Morgunblaðið - 30.11.2019, Síða 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Stjarnan – ÍBV ..................................... 31:25
Staðan:
Haukar 11 8 3 0 305:276 19
Afturelding 11 8 1 2 306:282 17
Selfoss 11 7 1 3 338:328 15
FH 11 6 2 3 310:295 14
ÍR 11 6 2 3 328:305 14
ÍBV 12 6 1 5 335:320 13
Valur 11 6 1 4 289:257 13
KA 11 4 1 6 304:317 9
Stjarnan 12 2 4 6 308:326 8
Fram 11 3 1 7 273:289 7
Fjölnir 11 2 1 8 280:328 5
HK 11 0 0 11 268:321 0
Grill 66 deild karla
Haukar U – Víkingur ........................... 31:29
Valur U – KA U .................................... 37:21
Þór Ak. – Þróttur.................................. 36:26
Grótta – FH U ...................................... 37:27
Staðan:
Þór Ak. 9 7 2 0 277:242 16
Valur U 9 6 1 2 273:250 13
Haukar U 9 6 1 2 266:233 13
Grótta 9 6 0 3 264:255 12
Þróttur 9 3 2 4 269:263 8
KA U 9 4 0 5 271:270 8
FH U 9 4 0 5 266:272 8
Víkingur 9 2 1 6 233:248 5
Fjölnir U 9 2 0 7 228:252 4
Stjarnan U 9 1 1 7 220:282 3
Olísdeild kvenna
Stjarnan – ÍBV ..................................... 25:23
Staðan:
Fram 9 8 0 1 281:189 16
Valur 9 7 1 1 251:189 15
Stjarnan 10 5 3 2 243:220 13
KA/Þór 9 5 0 4 218:248 10
HK 9 3 2 4 232:247 8
Haukar 9 3 1 5 194:221 7
ÍBV 10 2 1 7 205:245 5
Afturelding 9 0 0 9 165:230 0
Grill 66 deild kvenna
Grótta – FH .......................................... 23:29
Staðan:
Fram U 9 9 0 0 304:212 18
FH 10 8 1 1 276:221 17
Selfoss 9 6 2 1 207:188 14
Grótta 10 6 1 3 247:229 13
ÍR 9 5 0 4 225:221 10
Valur U 9 4 1 4 242:231 9
ÍBV U 10 4 1 5 249:247 9
Stjarnan U 9 3 1 5 228:251 7
Fylkir 10 3 0 7 191:215 6
HK U 9 2 1 6 224:255 5
Fjölnir 9 2 0 7 206:250 4
Víkingur 9 0 0 9 205:284 0
Danmörk
Kolding – Aarhus ................................ 23:27
Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj-
ólfsson skoruðu ekki fyrir Kolding.
Ribe-Esbjerg – Lemvig....................... 27:25
Rúnar Kárason skoraði sjö mörk fyrir
Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson
þrjú mörk en Daníel Þór Ingason er meidd-
ur.
Frakkland
B-deild:
Cesson-Rennes – Massy Essonne....... 25:29
Geir Guðmundsson skoraði eitt mark
fyrir Cesson-Rennes.
Svíþjóð
Alingsås – Hallby................................. 30:20
Aron Dagur Pálsson skoraði tvö mörk
fyrir Alingsås.
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Stjarnan gerði sér lítið fyrir og vann
43 stiga sigur á sexföldum Íslands-
meisturum KR á heimavelli í lokaleik
9. umferðar Dominos-deildar karla í
körfubolta í gærkvöldi. Staðan eftir
fyrsta leikhlutann var 32:17, Stjörn-
unni í vil. KR náði að minnka muninn
í sex stig snemma í öðrum leikhluta
en síðan ekki söguna meir. Meist-
ararnir áttu ekki möguleika gegn
sterku Stjörnuliði, sem jók muninn
örugglega þangað til lokaflautið gall.
Stjarnan var betra liðið á öllum svið-
um körfuboltans og áttu KR-ingar
einfaldlega engin svör.
Allt byrjunarlið Stjörnunnar lék
mjög vel; Kyle Johnson átti sinn
besta leik fyrir liðið, Ægir Þór Stein-
arsson var virkilega góður, Nikolas
Tomsick skilaði sínu, Hlynur Bær-
ingsson var gríðarlega sterkur og
Tómas Þórður Hilmarsson átti sinn
besta leik á tímabilinu. Það var hvergi
veikan blett að finna hjá Stjörnunni,
sem naut þess að spila saman.
