Morgunblaðið - 30.11.2019, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
50 ára Inga ólst upp í
Mosfellsbæ og Reykja-
vík og býr í Vestur-
bænum. Hún er með
BA í ensku og MS í
mannauðsstjórnun frá
HÍ og er ráðgjafi hjá
Advania.
Maki: Hreiðar Þór Björnsson, f. 1968,
kvikmyndatökumaður.
Börn: Hilmir, f. 2000, og Edda, f. 2009,
Hreiðarsbörn.
Foreldrar: Þórarinn Guðnason, f. 1943,
kvikmyndatökumaður, og Anna Ey-
mundsdóttir, f. 1944, sérkennari. Þau eru
bús. í Reykjavík.
Inga Sigrún
Þórarinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Viðvarandi jákvæðni á eftir að
færa þér allt sem þú óskar þér. Samræð-
ur við vin reynast heilladrjúgar og gef-
andi.
20. apríl - 20. maí
Naut Hluti af þér er að hugsa um fram-
tíð sambands þegar þú tekur ákvarðanir.
Gerðu ekki upp á milli barnanna þinna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Taktu ekki allt bókstaflega sem
þú heyrir. Gættu þess að halda utan um
þína nánustu eins og þeir gera um þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allir mega gera mistök, og þín
eru ekki jafn stór og þú ímyndar þér.
Dæmdu þig mildilega og haltu svo áfram
með líf þitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Á þessu tímabili í lífi þínu færðu
tækifæri til að gera hluti sem þig hefur
lengi langað til að gera. Ekki taka neinu
sem gefnu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Farðu vel yfir allar peningafærslur
í dag og gættu þess að týna hvorki vesk-
inu né töskunni. Oftast breytir það engu
að hafa áhyggjur fyrirfram.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú vilt ekki staðna og sitja eftir,
verður þú að vera opin/n fyrir þeim
möguleikum sem bjóðast til endurmennt-
unar. Þú verður vitni að rifrildi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að nota daginn til
að ræða um það sem þér liggur á hjarta.
Fáðu útrás fyrir orkuna og farðu út að
hlaupa eða í göngutúr.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hugsaðu vel um fjármál þín,
þú munt þurfa að leggja fram dágóða
upphæð í byrjun næsta árs. Fólk hefur
rétt á sínum skoðunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er eitthvað sem er að
glepja þig þessa dagana en þú verður að
taka á honum stóra þínum og sinna þín-
um störfum. Reyndu að vera jákvæð/ur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leyfðu vinum þínum að sýna
þér þakklæti fyrir það sem þú hefur gert
fyrir þá. Þú hittir framtíðarmaka þinn
innan skamms.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú verður að fresta einhverjum af
þeim mörgu hlutum sem eru á dagskrá
hjá þér. Njóttu þess að slaka á og borða
góðan mat.
Verkefnastjórnun 1984-1986 og
1989-1990, Byggingastaðlaráðs
1988-1992, í sóknarnefnd Digranes-
sóknar 1989-1995, Senati verk-
fræðideildar HÍ 1993-1998, bygg-
ingarnefnd Kópavogsbæjar 2002--
2005. Jónas hlaut heiðursverðlaun
stjórn Hjúkrunarheimilisins
Sunnuhlíðar 1979-1995, í orðanefnd
BVFÍ 1980-1994, í stjórn Lions-
klúbbs Kópavogs 1980-1981 og
1984-1985, Verktakasambands Ís-
lands 1983-1988, Verkfræðinga-
félags Íslands 1984-1986, félagsins
J
ónas Frímannsson er
fæddur 30. nóvember
1934 á Strönd á Rangár-
völlum og alinn þar upp
fram yfir fermingu. „Á
þessum árum voru Rangárvellirnir
að mestu svartur sandur, vegna
aldalangs ágangs frá eldfjallinu
Heklu. Í dag er þetta gjörbreytt.
Landgræðslan, sem áður hét Sand-
græðslan, hefur snúið vörn í sókn
og sveitin er nú með þeim gróður-
sælli á landinu.“
Jónas gekk í Menntaskólann í
Reykjavík, varð stúdent 1954. Síð-
an lá leiðin í Háskóla Íslands og Í
Danmarks Tekniske Höjskole, þar
sem tekið var próf í byggingar-
verkfræði 1960.
Jónas var verkfræðingur hjá
Ramböll & Hannemann í Kaup-
mannahöfn 1960-1963 við hönnun
húsa, hjá Schwartzlose og Kofoed
1963-1965 við hönnun brúa, hjá Al-
menna byggingafélaginu í Reykja-
vík 1965-1966 við hönnun húsa og
hjá Fosskraft sf. 1966-1970 við
byggingu Búrfellsvirkjunar. Hann
stofnaði Ístak hf. ásamt fleirum
1970 og starfaði þar við ýmis verk-
efni til 2004, síðari hluta tímabils-
ins sem staðgengill framkvæmda-
stjóra. Ístak hefur verið eitt
stærsta verktakafyrirtæki landsins
og þegar mest var störfuðu um 800
manns hjá fyrirtækinu.
