Morgunblaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Þýskaland
Leverkusen – Wolfsburg ........................ 0:7
Sandra María Jessen lék síðari hálfleik-
inn með Leverkusen.
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn með Wolfsburg.
England
Brighton – Reading................................. 2:2
Rakel Hönnudóttir var ekki í leikmanna-
hópi Reading.
B-deild:
Swansea – Fulham ................................... 1:2
Pólland
Zaglebie Lubin – Górnik Zabrze ........... 2:0
Adam Örn Arnarson var ekki í leik-
mannahópi GZ.
Danmörk
Lyngby – Nordsjælland .......................... 1:1
Frederik Schram var varamarkvörður hjá
Lyngby.
Ítalía
B-deild:
Cozensa – Spezia ..................................... 1:1
Sveinn Aron Guðjohnsen lék fyrstu 87
mínúturnar fyrir Spezia.
Frakkland
B-deild:
Lorient – Grenoble .................................. 2:1
Kristófer Ingi Kristinsson var á vara-
mannabekk Grenoble.
Holland
B-deild:
Roda – Excelsior...................................... 1:4
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior og lagði upp mark.
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Austurberg: ÍR – Fjölnir ....................... L16
Framhús: Fram – Valur.................... L16.30
Kórinn: HK – Haukar ....................... L18.15
KA-heimilið: KA – Afturelding.............. S17
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Origo-höllin: Valur – Haukar ........... L13.30
Framhús: Fram – Afturelding .............. L14
Kórinn: HK – KA/Þór ............................ L16
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – Víkingur.................... L14
Dalhús: Fjölnir – Valur U...................... L18
Kórinn: HK U – Fram U ........................ S16
Hleðsluhöllin: Selfoss – Stjarnan U . S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Smárinn: Breiðablik – Keflavík ............. S16
Origo-höllin: Valur – KR ........................ S17
Borgarnes: Skallagrímur – Snæfell ...... S18
Ásvellir: Haukar – Grindavík............ S19.15
1. deild kvenna:
Dalhús: Fjölnir – Njarðvík .................... L16
Sauðárkr.: Tindastóll – Grindavík b ..... L18
Sauðárkr.: Tindastóll – Grindavík b...... S13
SKAUTAR
Íslandsmeistaramót SSÍ fer fram í Skauta-
höllinni í Laugardal um helgina. Úrslit ráð-
ast á morgun þegar keppt er til úrslita í
helstu flokkum kl. 13 til 14.35.
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – Reykjavík ..................... L19
Enski boltinn á Síminn Sport
Newcastle – Manchester City .......... L12.30
Liverpool – Brighton.............................. L15
Southampton – Watford.................... L17.30
Norwich – Arsenal .................................. S14
Leicester – Everton........................... S16.30
UM HELGINA!
Dominos-deild karla
Keflavík – Fjölnir ............................... 109:98
Stjarnan – KR..................................... 110:67
Staðan:
Keflavík 9 7 2 806:754 14
Tindastóll 9 7 2 787:731 14
Stjarnan 9 7 2 837:756 14
Njarðvík 9 5 4 743:654 10
KR 9 5 4 739:740 10
Haukar 9 5 4 804:773 10
ÍR 9 5 4 753:770 10
Þór Þ. 9 4 5 710:733 8
Grindavik 9 4 5 768:777 8
Valur 9 3 6 728:776 6
Fjölnir 9 1 8 776:845 2
Þór Ak. 9 1 8 707:849 2
1. deild karla
Hamar – Sindri ..................................... 99:96
Selfoss – Breiðablik.............................. 76:93
Vestri – Snæfell .................................... 95:77
Staðan:
Þór Ak. 9 7 2 0 277:242 16
Valur U 9 6 1 2 273:250 13
Haukar U 9 6 1 2 266:233 13
Grótta 9 6 0 3 264:255 12
Þróttur 9 3 2 4 269:263 8
KA U 9 4 0 5 271:270 8
FH U 9 4 0 5 266:272 8
Víkingur 9 2 1 6 233:248 5
Fjölnir U 9 2 0 7 228:252 4
Stjarnan U 9 1 1 7 220:282 3
KÖRFUBOLTI
UNGSTIRNI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Einn eftirsóttasti knattspyrnumað-
ur í Evrópu um þessar mundir er
19 ára gamall Norðmaður. Erling
Braut Håland hefur slegið í gegn
hjá austurríska liðinu Salzburg og
er á radarnum hjá mörgum stórlið-
um.
