Morgunblaðið - 30.11.2019, Síða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Myndlistar-
sýningin Af
stað! verð-
ur opnuð í
Norræna
húsinu á
morgun kl. 14-17 og stendur til 12.
janúar 2020. Þrettán ungir mynd-
listarmenn eiga verk á sýningunni,
sem prýðir nokkur rými hússins. Í
verkum sínum túlka þeir og endur-
spegla neyslumenningu samtímans
og þau áhrif sem hún hefur á lifn-
aðarhætti fólks. Samhliða sýning-
unni verður alla sunnudaga í að-
ventu og 12. janúar efnt til samtals
níu gjörninga sem innihalda beitta
ádeilu. Sum atriðin verður hægt að
sjá hvern sunnudag í aðventu en
önnur eru bara sýnd einu sinni, eins
og segir í tilkynningu.
Af stað! opnuð í
Norræna húsinu
Norræna húsið
Heilaðu eigið
gral á 12 mín-
útum nefnist sýn-
ing sem Árni
Bartels opnar í
Listasal Mosfells-
bæjar í dag kl.
14. „Árni lærði í
myndlistardeild
LHÍ og bjó í
fimm ár í Gauta-
borg þar sem hann rak eigið gall-
erí. Hann málar abstraktmyndir og
vinnur að mörgum tuga verka í
einu. Í sköpunarferlinu er hann sí-
fellt að endurskapa verkin, bætir
við nýju lagi eða pússar myndflöt-
inn niður og skyggnist þá aftur á
bak í tímann. Mörg ár geta liðið áð-
ur en hvert verk hefur náð loka-
mynd sinni,“ segir í tilkynningu.
Heilaðu eigið gral
á 12 mínútum
Árni Bartels
Fold uppboðshús stendur fyrir tvö-
földu listmunauppboði, árlegu jóla-
uppboði, á mánudag og þriðjudag,
2. og 3. desember. Uppboðin hefjast
kl. 18 og verða alls um 200 verk
verða boðin upp. Sýning á verk-
unum stendur yfir í húsnæði Gall-
erísins við Rauðarárstíg.
Meðal verka á uppboðinu er stórt
olíumálverk eftir Georg Guðna frá
2001. Þá verður boðið upp fágætt
strangflatar abstraktverk eftir Ey-
borgu Guðmundsdóttur en verk eft-
ir hana rata sjaldan á markað.
Mikill fjöldi annarra abstrakt-
verka er boðinn upp og þar á meðal
eftir Braga Ásgeirsson, Karl Kvar-
an, Óla G. Jóhannsson, Jón Engil-
berts og Svavar Guðnason.
Frumherjar íslenskrar mynd-
listar eiga sinn sess á uppboðinu og
þá eru t.a.m. boðin upp vatns-
litamynd frá Suðursveit, sex verk
eftir Jóhannes S. Kjarval, mynd frá
Akureyri eftir Kristínu Jónsdóttur,
fígúratíft verk eftir Þorvald Skúla-
son, auk verka eftir Jóhann Briem
og Gunnlaug Blöndal.
Vífilsfell árið 1930 Sex verk eftir Jóhannes Kjarval verða boðin upp.
Alls kyns verk á tvö-
földu uppboði Foldar
Boðin upp á mánudag og þriðjudag
Horft kallar Kristín Hauksdóttir
myndlistarkona sýninguna með ljós-
myndum sem hún opnar í sýningar-
salnum Ramskram á Njálsgötu 49 í
dag, laugardag, klukkan 15. Við-
fangsefni myndanna eru áhorfendur
viðburða og atburða. Hlutverkinu er
því snúið við og horft á áhorfandann.
Kristín beinir sjónum að óljósum
mörkum áhorfs og þátttöku, að
ferðalagi „sem getur hafist í fjar-
lægu áhorfi en endað í villtum dansi,
trylltu víkingaklappi eða kröftugum
mótmælum,“ eins og hún segir. Á
sýningunni eru til að mynda ljós-
myndir teknar af fólki að fylgjast
með bruna í efnalauginni Fönn árið
2014, frá Drangeyjar-tónlistarhátíð-
inni 2015, bjórsmökkun við Sunda-
höfn 2016, Druslugöngunni 2019 og
hvalreka í Eiðisvík 2019.
Kristín Kristín lauk MFA-prófi í
myndlist við Pratt Institute í New
York árið 1995. Hún hefur haldið
einskasýningar og tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum. Undanfarin
ár hefur Kristín starfað við Ljós-
myndasafn Reykjavíkur jafnframt
því að vinna við myndlist.