„Ístak byrjaði á því að vinna
miðlunarframkvæmdir í Þórisvatni
og við unnum síðan margar virkj-
anir fyrir Landsvirkjun. Hafn-
argerð var töluverður þáttur hjá
okkur og vegagerð. Ég var yf-
irmaður tæknideildar áður en ég
varð staðgengill framkvæmda-
stjóra og þar sáum við um hönn-
unarverkefni. Við fluttum inn mikið
af tækniþekkingu, til dæmis þegar
við gerðum Hvalfjarðargöngin og
Vestfjarðagöngin en það var gert í
samvinnu við sænskt fyrirtæki sem
hjálpaði okkur með tæknilegu hlið-
ina. Síðustu árin vorum við með
mörg verkefni í Noregi, bæði vega-
gerð og göng. Svo má líka nefna að
við byggðum Ráðhús Reykjavíkur
sem var virðulegt verkefni.“
Jónas sat í byggingarnefnd og
Steinsteypufélags Íslands 1992 og
heiðursmerki Verkfræðingafélags
Íslands 2005.
Jónas hefur ánægju af að stunda
göngur og sund, lestri góðra bóka
svo og ferðalög jafnt innanlands
sem erlendis. Hann er einmitt
staddur erlendis ásamt konu sinni,
þau gistu í nótt í Regensburg í
Þýskalandi og verða í Nürnberg í
dag, á afmælisdeginum.
Fjölskylda
Eiginkona Jónasar er Kristín
Líndal, f. 29.10. 1945, grunnskóla-
kennari. Foreldrar hennar voru
hjónin Áslaug Katrín Öster Líndal
og Jósafat Jónatansson Líndal
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Kópa-
vogs. Þau gengu í hjónaband 7.8.
1999 og eru búsett í Kópavogi.
Fyrri eiginkona Jónasar frá 3.8.
1963 er Margrét Loftsdóttir, f.
27.4. 1942, bókasafnsfræðingur.
Foreldrar hennar voru hjónin
Hanna S. Möller og Loftur G.
Jónsson kaupfélagsstjóri. Jónas og
Margrét skildu.
Börn Jónasar og Margrétar eru
1) Loftur Eðvald, f. 3.9. 1963, raf-
tæknifræðingur, stjórnandi á sviði
fjarskipta og flugleiðsögu hjá Al-
þjóðaflugmálastofnun í Montréal,
búsettur þar. Maki I: Ann Birgit
Jónas Frímannsson byggingarverkfræðingur – 85 ára
Bekkjarfélagar Útskriftarárgangur MR 1954 í Skotlandi í september 2017. Jónas og Kristín eru lengst til vinstri.
Einn af stofnendum Ístaks
Hjónin Kristín og Jónas stödd í Kappadókíu í Tyrklandi árið 2007.
40 ára Sigursteinn
ólst upp á Blönduósi
en býr í Kópavogi.
Hann er viðskipta-
fræðingur frá HÍ og
vinnur við birgða-
stjórnun hjá Johan
Rönning.
Maki: Elísabet Stefánsdóttir, f. 1977, BS í
sálfræði og er hópstjóri hjá Gallup.
Börn: Sebastian, f. 2007, Davíð Kári, f.
2011, og Sara Svanhvít, f. 2013.
Foreldrar: Rúnar Þór Ingvarsson, f.
1950, atvinnumaður í golfi, og Rósa
Margrét Sigursteinsdóttir, f. 1955, leið-
sögumaður. Þau eru búsett á Selfossi.
Sigursteinn Ingvar
Rúnarsson
Til hamingju með daginn
Eiður Th. Gunnlaugsson eða Addi járnamaður, eigandi Bindivírs
ehf., er sextugur í dag, 30. nóvember. Addi gat sér snemma gott
orð sem járnamaður og hefur þótt sá allra flinkasti sem slíkur á Ís-
landi frá því að kennari hans lést fyrir nokkrum árum. Addi verður
við vinnu á afmælisdaginn, en ekki hvað?
Árnað heilla
60 ára
Steinn Ingi Kjartansson frá Eyrardal, Súðavík, verður 70 ára á
morgun, 1. desember. Steinn var sveitarstjóri, sparisjóðsstjóri hjá
Sparisjóði Vestfjarða og síðan aðstoðarútibússtjóri hjá Landsbanka
Íslands á Ísafirði. Steinn er búsettur á Akranesi. Börn hans eru Davíð
f. 1969, Snorri Pétur, f. 1970, Erna Rut, f. 1979 og Arnar Freyr, f. 1981.
Eiginkona hans var Helen Drög Hjaltadóttir, f. 18.6. 1950, d. 1.10. 2000. Núverandi
eiginkona er Rósa Ólafsdóttir.
70 ára