Jesse March, knattspyrnustjóri
Salzburg, tjáði sig um sóknar-
manninn í viðtali við CNN og á
honum má heyra að hann bindur
ekki miklar vonir við að geta haldið
Norðmanninum hjá félaginu lengur
en fram á sumar.
„Við erum vongóðir um að Er-
ling muni ljúka tímabilinu hérna og
muni um leið halda áfram að vaxa
og dafna,“ sagði March.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Norðmaðurinn skorað 28 mörk í 24
leikjum fyrir Salzburg frá því að
hann gekk í raðir félagsins í janúar
á þessu ári frá Molde. Håland hef-
ur vakið athygli fyrir markaskorun
á ýmsum vettvangi og skoraði til að
mynda níu mörk í landsleik gegn
Hondúras fyrir U20 ára lið Noregs.
Ekki var þó um handboltaleik að
ræða heldur knattspyrnuleik, sem
Noregur vann 12:0. Mesta afrek
Norðmannsins hingað til kom í
Meistaradeild Evrópu í vetur þegar
hann skoraði þrennu í fyrsta leik
sínum í keppninni. Salzburg burst-
aði þá Genk 6:2. Hefur hann skorað
átta mörk í fyrstu fimm leikjum sín-
um í Meistaradeildinni og það hefur
enginn annar afrekað frá því að
keppninni var breytt úr Evrópu-
keppni meistaraliða í Meistaradeild
Evrópu.
Alls ekki eigingjarn
Sóknarmaðurinn ungi er þó allt
annað en eigingjarn upp við mark
andstæðinganna ef marka má
knattspyrnustjórann. „Hann gæti
orðið alveg hrikalega góður leik-
maður. En það er ekki einungis
vegna hæfileikanna heldur einnig
vegna þess hvaða mann hann hefur
að geyma. Ég hef ekki enn séð neitt
sem líkist eigingirni hjá honum frá
því ég hóf að vinna með honum fyr-
ir hálfu ári. Um tíma bauð hann
samherjum sínum að taka víta-
spyrnur því honum fannst jákvætt
að dreifa markaskorun í liðinu. Ég
þurfti að grípa inn í og fyrirskipa að
Erling tæki vítaspyrnurnar fyrir
okkur,“ segir March.
Salzburg, heimabær tónskáldsins
Wolfgangs Amadeus Mozart, virð-
ist vera ágætur staður fyrir
hæfileikaríka menn til að koma sér
á framfæri. Sadio Mané, sem nú
blómstrar hjá Liverpool, var hjá
Salzburg en einnig þeir Valentino
Lazario hjá Inter, Martin Hinte-
regger hjá Eintracht Frankfurt og
Dominik Szoboszlai hjá RB Leip-
zig. Þess má geta til fróðleiks að
Andri Sigþórsson skoraði 16 mörk
fyrir Salzburg í upphafi aldarinnar.
Aftur til Englands?
Leipzig og Liverpool eru einmitt
bæði nefnd til sögunnar í hópi fé-
laga sem sögð eru hafa áhuga á að
klófesta Norðmanninn unga. Man-
chester United og Arsenal hafa
einnig verið nefnd til sögunnar.
Þykir mörgum líklegt að Håland
muni fara snemma á ferlinum til
Englands. Þar er hann fæddur, en
faðir hans, Alf Inge Håland, lék þá
með Leeds. Håland er það ungur
að árum að ferill hans með norska
A-landsliðinu er rétt að hefjast en
þar heldur styrkum höndum um
stjórnartaumana Lars nokkur
Lagerbäck. Hefur Håland leikið
tvo A-landsleiki til þessa. Hver
veit nema sóknarmaðurinn ungi
muni stela senunni þegar Noregur
leikur í umspilinu fyrir EM í
mars.
„Hann gæti
orðið hrika-
lega góður“
Erling Braut Håland er 19 ára norsk
markamaskína sem stórliðin horfa til
AFP
Markaskorari Erling Braut Håland fagnar einu marka sinna ásamt sam-
herja sínum hjá Salzburg, japanska framherjanum Takumi Minamino.
Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson
freistar þess að vinna heims-
meistaratitilinn í handknattleik
kvenna í þriðja sinn sem þjálfari
Noregs, en heimsmeistaramótið
hefst í Japan í dag. Norðmenn mæta
Kúbu í fyrstu umferðinni, en norska
liðið varð heimsmeistari undir stjórn
Þóris árin 2011 og 2015 og hafnaði í
öðru sæti á síðasta móti, 2017, eftir
úrslitaleik við Frakka. Hin liðin í
riðli Noregs eru Holland, Serbía,
Slóvenía og Angóla en þrjú efstu lið-
in komast í milliriðla mótsins. Þátt-
tökuliðin eru 24 talsins. vs@mbl.is
Nær Þórir í þriðja
HM-titilinn?
AFP
Sigursæll Þórir Hergeirsson gefur
Noru Mörk fyrirmæli á stórmóti.
Sara Björk Gunnarsdóttir og liðs-
félagar hennar skelltu Leverkusen
7:0 í þýsku 1. deildinni í gær.
Danska landsliðskonan Pernille
Harder skoraði þrennu í leiknum.
Sandra María Jessen kom inn á
fyrir Giönnu Rackow í liði Lever-
kusen og lék síðari hálfleikinn en
Sara lék allan leikinn.
Wolfsburg er í efsta sæti þýsku
úrvalsdeildarinnar með 31 stig af
33 mögulegum. Hoffenheim er í
öðru sæti með 25 stig en á leik til
góða. Leverkusen er í 9. sæti með
sjö stig en tólf lið eru í deildinni.
Wolfsburg fór illa
með Leverkusen
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Þýskaland Sandra María og Sara
Björk mættust í gær.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
verður ekki eitt þeirra liða sem taka
þátt í Algarve-bikarnum, sterku
boðsmóti sem Ísland hefur tekið
þátt í allar götur síðan 2007. Íslandi
var ekki boðið að vera með á mótinu
á næsta ári en það fer fram í byrjun
mars. Leikmenn fá frí frá sínum fé-
lagsliðum á þessum tíma til að fara í
landsliðsverkefni og þjálfarinn Jón
Þór Hauksson segir að landsliðið
muni einfaldlega finna sér önnur
verkefni.
„Við munum alltaf nota þennan
tíma til að spila einhverja leiki. Okk-
ur hefur verið boðið á önnur æfinga-
mót og ekki víst að úr verði stórkost-
leg breyting fyrir okkur.
Algarve-bikarinn hefur verið að
breytast og ár frá ári hefur liðum
fækkað á mótinu. Þetta slær okkur
því ekki út af laginu þótt Algarve sé
fínn staður til að æfa og spila. Mörg í
hópnum hafa komið þangað ár eftir
ár. Bæði leikmenn og fólk í starfslið-
inu. Ég held að þetta sé fínasti tíma-
punktur til að hrista upp í þessu og
breyta til. Þetta er því ekki alvarlegt
í stóra samhenginu. Á næsta ári ætl-
um við að ná okkar markmiðum í
undankeppni EM og þetta setur
ekki mikið strik í reikninginn,“ sagði
Jón Þór þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær.
Gætu farið til Kýpur
KSÍ bárust tíðindin um síðustu
helgi en landsliðsþjálfarinn segir að í
þeirra herbúðum hafi fólk fengið á
tilfinninguna að boðskortið kæmi
ekki frá Algarve þetta árið. Íslandi
hefur hins vegar verið boðið á mót á
Kýpur sem iðulega er haldið á sama
tíma. Um mánuði síðar á Ísland
næstu leiki í undankeppni EM.
„Við fengum þessar fréttir um síð-
ustu helgi. Þá barst loksins svar frá
mótshöldurum og við vorum farin að
pressa stíft eftir svörum frá þeim.
Nokkuð er síðan við vildum fara að
gera áætlanir varðandi hótel og ann-
að. Skipulagningin í kringum mótið
hefur yfirleitt verið fyrr á ferðinni
og því voru farnar að renna á okkur
tvær grímur. Vinnan við að finna
vináttuleiki fyrir okkur er komin í
gang. Sem dæmi þá er einnig
æfingamót á Kýpur og okkur er boð-
ið þangað. Við erum að fara yfir
stöðuna og notum næstu vikur til að
ákveða hvort við förum á mót eða
spilum staka leiki erlendis,“ sagði
Jón Þór ennfremur. kris@mbl.is
Ekki boðið til Algarve
Löng hefð rofin Ekkert áhyggjuefni að sögn landsliðsþjálfarans
AFP
Í Portúgal Glódís Perla Viggósdótt-
ir í leik gegn Japan á Algarve.