Morgunblaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
og heimsækja mig í stúdíóið þeg-
ar ég var útvarpsmaður á X-inu
og eftir eina kvöldvaktina rák-
umst við á geisladisk með pan-
flautuútgáfum af jólalögum. Við
vorum að leita að lögum til að
setja saman á safnspólu til að
taka með okkur í sumarbústað-
arferð en hlutirnir þróuðust í
aðra átt. Undir morgun vorum
við búnir að semja texta og
syngja inn á upptöku, okkar eigin
útgáfu af „12 dagar jóla“. Það
fjallaði um kærustu sem gaf kær-
astanum sínum 12 áfengisteg-
undir, eina á hverjum degi til jóla.
Ég setti upptökuna á kartspólu
og skildi hana eftir uppi í stúdíói
fyrir dagvaktina á X-inu til að
spila. Þetta ódýra grín varð allt
annað en okkur óraði fyrir og á
nokkrum klukkutímum varð „12
dagar jóla“ með Spírabræðum
eitt allra vinsælasta jólalag
landsins. Til eru óborganlegar
uppákomur þessu tengdar og við
létum undan þrýstingi um að
gefa út geisladisk, prýddan mis-
viturlegum textasmíðum að sjálf-
sögðu.
En svo leið tíminn og þó að
leiðir okkar Gissa hafi legið í ólík-
ar áttir eins og gengur og gerist
þá brá aldrei skugga á vináttu
okkar. Það lýsir sér best í því að
þegar upp komu áföll vorum við
bara einu símtali hvor frá öðrum
og við hittumst strax til að ræða
málin.
„Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur,“ er klisja, en
bara af því að hún er sönn.
Ósjaldan skiptumst við Gissi á
orðunum: „Tökum kaffibolla við
tækifæri.“ En við vitum aldrei
hvort það eru til fleiri kaffibollar.
Við Gissi höfðum ekki hist í lang-
an tíma þegar mér barst til eyrna
að eitthvað alvarlegt væri að hrjá
hann. Það voru ekki margir kaffi-
bollar eftir en ég var staðráðinn í
að nota þá alla. Ég ætlaði ekki að
bregðast vini mínum. Í hvert
skipti sem ég heimsótti Gissa
birti yfir honum og ég sá að heim-
sóknir mínar glöddu hann. Jafn-
vel þó að hann gleymdi þeim jafn-
óðum. Þetta á við um fleiri vini
Gissa sem stóðu með honum í
veikindum hans. Þegar leið á
haustið kom dómurinn. Ólækn-
andi heilaæxli. Ég er óendanlega
þakklátur fyrir að hafa fengið að
eiga þessar kveðjustundir með
Gissa. Það er ekki til verðmiði á
slíkar stundir.
Ég syrgi góðan æskuvin og
votta Flori, Kristni, Evu og Önnu
mína dýpstu samúð.
Hans Steinar Bjarnason.
Elsku vinur, takk fyrir allar
bíóferðirnar, takk fyrir alla bíl-
túrana, takk fyrir allan hláturinn,
takk fyrir öll vídeókvöldin, takk
fyrir alla göngutúrana og takk
fyrir að hafa alltaf verið til stað-
ar.
Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
„Ég hringi á morgun,“ ég hugsaði þá,
„svo hug minn fái hann skilið“,
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli’ okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég
gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
(Höf. ók. Þýð. Sig. Jónsson)
Elsku Flori, Anna, Eva, Diddi
og fjölskyldur, megi allar vættir
styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímum.
Minning um góðan vin lifir.
Hanna María Ásgrímsdóttir.
Fallinn er frá góður Pírati
langt fyrir aldur fram. Gissur
kom inn í starf Pírata árið 2014
og tók þátt í kosningabaráttunni
þá um vorið sem skilaði okkar
fyrsta manni inn í sveitarstjórn.
Hann var virkur í stjórn Pírata í
Reykjavík frá 2014 og gegndi
stöðu varaformanns PíR 2015-16.
Hann var alla tíð virkur í mál-
efnastarfi flokksins og lét sig
jafnréttis- og innflytjendamál
miklu varða, sem og réttindi fer-
fætlinga.
Gissur var hæfileikaríkur í
kvikmyndagerð og gegndi lykil-
hlutverki i fjölmiðlunarhópi Pí-
rata allt frá 2014 og var ábyrgð-
armaður hópsins síðustu árin.
Eftir hann liggja fjölmörg
verk í þágu Píratahreyfingarinn-
ar, en hann vann að og talsetti
t.d. þau myndbönd sem til eru um
grunnstefnu Pírata og tók upp
myndbandið um grunnstefnu Pí-
rata á táknmáli.
Í kosningabaráttu Pírata til al-
þingiskosninga 2016 átti Gissur
stóran þátt í því að við vorum
sýnileg og sá til dæmis um
myndatökur, myndbandsgerð og
fleira efni sem birtist frá Píröt-
um. Slíkt gerði hann ávallt í sjálf-
boðavinnu og lagði til sín eigin
tæki og verkfæri.