Allt í molum hjá KR
Hinum megin var allt í molum og
bjargaði Michael Craion, einn síns
liðs, því að sigur Stjörnunnar yrði
ekki mun stærri. KR-liðið var al-
gjörlega andlaust, spilamennskan til-
viljunarkennd og virðast leikmenn
hafa takmarkaðan áhuga á að leggja
sig fram fyrir Inga Þór Steindórsson,
þjálfara liðsins. KR hefur tapað fjór-
um af síðustu fimm leikjum sínum og
ef allt er eðlilegt er sæti Inga Þórs
orðið heitt. KR er með leikmannahóp
sem á helst ekki að tapa leik í þessari
deild.
Ingi hefur ekki náð að greiða úr
vandamálum sem einkennt hafa liðið í
síðustu leikjum. Matthías Orri Sig-
urðarson virðist ekki ráða við að spila
fyrir KR, Jón Arnór Stefánsson nær
sér ekki á strik og aðrir landsliðs-
menn, núverandi og fyrrverandi, á
borð við Kristófer Acox, Jakob Örn
Sigurðarson, Helga Má Magnússon
og Brynjar Þór Björnsson geta miklu
betur.
KR-ingar voru byrjaðir að láta mót-
lætið fara illa með sig strax í fyrsta
leikhluta og hvað eftir annað fengu
reyndir menn slæmar villur er þeir
létu skapið hlaupa með sig í gönur.
Brynjar Þór var sendur út úr húsi fyr-
ir tvær óíþróttamannslegar villur og
mjög pirraður Helgi Már fékk eina
slíka. Jón Arnór fékk svo tæknivillu á
bekknum fyrir að rífast í dómurum.
Það virðist eitthvað ekki í lagi innan-
búðar hjá KR. Þráðurinn er stuttur og
var uppgjöfin algjör í gær.
Tapið er það stærsta hjá KR síðan
1997 er liðið tapaði með 54 stigum fyr-
ir Keflavík í undanúrslitum Íslands-
mótsins og það næststærsta frá upp-
hafi.
Næststærsta tapið í sögu KR
Stjarnan valtaði yfir meistarana Stjörnumenn betri á öllum sviðum
Uppgjöfin algjör hjá KR-ingum Takmarkaður áhugi á að spila fyrir Inga?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stórsigur Ægir Þór Steinarsson skoraði 24 stig og gaf 11 stoðsendingar gegn sínu gamla liði KR í gær.
Valdís Þóra Jónsdóttir er úr leik
eftir tvo hringi á næstsíðasta móti
Evrópumótaraðar kvenna í golfi á
Costa del Sol á Spáni. Valdís bætti
sig um þrjú högg frá fyrsta hringn-
um en það dugði ekki til.
Valdís lék hringinn í gær á þrem-
ur höggum yfir pari og hringina
tvo á samanlagt níu höggum yfir
pari og endaði hún í 83. sæti. Hefði
hún þurft að leika á fimm höggum
yfir pari til að fara í gegnum nið-
urskurðinn. Karolin Lampert frá
Þýskalandi er efst á átta höggum
undir pari. johanningi@mbl.is
Valdís úr leik á
Costa del Sol
Ljósmynd/LET
Úr leik Valdís Þóra Jónsdóttir lék á
samtals níu yfir pari.
Keflavík fór upp að hlið Tindastóls á
toppi Dominos-deildar karla í körfu-
knattleik í gær með sigri á Fjölni
109:98 í Keflavík. Keflvíkingar
hristu þar með af sér tvö töp í röð.
Þeir unnu fyrstu sjö leiki sína í deild-
inni en töpuðu fyrir KR á heimavelli
í 8. umferð. Í framhaldinu tapaði lið-
ið gegn Haukum á útivelli en þá
saknaði liðið Dominykas Milka.
Hann tók níu fráköst í gær en var ró-
legur í stigaskorun með fjögur stig.
Khalil Ahmad var stigahæstur hjá
Keflavík með 31 stig en Viktor Mo-
ses skoraði 29 fyrir Fjölni.
Keflavík hristi af
sér tapleikina
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðsmaður Hörður Axel Vil-
hjálmsson skoraði 28 stig í gær.
MG-höllin, Dominos-deild karla,
föstudag 29. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 5:4, 18:10, 27:14,
32:17, 41:22, 42:28, 44:30, 48:38,
53:42, 62:44, 73:52, 80:58, 85:60,
93:64, 105:64, 110:67.
Stjarnan: Kyle Johnson 25/5 frá-
köst, Ægir Þór Steinarsson 24/8 frá-
köst/11 stoðsendingar, Nikolas Tom-
sick 22/5 stoðsendingar, Tómas
Þórður Hilmarsson 17/10 fráköst,
Hlynur Elías Bæringsson 11/19 frá-
köst, Arnþór Freyr Guðmundsson 6,
Ágúst Angantýsson 5.