Ljósmyndun um að horfa
„Á Ljósmyndasafni Reykjavíkur
vinn ég alla daga með gamlar mynd-
ir og mér hefur lengi þótt það áhuga-
vert að á gömlum Reykjavíkur-
myndum af allskyns viðburðum eru
áhorfendur á einhvern hátt mjög
virkir,“ segir Kristín þegar spurt er
um ástæðu þess að hún kaus að taka
myndir af áhorfendum. Hún nefnir
ljósmynd eftir Ólaf Magnússon, sem
var mikilvirkur ljósmyndari um
miðja síðustu öld, en hún sýnir fjölda
manns og það er sem allir séu að
horfa á ljósmyndarann. „Það er
mögnuð stemning í þeirri mynd,“
segir Kristín. „Ég fór sem sagt að
rannsaka áhorfendur, fólk sem er að
horfa, en ljósmyndun er mikið um
einmitt það, að horfa.
Ég er með seríur af fólki að fylgj-
ast með útsendingu á leikjum á EM
og HM og á sumum myndanna er
fók í algjöru algleymi, ef svo má
segja, yfir því sem er að gerast.“
Kristín hefur nú í nokkur ár safn-
að myndum í þetta verkefni. „Ég er
bara að skoða fólk horfa og það er
athyglisvert hvað stemningin getur
verið ólík á þessum stöðum. Það var
til að mynda ótrúleg kyrrð, allt að
því himnesk, þar sem fólk var að
fylgjast með brunanum í Fönn árið
2014. En ég man líka eftir brunanum
í Lækjargötu 2, sem ég myndaði nú
ekki, en þar var virkileg sorg.“ Og
ekki skrýtið, því þar brann íbúðar-
hús og ljósmyndastúdíó Sigfúsar
Eymundssonar, fyrsta og eins merk-
asta ljósmyndara á Íslandi.
Myndir Kristínar eru svarthvítar
og teknar á filmu. „Það er minn mið-
ill,“ segir hún. „Fallegur milill sem
ég tengi mig við.“
Hún hefur unnið að þessu verk-
efni í fimm ár. Heldur hún áfram?
„Auðvitað, þetta er svo umfangs-
mikið – ég er rétt að byrja.“
Og stekkur þá til ef það kviknar í
eða fólk safnast saman, eins og erki-
paparazzinn Weegee?
„Jú, það blundar í mér papa-
razza!“ segir Kristín og hlær. „Það
er ekki út af viðburðunum heldur
finnst mér áhugavert að ná spenn-
unni meðal áhorfendanna.“
efi@mbl.is
Blundar í mér paparazza
Kristín Hauksdóttir sýnir ljósmyndir í Ramskram
á Njálsgötu Sýnir áhorfendur að ýmsum viðburðum
Morgunblaðið/Einar Falur
Ljósmyndari „Ég er rétt að byrja,“ segir Kristín Hauksdóttir um verkefnið.
Listaþríeykið Lucky 3 opnar sýn-
inguna Lucky me? í sýningarrými
Kling og bang í Marshall-húsinu á
Granda í dag, laugardag. Lucky 3
samanstendur af listamönnunum
Darren Mark, Dýrfinnu Benitu Ba-
salan og Melanie Ubaldo.
Öll þrjú eiga þau það „sameig-
inlegt að vera af filippseyskum
uppruna og er þessi sýning til-
einkuð nostalgískri túlkun á filipps-
eyskri menningu,“ segir í frétta-
tilkynningu vegna sýningarinnar.
Þar segir ennfremur að titill sýn-
ingarinnar sé vísun í hinar vinsælu
skyndinúðlur Lucky Me! sem finna
megi á öllum filippseyskum heim-
ilum. Á sýningunni eru þekktir
munir úr filippseyskri menningu
teknir í sundur og þeim endurraðað
á óreiðukenndan hátt.
Þá segir í tilkynningunni að við-
burðurinn sé fyrst og fremst hald-
inn til að fagna veru filippseyskra
innflytjenda hér á landi.
Listamennirnir vilja varpa ljósi á
sundraðan hóp fólks sem er rót-
laust og berst við að bjarga arfleifð
sinni í ljósi menningarlegs tjóns.
Melanie og Darren útskrifuðust
frá LHÍ, í myndlist og fatahönnun,
en Dýrfinna nam myndlist og hönn-
un í Hollandi.
Íslensk Listamennirnir eru íslend-
ingar af filippseyskum uppruna.
Vilja varpa ljósi
á sundraðan hóp
Lucky 3 opna sýningu í Kling og bang
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
Veitingahús á á tveimur hæðum. Húsnæðið er glæsilega innréttað ásamt
einstöku útiaðstöðu fyrir veitingasölu í Hjartagarðinum. Heildarstærð er
622,9 fm. Tækifæri til að tengja saman fjárfestingu og rekstur.
Frekari upplýsingar hjá katrin@thingvangur.is eða í síma 820 6355.
Til sölu er eitt fallegsta
veitingahús Reykjavíkur
KLAPPARSTÍGUR 28 OG 30