Hann gegndi lykilhlutverki í
framleiðslu á kvikmyndun og
myndvinnslu fyrir Pírata í gegn-
um tíðina og var til að mynda sá
sem tók upp og klippti myndbönd
Þórhildar Sunnu og Söru Óskars-
son fyrir sjónvarpsþættina
Strandhögg.
Hann vann að gerð ýmissa
stefnumála og tók virkan þátt í
málefnastarfi Pírata og var einn
stofnmeðlimur Frjálslyndis-
félags Pírata.
Hann veigraði sér ekki við að
taka að sér erfið verkefni og sat í
úrskurðarnefnd Pírata 2017 til
2018 þar sem hann gegndi sínu
starfi af kostgæfni.
Píratar þakka þér, vinur og fé-
lagi, samfylgdina. Færum Flori
hlýjar kveðjur.
Fyrir hönd Pírata,
Róbert Ingi Douglas.
Gissur litli bróðir minn gekk
frá okkur langt um tíma fram.
Hans er sárt saknað. Bróðir minn
var ótrúlega góður strákur. Per-
sóna sem aldrei gerði flugu mein
og leið best í umhverfi þar sem
allt var í sátt og samlyndi. Ég hef
lært mjög mikið af litla bróður í
gegnum árin. Gissur var þol-
inmóðasti og rólegasti maður
sem ég hef kynnst. Hann var
mjög nægjusamur og ánægður
með það sem hann hafði í lífinu.
Ég held ég hafi aldrei heyrt bróð-
ur minn tala illa um nokkurn
mann, og ef ég kvartaði yfir ein-
hverjum sjálfur reyndi hann
ávallt að benda á góðu hliðarnar.
Hann fann alltaf einhverja sam-
leið með þeim sem hann hitti og
var algjörlega laus við alla for-
dóma. Það var ekki korn af öfund
í fari bróður míns og honum
fannst hann aldrei hafa farið á
mis við eitthvað í lífinu. Bróðir
minn var þakklátur einstaklingur
og fullur af kærleik.
Líf bróður míns varð algjör-
lega heilt eftir hann hitti eigin-
konu sína Flori fyrir 15 árum.
Hún varð mjög fljótt að hans
betri helmingi og þau voru óað-
skiljanleg þar til hann kvaddi
þennan heim fyrir nokkrum dög-
um. Hún var alltaf við hlið hans
og þau fullkomnuðu hvort annað.
Þau áttu saman ótrúlega fallegt
hjónaband og gáfu hvort öðru
það sem þau þurftu. Þegar Giss-
ur kvaddi þennan heim var hann
á þeim stað í lífinu sem hann vildi
vera á. Hann var í þeirri vinnu
sem hann dreymdi um. Að keyra
erlenda ferðamenn um landið og
segja sögur af landi og þjóð. Í því
starfi hitti hann margt mismun-
andi fólk og átti spennandi sam-
ræður við áhugaverðar persónur
úr öllum heimshornum. Hann
elskaði þetta starf. Gissur hafði
það fjárhagslega öryggi sem
hann þurfti. Hann var giftur
þeirri konu sem hann óskaði sér
og hafði nægan tíma til að sinna
öllum sínum áhugamálum. Hann
sagði sjálfur rétt áður en hann
veiktist: nú er flest eins og það á
að vera.
Gissur var með sterka réttlæt-
iskennd alveg frá barnæsku.
Hann bjó í Afríku frá 7 til 10 ára
aldurs og gat ekki skilið að börn
annars staðar í heiminum þyrftu
að líða hungur. Það var honum
óskiljanlegt að lönd skyldu heyja
stríð. Spilling og græðgi hjá fyr-
irtækjum og stjórnmálamönnum
gerðu hann dapran og hann lagði
sitt af mörkum til gera heiminn
örlítið betri.
Kristinn Már Gunnarsson.
Besti vinur minn til ansi
margra ára, Gissur Gunnarsson,
lést úr krabbameini laugardag-
inn 23. nóvember 2019.
Maður heldur í einfeldni sinni
að svona lagað gerist ekki en því
miður er lífið ekki alltaf svo sann-
gjarnt. Gissur kvaddi allt of
snemma. Hann var alltaf fyndni
strákurinn og með geggjað hug-
myndaflug, það breyttist ekkert
frá því við vorum smákrakkar
þangað til núna.
Við kynntumst þegar við vor-
um litlir leikskólapollar. Gissur
bjó í götunni fyrir ofan mig og við
ásamt fleirum úr frábærum hópi
krakka úr Fossvoginum lékum
okkur mikið saman.
Við áttum djúp og góð samtöl
og bollaleggingar um heimsyfir-
ráð, samfélagsmál, stefnumótum
í pólitík, kvikmyndir, tónlist og
grínatriði sem við bulluðum upp
úr okkur.