STJARNAN – KR 110:67
Fráköst: 37 í vörn, 9 í sókn.
KR: Michael Craion 27/8 fráköst/5
stoðsendingar, Kristófer Acox 10,
Björn Kristjánsson 8/5 stoðsend-
ingar, Jakob Örn Sigurðarson 8,
Helgi Már Magnússon 4/4 fráköst,
Sigurður Á. Þorvaldsson 3, Brynjar
Þór Björnsson 3, Matthías Orri Sig-
urðarson 2, Jón Arnór Stefánsson 2.
Fráköst: 22 í vörn, sex í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Kristinn Óskarsson, Eggert Þór
Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 603
Garðbæingar gætu verið að rétta úr kútnum í Olís-deild
karla í handknattleik. Stjarnan hafði betur gegn ÍBV í
fyrsta leik 12. umferðar í Mýrinni í gær 31:25 og er
Stjarnan nú með átta stig í 9. sæti. ÍBV er með 13 stig í 6.
sæti. Var þetta fyrsti sigur Stjörnunnar í deildinni síðan
12. október og annar sigurinn í deildinni. Liðið hefur
reyndar ekki tapað nema sex leikjum af þessum tólf en
hefur fjórum sinnum gert jafntefli og misst niður svo
gott sem unna stöðu í sumum leikjum.
Tandri Már Konráðsson lét mikið til sín taka í sókn-
inni og skoraði átta mörk en næstir komu örvhentu
mennirnir Ari Magnús Þorgeirsson og Leó Snær Pét-
ursson sem skoruðu sjö mörk. Ólafur Rafn Gíslason varði 13 skot í markinu
hjá Stjörnunni.
Kristján Örn Kristjánsson hefur verið atkvæðamikill hjá ÍBV í vetur og í
þetta skiptið skoraði hann 11 mörk í 15 skotum en það dugði ekki til sigurs.
ÍBV fékk litla markvörslu í leiknum en þeir Björn Viðar Björnsson og Pet-
ar Jokanovic vörðu samtals fimm skot.
Annar sigur Stjörnunnar
Tandri Már
Konráðsson
Stjarnan styrkti stöðu sína í þriðja sæti Olís-deildar
kvenna í handknattleik í gær með sigri á ÍBV 25:23 eftir
jafnan leik í Mýrinni í Garðabæ. Stjarnan er með 13 stig
eftir tíu leiki en leikurinn var sá fyrsti í 10. umferðinni
sem heldur áfram í dag þegar þrír leikir fara fram. ÍBV
er í næstneðsta sætinu með fimm stig, tveimur á eftir
Haukum sem eru í 6. sæti.
Karen Tinna Demian átti stórleik og skoraði átta
mörk en Hanna Guðrún Stefánsdóttir kom næst með sex
mörk og Stefanía Theodórsdóttir skoraði fimm. Allar
voru þær með mjög góða skotnýtingu í leiknum. Stjarn-
an knúði fram sigur á lokakaflanum þótt markverðirnir,
Klaudia Powaga og Hildur Öder Einarsdóttir, hafi ekki varið nema átta
skot samtals.
Markvarslan var enn minni hjá ÍBV en þær Marta Wawrzykowska og
Darja Zecevic vörðu samtals sex skot. Landsliðskonan Ester Óskarsdóttir
var markahæst hjá ÍBV með sjö mörk, Sunna Jónsdóttir skoraði fimm
mörk og Ásta Björt Júlíusdóttir fjögur.
Karen með stórleik gegn ÍBV
Karen Tinna
Demian
Ólympíu- og
heimsmeistarinn
Mo Farah er ekki
hættur á hlaupa-
brautinni eftir
allt saman. Hann
segist nú ætla að
keppa í 10 þús-
und metra hlaupi
á næsta ári en frá
árinu 2017 hefur
Farah snúið sér að maraþon-
hlaupum á götum stórborga eftir að
hafa verið sérlega sigursæll í bæði 5
og 10 þúsund metrunum á stórmót-
um.
Farah segist ætla að leggja hart
að sér en tíminn verði að leiða í ljós
hvort hann sé enn jafn fljótur og
þegar best lét. Farah er 36 ára gam-
all og því erfiðara að segja til um en
áður hverjir möguleikar hans eru á
sigri á stórmóti.
Ólympíuleikarnir fara fram í Tók-
ýó næsta sumar en Farah er ekki
með keppnisrétt þar í 10 þúsund
metra hlaupi sem stendur. Hann
hefur hins vegar nægan tíma til að
ná lágmarki í greininni. kris@mbl.is
Endurskoðar
fyrri ákvörð-
un sína
Mo Farah