Morgunblaðið - 30.11.2019, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 30.11.2019, Qupperneq 52
Í20. gr. stjórnarskrárinnar seg-ir: „Engan má skipa embætt-ismann, nema hann hafi ís-lenskan ríkisborgararétt.“ Vitanlega gilda sömu hæfiskilyrði um setningu í embætti. Ef maður er vanhæfur til skipunar, þá er hann vanhæfur til setningar og það í eitt æðsta embætti landsins, þar sem öllu varðar að gæta hagsmuna þjóð- arinnar gagnvart öðrum. Þegar vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur og Steingríms J. Sigfússonar hafði breytt lögum um Seðlabankann í febrúar 2009 í því skyni að flæma þrjá þáverandi seðlabankastjóra úr bankanum og síðan sett norskan fjármálamann, Svein Harald Øy- gard, í embættið, var hún því að brjóta stjórnarskrána. Øygard hafði verið virkur í norska Verka- mannaflokknum og meðal annars verið aðstoðarfjármálaráðherra á vegum flokksins, en rak nú ráðgjaf- arstofu. Eitt fyrsta embættisverk Øygards var að taka á móti landa sínum og flokksbróður, Jens Stolten- berg, forsætisráðherra Noregs, sem staddur var á Íslandi. Spígsporuðu þeir ásamt lífvörðum Stoltenbergs um bankann, brostu breitt og töluðu norsku. Hið ágæta starfsfólk bank- ans, sem hafði lagt nótt við dag í bankahruninu, hlustaði á hnípið. Var Ísland aftur orðið hjálenda Noregs? Fundurinn heima hjá Davíð 2006 Í nýútkominni bók Øygards um starf hans í Seðlabankanum, Í víglínu ís- lenskra fjármála, viðurkennir hann (bls. 192) að ganga þeirra Stolten- bergs um bankann hafi verið mistök. Af ritinu má ráða að honum sé hlýtt til Íslendinga, og þarf ekki að efast um að hann hafi lagt sig allan fram í starfi sínu. En þótt hann endurtaki oft í bókinni að sér hafi fundist mikil- vægara að horfa fram á við en um öxl orka margvísleg ummæli hans um bankahrunið tvímælis. Hann segir til dæmis að neyðarfundur heima hjá Davíð Oddssyni sunnudaginn 26. mars 2006 hafi markað tímamót. „Hefði verið reynt að ná tökum á efnahagskerfinu daginn þann hefði mátt forðast hvellinn“ (bls. 151). Nú var Øygard vitanlega ekki sjálfur á fundinum, en hann var haldinn eftir að Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra hafði hringt í seðlabankastjór- ann, þar sem hann var nýkominn í sumarbústað sinn. Bankastjórar við- skiptabankanna höfðu látið í ljós við Halldór áhyggjur af fjármögnun bankanna næstu vikur, eftir að Danske Bank hafði birt neikvæða skýrslu um þá. Bað Halldór Davíð um að hitta bankastjórana, og boðaði Davíð þá heim til sín til að forðast fjölmiðlafár. Auk hans sátu þann fund Halldór J. Kristjánsson frá Landsbankanum og Bjarni Ár- mannsson frá Glitni, og voru þeir í símasambandi við Hreiðar Má Sig- urðsson í Kaupþingi, en hann var á leið til Bandaríkjanna. Davíð sagði bankastjórunum að hyggilegast væri að bíða og sjá hvernig markaðir brygðust við næstu daga. Það spyrðist strax út og hefði vond áhrif ef Seðlabankinn færi í pati að reyna að útvega lausafé er- lendis. Síðar um kvöldið, þegar bankastjórarnir voru farnir, komu seðlabankamennirnir Ingimundur Friðriksson og Tryggvi Pálsson heim til Davíðs til að fara yfir málið. Hættan leið hjá og eftir þetta gripu bankarnir til margvíslegra aðgerða til að útvega sér fjármagn til langs tíma. En innlánasöfnun Landsbank- ans erlendis má ekki rekja til þessa fundar, enda var þar ekki á hana minnst. Mark Sismey-Durrant, for- stöðumaður dótturfélags Lands- bankans í Bretlandi, Heritable Bank, átti frumkvæði að slíkri innlána- söfnun og var hugmyndin að innlánin fjármögnuðu hin miklu útlán bank- ans í Bretlandi. Landsbankinn gat boðið hærri vexti en flestir keppi- nautarnir, því að þessir reikningar voru ódýrir í rekstri. Kaupþing sigldi síðan í kjölfarið með Edge- reikningum, sem voru svipaðs eðlis. Þessi innlánasöfnun fór ýmist fram í dótturfélögum eða útibúum. Raunar voru flestar fjárfestingar Íslendinga í Bretlandi ábatasamar og skýrir það hvers vegna eignasafn bankans þar reyndist við uppgjör verðmætara en margir héldu. „Eins manns útaustur“ Það var ekki fyrr en eftir hrunið sem allir sáu það fyrir, eins og skáldið sagði. Øygard rifjar upp margvísleg varnaðarorð fyrir bankahrunið. En menn voru þá að vara við kreppu að lokinni þenslu, ekki kerfishruni. Ís- lendingar hafa oft lent í kreppum og kunna að glíma við þær. Ég veit hins vegar ekki um nema einn mann sem varaði við kerfishruni. Þegar í nóvember 2005, skömmu eftir að Davíð Oddsson varð seðlabanka- stjóri, nefndi hann þann möguleika á fundi í Seðlabankanum með Halldóri Ásgrímssyni og Geir H. Haarde. Eft- ir páskakreppuna vorið 2006 var kyrrt að kalla í eitt ár, en undir árs- lok 2007 nefndi Davíð aftur þennan möguleika á fundi í Þjóðmenningar- húsinu með Geir H. Haarde, Þor- gerði Katrínu Gunnarsdóttur og Árna M. Mathiesen, og fyrtist Þor- gerður Katrín við. Árið 2008 gengu seðla- bankastjórarnir þrír hvað eftir annað á fund ráðherra til að láta í ljós áhyggjur sínar af bönk- unum, eins og rakið er í skýrslu Rannsóknar- nefndar Alþingis. Þótt Geir H. Haarde forsætis- ráðherra og Árni M. Mathiesen fjármála- ráðherra deildu þessum áhyggjum með seðla- bankastjórunum reis Samfylkingin öndverð við. Hún vildi ekki hlusta á neitt sem kæmi frá Davíð, jafnvel þótt hinir seðlabankastjórarnir tveir, báðir gamalreyndir bankamenn, tækju undir með honum (en í bók sinni læt- ur Øygard eins og þeir séu ekki til). Eftir einn fundinn skrifaði formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg S. Gísladóttir, hjá sér að hann hefði verið „eins manns útaustur“. Hún sagði raunar líka í Fréttablaðinu 4. september 2008, mánuði fyrir banka- hrun, að bankarnir ættu að halda áfram innlánasöfnun erlendis. Ástarbréfin Øygard verður tíðrætt um lausafjár- fyrirgreiðslu Seðlabankans við við- skiptabankana þrjá síðustu misserin fyrir bankahrun, ástarbréfin svoköll- uðu, eins og Davíð Oddsson kallaði þau, og er á honum að skilja að Seðlabankinn hefði átt að hætta henni eða setja strangari skilyrði fyrir henni. En Seðlabankinn setti sömu skilyrði fyrir lánum til bank- anna og seðlabankar í öðrum löndum og raunar ívið strangari, því að hann tók aðeins við skráðum bréfum að veði. Bandaríski seðlabankinn tók jafnvel um skeið við hlutabréfum (mestu áhættunni) og hinn evrópski við óskráðum bréfum. Því má ekki heldur gleyma að ársreikningar bankanna voru áritaðir af virtum endurskoðunarfyrirtækjum, og matsfyrirtæki höfðu gefið þeim háar einkunnir. Hefði Seðlabankinn kraf- ist traustari veða en evrópski seðla- bankinn hefðu fjármálamarkaðir umsvifalaust skilið það sem van- traust á bankana og þeir fallið sam- dægurs. Raunar virðist Øygard skilja þetta, því að hann skrifar (bls. 56): „Svipuð úlfakreppa sótti á stjórnvöld: átti maður að snarhemla þegar það eitt og sér gat valdið árekstrinum sem maður var að reyna að afstýra?