Við ræddum lífið, vinina,
ákvarðanir, fjölskyldurnar okk-
ar, atburði og hugmyndir og í
raun allt á milli himins og jarðar
yfir misgóðum kaffibollum á hin-
um og þessum kaffihúsum bæj-
arins, eða við eldhúsborðið hjá
honum. Gæði bollans skipta engu
þegar félagsskapurinn er góður.
Við kynnumst þegar pönkið
var að koma til Íslands. Fyrsta
Star Wars-myndin var að koma.
Elvis var líklega enn á lífi þá, svo
langt síðan er það. Við héldum
vináttunni alla tíð. Stundum leið
aðeins á milli þess að við hitt-
umst, en gegnum árin höfum við
talað mikið saman og undanfarna
tvo áratugi næstum því, oft í viku
og jafnvel daglega.
Af mínum vinum var hann sá
sem ég talaði mest við og ég hitti
oftast, þannig að tómarúmið í
mínu lífi er mikið.
Í mjög stuttu máli þá gerði
hann mig að betri manni með því
að sýna mér í verki hvernig á að
horfa á hlutina frá ákveðnum
sjónarhornum. Best var hinsveg-
ar þegar hann datt í gírinn við að
æfa á mér uppistandsrútínur og
segja mér frá hugmyndum að
góðu gríni og hóf að reyta af sér
brandara og sögur, þá var hann
upp á sitt allra besta.
Við áttum það til að nördast
talsvert og höfðum gaman af Star
Wars og þannig bíómyndum. Ein
lítil en skemmtileg minning er að
þegar Gissur flutti heim frá Afr-
íku í kringum 1983, þar sem hann
bjó sem krakki í nokkur ár, þá sá
hann myndina Return of the Jedi
í London. Hann kom heim með
upplýsingar um myndina sem
enginn vissi hér. Grænt geisla-
sverð, keisarinn og það allt. Þetta
var algert gull fyrir okkur vinina í
Fossvoginum, enda á kafi í Star
Wars-pælingum þegar við vorum
9-10 ára gamlir. Við lifðum á
þessu lengi. Svo þegar hann kom
til mín í heimsókn í síðasta skipti
snemma í sumar ræddum við vini
okkar, lífið, veikindin hans og enn
og aftur Star Wars. Mér þykir af-
ar vænt um að 35 árum síðar vor-
um við enn að vandræðast með
Star Wars.
Við gerðum allt sem litlir
strákar eiga að gera og þegar við
stækkuðum gerðum við allt sem
ungir menn eiga að gera og ekki
að gera.
Meira en 40 ár af vináttu og nú
er Gissi farinn.
Mitt líf er ríkara eftir að hafa
gengið lífsins veg með honum og
er nú fátækara þegar hann er
ekki lengur hér til að ganga með
mér restina af vegferðinni.
Hans ferð liggur núna um aðr-
ar slóðir en mín.
Snorri Kristjánsson.
Innilega þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SVEINS GÚSTAVSSONAR
viðskiptafræðings,
áður til heimilis að Reynigrund 65,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Vífilsstaða og
hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir góða umönnun.
Erla Ingólfsdóttir
Dagbjört Halla Sveinsdóttir Þórhallur Örn Guðlaugsson
Anna Sveinsdóttir Magnús Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
STEFÁNS ÓLAFS GÍSLASONAR,
fv. flugstjóra,
Sléttuvegi 11, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk 2B á Eir.
Elísabet Þórarinsdóttir
Þórarinn Örn Stefánsson Piya Damalee
Gísli Stefánsson Hulda Arndís Jóhannesdóttir
Rósa Stefánsdóttir Óskar S. Jóhannesson
Erna Stefánsdóttir Axel Skúlason
barnabörn og langafabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýju vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GRÉTU JÓNSDÓTTUR,
Reynimel 50, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir einstaka umönnun og
hlýtt viðmót.
Sigurður Erling Baldursson
Þuríður Ellisif Baldursdóttir Jóhann S. Erlendsson
Ingi Þór Vöggsson
Baldur og Freyr Jónssynir
Baldur Erling, Margeir Jón, María Sif og Hulda Hrönn
Sigurðarbörn
Arnar Páll og Jóhann Baldur Jóhannssynir
og langömmubörn
Þökkum hlýhug og samúð vegna andláts
og útfarar ástkærrar móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SUMARRÓSAR GARÐARSDÓTTUR
prestsfrúar frá Akureyri.
Jóhanna Erla, Birgir Snæbjörn
og fjölskyldur
Þökkum af alhug samúð og hlýhug við
andlát og útför ástsæls eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR STEINARS KETILSSONAR,
fv. skipherra.
Sólveig Baldursdóttir
Baldur Óli Sigurðsson Hildur A. Ármannsdóttir
Ketill Sigurðsson
Daníel Freyr, Brynhildur Katla,
Hrafnhildur Irma og Ármann Steinar.
Faðir minn,
JÓN ÞÓRISSON
frá Baldursheimi,
Vaðlatúni 28, Akureyri,
sem lést föstudaginn 22. nóvember, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
6. desember klukkan 13.30.
Sigurður Jónsson
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát