjölskyldna
þeirra og til ömmu Siggu.
Hvíl í friði, elsku Gissur.
Jónína og Bragi.
Við Gissi kynntumst í Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla árið
1991. Þar vorum við hópur af eð-
aldrengjum sem héldum hópinn
hvað mest næstu árin. Gissi, Jói,
Kalli, Olli og ég. Á næstu árum
vorum við óaðskiljanlegir. Öll
partíin hjá Kalla í Kúrlandinu,
útilegurnar og allt annað sem
okkur datt í hug að bralla saman.
Þar stendur trúlega hæst frábær
ferð sem við félagarnir fórum á
Þjóðhátíð árið 1992 og eru þær
ófáar sögurnar sem hafa fengið
að lifa frá þeirri ferð.
Við bjuggum saman í um tvö
ár á heimavistinni í Reykholti í
Borgarfirði. Áhuginn á skóla var
ekkert sérstaklega mikill hjá
okkur félögunum á þessum tíma
en í Reykholti fengum við að
prófa alls kyns áfanga sem ekki
voru í boði annars staðar. Gissur
hafði óbilandi áhuga á kvikmynd-
um og kvikmyndagerð. Gissi tók
alla áfanga sem í boði voru tengd-
ir því áhugamáli en þeir voru fjöl-
margir enda deildi skólastjórinn
Oddur Albertsson því áhugamáli
með Gissa. Við vorum líka virkir í
nemendaráði og stjórn skólans.
Gissa datt í hug að hella sér í
Herbalife og varð maður að sjálf-
sögðu að verða við því. Ætluðum
að verða ríkir á þeim viðskiptum.
Sumarið 1998 fórum við í ferð til
Parísar með Herbalife og voru
mamma, pabbi og Katrín systir
með í þessari ferð líka. Gissi sá
um að bóka gistingu fyrir okkur
öll saman og var þessi ferð eitt
stórt ævintýri sem við eigum öll
svo góðar minningar frá. Ég ætla
ekki að halda því fram að Herba-
life hafi gefið mikið af sér í aðra
hönd en reynslan var ómetanleg.
Ég fluttist til útlanda og eins
og gengur og gerist breytast
vinasambönd með tímanum.
Samband okkar Gissa var samt
alltaf þannig að við gátum ekki
talað saman í langan tíma en þeg-
ar símtalið kom var eins og við
hefðum talað saman síðast í gær.
Alltaf var stutt í gleðina og glens-
ið hjá okkur félögunum. Gamlir
tímar rifjaðir upp og nýir brand-
arar sagðir. Gissi kunni það betur
en flestir að segja sögur og koma
þeim skemmtilega frá sér.
Í vor kom í ljós að Gissur væri
veikur. Ekki var vitað fyrr en fyr-
ir stuttu hvað væri að hrjá hann.
Það skilur eftir sig stórt skarð í
hjartanu að þurfa að kveðja þig
allt of snemma. Þú varst sannur
vinur vina þinna og allir sem
þekktu þig bera þér vel söguna.
Ég veit að það er vel tekið á
móti þér í sumarlandinu en þín
verður sárt saknað.
Ég votta Flori, Evu, Önnu,
Didda og fjölskyldunni allri mína
dýpstu samúð á þessum erfiða
tíma.
Ást og friður.
Vilhelm Patrick Bernhöft.
En þó að augnablikið aldrei fylli stund
skaltu eiga við það mikilvægan fund
því að tár sem þerrað burt
aldrei nær að græða grund.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Þú veist að tímans köldu fjötra enginn
flýr
enginn frá hans löngu glímu aftur snýr.
Því skaltu fanga þessa stund
því fegurðin í henni býr.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Elsku Gissur.
Þetta textabrot, úr gullfallegu
lagi Braga Valdimars, talar sér-
staklega til mín við fráfall þitt.
Hjartað mitt er í molum og
hugurinn dofinn.
Ég kynntist þér fyrir þremur
árum og fór mér fljótt að þykja
afskaplega vænt um þig og vin-
áttu okkar. Ekki bara bjóstu yfir
miklum krafti og vilja til að gera
samfélagið okkar betra, heldur
hafðirðu dásamlegan húmor,
varst sérlega ljúfur drengur og
umfram allt bara afskaplega
skemmtilegur.
Þrjú ár eru ekki langur tími og
þykir mér því mjög sárt að missa
þig svona stuttu eftir að við
kynntumst, ég hafði hlakkað svo
mikið til framtíðarinnar. Ýmissa
uppákoma, samtala og samveru
með vinum okkar. Þú varst nefni-
lega vinamargur og áttir þína
æskuvini sem nú syrgja þig og
upplifa mikið tómarúm. Höggvið
hefur verið stórt skarð, skarð
sem verður ekki fyllt. Við munum
alltaf muna þig og geyma í hjört-
um okkar. Við munum líka passa
upp á Flori þína, sem þú elskaðir
svo heitt, enda voruð þið afskap-
lega töff og flott hjón.
Þrátt fyrir þennan sára missi
er ég á sama tíma mjög þakklát
fyrir þessi örfáu ár því að fé-
lagsskapurinn var svo frábær.
Þótt það hafi líka verið erfitt og
sárt að horfa upp á veikindin
ágerast og bíða svo með kvíða-
hnútinn í maganum eftir niður-
stöðu er ég mjög þakklát fyrir
það að þið Flori skylduð leyfa
okkur vinunum að vera með ykk-
ur.
En það verður að segjast að
það hefur verið verulega þung-
bært að fylgjast með Flori standa
sterk og öflug en á sama tíma
brotin, því þið voruð ung hjón
með alla framtíðina fyrir hönd-
um. Það er ekkert réttlæti í því
að núna þurfið þið að skiljast að.
Hún neyðist til þess að lifa áfram
án þín, sem og fjölskylda þín og
við vinirnir.
Þrátt fyrir að hafa vitað hvert
stefndi var það samt áfall þegar
Flori lét mig vita að nú væri glím-
unni við sjúkdóminn lokið. Hjart-
að sökk og höfuðið hneig niður í
bringu.
Við áttum frábærar stundir
saman og mun ég héðan í frá
ávallt minnast þín elsku Gissur,
þegar ég mæti á Karnival á
Klapparstíg eða hlusta á Tash
Sultana. Við vinir þínir munum
passa upp á Flori þína.
Takk fyrir að leyfa mér að vera
með ykkur og við hlið ykkar í bar-
áttunni. Það er mér dýrmætt þótt
það hafi líka verið erfitt og sárt.
Ég hefði ekki viljað missa af því.
Sérstaklega vil ég senda systk-
inum þínum innilegustu samúð-
arkveðjur, þau kveðja nú bróður
sinn en á undan hafa foreldrar
ykkar einnig farið allt of
snemma.
Elsku Flori, Kristinn Már,
Anna Lilja og Eva Björk, ég sam-
hryggist innilega.
Rannveig Ernudóttir.
Þegar ég flutti til Reykjavikur
utan af landi haustið 1988 óttaðist
ég að það gæti tekið langan tíma
að eignast nýja vini í Hlíðaskóla.
„Hver skyldi vilja vildi vingast
við sveitalúðann?“ hugsaði ég
með mér. En þetta reyndust
óþarfa áhyggjur. „Blessaður,
ertu að gera eitthvað um helgina?
Viltu kíkja með okkur á bíómynd-
ir?“ spurði smávaxinn bekkjar-
félagi minn sem ég hafði veitt at-
hygli fyrir að vera sérstaklega
klár og skemmtilegur. Þarna
hófst traust vinátta okkar Gissa.
Við áttum einstaklega gott skap
og húmor saman og tókum okkur
ekki of hátíðlega. Gissi dæmdi
engan. Við Gissi urðum bestu vin-
ir og fórum fljótlega að treysta
hvor öðrum fyrir persónulegum
málum. Stelpur dömpuðu okkur
og við dömpuðum stelpum en við
vorum alltaf til staðar hvor fyrir
annan til að ræða málin í þaula.
Gissa fannst gaman að koma
Gissur Örn
Gunnarsson
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
Okkar ástkæri
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
Ásgerði 6, Reyðarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi mánudaginn 18. nóvember.
Útför hans fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 3. desember klukkan 15.
Minningarathöfn verður haldin í Kópavogskirkju föstudaginn
6. desember klukkan 15.
Álfheiður Hjaltadóttir
Aðalheiður E. Kristjánsdóttir Björgvin Ingvason
Margrét Rósa Kristjánsdóttir Þórir Þórisson
Kolbrún Kristjánsdóttir Þórður Geir Jónasson
Lára Valdís Kristjánsdóttir Benedikt Gunnarsson
Kristján Óli Pascalsson Johanna Wagner
Anna Kristjánsdóttir
og fjölskyldur
Mamma, amma, systir,
ANNA SKÚLADÓTTIR
leikskólastjóri og ævintýramanneskja,
kvaddi 27. nóvember á fallegum og
sólríkum vetrardegi.
Minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju
5. desember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast Önnu
er bent á reikning Tears Children & Youth Aid samtakanna.
Banki: 525-26-431210 Kt. 431210-2070
Eirný Ósk Sigurðardóttir
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir Karen Emilía Woodrow
Þorsteinn Skúlason Ásdís Skúladóttir
fjölskyldur og ferfætlingar
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN BRAGI GUNNARSSON
húsasmíðameistari frá Nesi,
Hellu,
lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu
þriðjudaginn 26. nóvember.
Útförin fer fram frá Oddakirkju laugardaginn 14. desember
klukkan 13.
Unnur Þórðardóttir
Kristín Bragadóttir Bjarni Jónsson
Gunnar Bragason Helga Sigurðardóttir
Þórir Bragason Sigríður Jónsdóttir
Guðjón Bragason Guðný Ásta Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulega móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
EIRÍKA DAGBJÖRT HARALDSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
Norðurbrú 3,
210 Garðabæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar 19. nóvember á
Landspítalanum í Fossvogi.
Hún verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ 6. desember
klukkan 13.
Margrét Líndal Steinþórsd. Mogens Gunnar Mogensen
Þórarinn Líndal Steinþórs. Rut Erla Magnúsdóttir
Eiríkur Líndal Steinþórsson Telma Dögg Sigurbjartsdóttir
Steinþór, Helena, Magnús, Eyþór, Gunnar, Gabríella,
Sigurbjartur og Leona
Okkar ástkæri
HAFÞÓR VIÐAR GUNNARSSON
Stekkjartúni 17,
Akureyri,
lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut
23. nóvember. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 5. desember klukkan 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á blóðgjöf til Blóðbankans eða
Krabbameinsfélag Akureyrar.
Anna Björk Ívarsdóttir
Helgi Már, Ragnar Máni og Úlfar Logi Hafþórssynir
Guðrún Helgadóttir
Kristín Gunnarsdóttir
og fjölskyldur.