“ Sá var kjarni málsins. Undir lok ársins 2007 stóðu bankarnir, stjórnvöld og seðlabanki frammi fyrir afarkostum: Þeir sem bregðast við eru glataðir; þeir sem ekki bregðast við eru glataðir. You are damned if you do; you are damned if you don’t. Hið sama átti við um minnkun íslenska banka- kerfisins. Með því hlýtur aðallega að vera átt við flutning höfuðstöðva bankanna til annarra landa eða sölu eigna í öðrum löndum. Þótt Øygard minnist hvergi á það kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar Al- þingis að þáverandi seðlabankastjórar lögðu til við bankana að höfuðstöðvar Kaupþings yrðu færðar til útlanda, að Landsbankinn flytti Icesave- reikningana úr útibúum í dótturfélög og að Glitnir seldi hinn trausta banka sinn í Noregi. Við þetta hefði banka- kerfið minnkað verulega. En þegar komið var fram á árið 2008 hefði lík- lega enginn erlendur seðlabanki vilj- að taka við Kaupþingi á sitt umsjón- arsvæði, bresk stjórnvöld settu óaðgengileg skilyrði fyrir flutningi Icesave-reikninganna í dótturfélag og ekki hefði fengist nógu hátt verð fyrir norska Glitni. Auk þess var Seðlabankinn ekki eftirlitsaðili bank- anna, heldur Fjármálaeftirlitið. Þess vegna voru vinsamleg tilboð seðla- bankastjóra Svíþjóðar og Bretlands, sem Øygard nefnir, til Seðlabankans um aðstoð við að minnka bankakerfið aðeins kurteisistal. Hvers vegna var Íslandi úthýst? Øygard bendir réttilega á að ís- lensku bankarnir fóru mjög geyst, allt of geyst. Margvísleg falin kerf- islæg áhætta stafaði af miklum inn- byrðis tengslum eigenda þeirra og helstu skuldunauta og þá sér- staklega Baugsveldisins (bls. 73). Það voru líka reginmistök þegar Kaupþing ætlaði í árslok 2007 að kaupa hollenska bankann NIBC (bls. 91). En Øygard hefði mátt nefna þá niðurstöðu þeirra Ásgeirs Jónssonar og Hersis Sigurgeirssonar í bók, sem hann studdist þó talsvert við, að lík- lega hefðu eignasöfn íslensku bank- anna þriggja verið svipuð að gæðum og eignasöfn erlendra banka al- mennt. Í því sambandi er umhugs- unarefni að þeir bresku bankar í eigu Íslendinga sem gerðir voru upp í eðlilegu ferli en ekki á brunaútsölu Heritable og KSF, reyndust eiga ríf- lega fyrir skuldum. Og þótt íslenska bankakerfið væri stórt í hlutfalli við landsframleiðslu var það minna en bankakerfi Sviss (tíföld landsfram- leiðsla) og Skotlands (tólfföld lands- framleiðsla). Á þeim ellefu árum sem liðin eru frá bankahruninu hefur líka komið í ljós að margir erlendir bank- ar voru nærri því í fjármálakrepp- unni að falla, til dæmis UBS í Sviss og Danske Bank í Danmörku. Það sem bjargaði þeim var að seðla- bankar landa þeirra fengu lausafjár- fyrirgreiðslu frá bandaríska seðla- bankanum. Ein mikilvægasta spurningin um bankahrunið er því: Hvers vegna var Íslandi neitað um aðstoð sem önnur lönd, þar á meðal Sviss og Svíþjóð, fengu? Øygard bar þessa spurningu ein- mitt upp við Timothy Geithner, bankastjóra seðlabankans í New York (sem sá um samskipti við út- lönd). Lítið er því miður á svörunum að græða (bls. 114–116). Geithner og aðrir bandarískir seðlabankamenn sögðu Øygard að til þess að mynda traust hefði Ísland þurft miklu meiri aðstoð en farið var fram á, en Banda- ríkin hefðu auk þess enga sérstaka hagsmuni af því að bjarga íslensku bönkunum, þar eð viðskipti þeirra í Bandaríkjunum hefðu verið lítil. Er þetta trúlegt? Ef gjaldeyrisskipta- samningur upp á 2–3 milljarða dala var of lítill hefði verið hægðarleikur fyrir bandaríska seðlabankann að gera þess í stað samning upp á 10 milljarða dala. Norðurlandaríkin þrjú, sem Geithner gerði gjaldeyr- isskiptasamninga við, voru ekki held- ur kerfislega mikilvæg, eins og hann viðurkenndi sjálfur í viðtalinu við Øygard (bls. 115). Af hverju var Sví- þjóð, sem aldrei hafði verið banda- maður Bandaríkjanna, hjálpað, en ekki Íslandi, sem hafði lagt land und- ir mikilvæga bandaríska herstöð í röska hálfa öld? Sú ákvörðun að taka ekkert tillit til stjórnmálasjónarmiða heldur fela skrifstofufólki útreikn- inga var sjálf í eðli sínu stjórn- málaleg. Á meðan Ísland hafði veru- legt hernaðarlegt gildi fyrir Bandaríkin hefðu þau áreiðanlega ekki úthýst því. En eftir að Kalda stríðinu lauk töldu bandarísk stjórn- völd Ísland ekki lengur skipta máli. Øygard ber saman Sviss og Ísland svofelldum orðum: „Svisslendingar voru þrjú hundruð ár að byggja upp bankageira sem nam áttfaldri vergri landsframleiðslu (VLF). Það tók Ís- lendinga fimm ár að nífalda VLF“ (bls. 50). Talan um hlutfallslega stærð íslenska bankakerfisins er að vísu ekki alveg rétt, eins og Sigríður Benediktsdóttir, Jón Daníelsson og Gylfi Zoëga hafa bent á. Nákvæmari tala er 7,4 sinnum verg landsfram- leiðsla. Og spyrja má, ef svissneskir bankar bjuggu að þrjú hundruð ára reynslu, af hverju þeir lentu þá í slík- um erfiðleikum að bandaríski seðla- bankinn varð að bjarga þeim. Varnargarðurinn og Icesave-deilan Sennilega varð það Íslendingum til góðs að þeir neyddust til að bjarga sér sjálfir. Að ráði seðlabankastjór- anna þriggja var varnargarðsleiðin (e. ring fencing) notuð. Hún fólst í því að reyna að bjarga ríkissjóði, sparifjáreigendum og greiðslumiðl- uninni, en láta aðra kröfuhafa bank- anna og eigendur hlutabréfa í þeim sigla sinn sjó. Þegar Davíð Oddsson sótti ríkisstjórnarfund 30. september 2008, lagði hann til að sú leið yrði far- in, en ráðherrar Samfylkingarinnar tregðuðust við í viku, og varð loks að senda einkaþotu eftir sérfræðingum JP Morgan, sem tókst að sannfæra ráðherrana um þann kost, og voru þá neyðarlögin samþykkt 6. október. En Øygard virðist eitthvað hafa mis- skilið neyðarlögin, því að hann segir Breta hafa orðið reiða „vegna illrar meðferðar á breskum viðskiptavin- um íslensku bankanna“. Síðan segir hann: „Þeir reyndu að bregðast skjótt við og stöðva færslur frá ís- lensku útibúunum í Bretlandi til Ís- lands, en þá skorti lagaheimildir til þess“ (bls. 138). Þetta er alrangt, eins og ég bendi á í skýrslu sem Øyg- ard vísar þó til í heimildaskrá (bls. 413). Breskir innstæðueigendur fengu sama forgang í bú Landsbank- ans og íslenskir. Og breska fjármála- eftirlitið hafði þegar 3. október kom- ið í veg fyrir færslur frá útibúi Landsbankans í Bretlandi til Íslands með sérstakri tilskipun, sem bannaði allar slíkar færslur nema með skrif- legu leyfi, og hafði bankinn sem ann- aðist slíkar færslur, Barclays, verið látinn vita af tilskipuninni. Notkun hryðjuverkalaganna var því óþörf. Þótt Øygard gleypi við skýringum bresku Verkamannaflokksstjórn- arinnar á hörkunni við Íslendinga var hún með ólíkindum. Kaupþing safnaði innlánum á sama hátt í Þýskalandi og Landsbankinn gerði í Bretlandi, um útibú, ekki dóttur- félag. Hvers vegna beittu Þjóðverjar þá ekki sömu hörku og Bretar? Ég varpa fram þeirri tilgátu í skýrslu minni að þeir Gordon Brown for- sætisráðherra og Alistair Darling fjármálaráðherra, sem báðir voru frá Skotlandi, hafi ætlað sér að sýna Skotum hversu varasamt sjálfstæði gæti orðið. Skotland var eitt helsta vígi Verkamannaflokksins en skosk- ir þjóðernissinnar sóttu þar mjög að flokknum og töluðu um „velsældar- bogann“ frá Írlandi um Ísland til Noregs. Darling sagði af lítt dulinni Norski seðlabankastjórinn segir frá Umrót Svein Harald Øygard og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, skoða höf- uðstöðvar Seðlabankans á fyrsta degi Øygards í embætti seðlabankastjóra, en blátt bann er lagt við því í stjórnarskránni að skipa erlendan ríkisborgara í slíkt embætti. Endurminningar Í víglínu íslenskra fjármála bbnnn Eftir Svein Harald Øygard. Vaka-Helgafell, 2019. Kilja, 431 bls. HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON BÆKUR 52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.