Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 1
FÓLK Kolkrabbi í jólamatinn bls. 26 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 12. desember 2002 Tónlist 32 Leikhús 32 Myndlist 32 Bíó 34 Íþróttir 18 Sjónvarp 38 KVÖLDIÐ Í KVÖLD JÓL Á aðventunni leggja Kringlu- safnið, Eymundsson, Kringlan og Borgarleikhúsið saman krafta sína og bjóða upp á kaffihúsastemningu í anddyri Borgarleikhússins klukk- an 20. Þar munu rithöfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum og ljúfir djasstónar ramma inn stund- ina. Jólastemning í Borgarleikhúsinu KYNNING Sagnfræðingafélag Íslands og Sögufélagið stendur fyrir kynn- ingu á nýútkomnum sagnfræðirit- um í húsi Sögufélags við Fischer- sund klukkan 20.30. Meðal verka sem verða kynnt eru verk um Jón Sigurðsson, Ísland á 20. öld og Frá Íslandi til Vesturheims. Hver höf- undur segir stuttlega frá sínu verki og því sem mest kom á óvart við vinnslu þess. Sagnfræðirit kynnt í Fischersundi KÖRFUBOLTI Tveir leikir fara fram í Intersport-deild karla í körfubolta. Haukar mæta Grindavík klukkan 19.15 á Ásvöllum og Valur tekur á móti Tindastóli klukkan 19.15. Haukar mæta Grindavík ÍÞRÓTTIR Fyrirmynd innflytjenda FIMMTUDAGUR 251. tölublað – 2. árgangur bls. 36 TÓNLIST Risaskjáir í Höllinni bls. 18 KYNFERÐISAFBROT Dæmdur barna- níðingur sem átti að hefja afplánun á fimm og hálfs árs dómi í júlí gaf sig fram við yfirvöld ríkisfangels- isins á Litla-Hrauni á sunnudag og óskaði eftir því að hefja afplánun strax. Hann mun ekki sæta neinum viðurlögum vegna flótta sem staðið hefur í fimm mán- uði. Samkvæmt upplýsingum blaðs- ins eru engin viður- lög við því að mæta ekki til afplánunar en refsing liggur við stroki úr fangelsi ef um samráð er að ræða. Flóttinn mun því engin áhrif hafa á lengd dómsins og hann mun að óbreyttu verða frjáls maður um mitt ár 2006. Maðurinn hefur frá upphafi haldið fram sakleysi sínu gegn vitnisburði nokkurra aðila sem vitnuðu um að frásögn konunnar af atburðum væri rétt. Hann flúði í upphafi til Marokkó en kom þaðan í síðasta mánuði. Lögregla telur sterkar líkur á að hann hafi falið sig á heimili fyrrverandi sambýlis- konu og tveggja ára dóttur sem hann á með henni. Sambýliskonan þvertók fyrir það í samtali við Fréttablaðið og sagðist ekkert hafa heyrt af honum mánuðum saman. „Við skildum vegna álagsins sem var vegna málaferlanna,“ sagði konan, sem trúir á sakleysi manns- ins. Maðurinn, sem misnotaði stjúp- dóttur sína um fimm ára skeið, situr nú á Litla-Hrauni og mun væntanlega losna þaðan eftir mitt ár 2006. Atburðirnir áttu sér stað í þorpi austanlands á níunda áratugnum. Fyrir tveimur árum kom upp ann- að mál á sama stað. Þar var fóstur- faðir sakaður um að misnota sex ára fósturdóttur sína og smita af tveimur kynsjúkdómum. Sá maður var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi og dvelur nú í byggðarlag- inu þar sem atburðirnir sem hann var dæmdur fyrir áttu sér stað. Hann verður samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins kallaður inn til afplánunar á næstu dögum. Hann hefur eins og sveitungi hans neitað sök og heldur því fram að barnið hafi leitað á sig með þessum afleið- ingum. ■ Engin viðurlög við flóttanum Maðurinn sem misnotaði fósturdóttur sína losnar líklega af Litla-Hrauni árið 2006. STRÆTÓ Stjórn Strætó bs. er með umfangsmiklar áætlanir um að gera almenningssamgöngur á höf- uðborgarsvæðinu aðgengilegri, skilvirkari og betri en verið hefur. Byggist það að stórum hluta á nýju leiðakerfi sem er ætlað að tengja ystu mörk höfuðborgarinn- ar í þéttu samgönguneti til fram- tíðar: „Merkilegasta breytingin er ef til vill sú að við erum að fara að opna sérstakan vef á allra næstu dögum. Þar geta viðskiptavinir okkar stimplað inn hvar þeir eru staddir og síðan hvert þeir eru að fara. Þegar því er lokið gefur tölv- an upp bestu og hagkvæmustu leiðina á milli þessara tveggja staða,“ segir Guðjón Ólafur Jóns- son, stjórnarformaður Strætó bs. „Þá eru hér danskir og sænskir sérfræðingar að vinna með okkur að gerð nýrrar miðlægrar sam- göngumiðstöðvar sem væntan- lega verður sett upp á Kringlu- svæðinu í tengslum við byggingu mislægra gatnamóta á horni Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar,“ segir Guðjón Ólafur. Stjórn Strætó hefur enn sem komið er ekki fjallað sérstaklega um aukin þægindi fyrir farþega í vögnunum sjálfum. Hingað til hefur áherslan verið lögð á ytri umgjörð almenningssamgangn- anna: „Nei, við höfum ekki rætt það að setja upp vídeó í vögnun- um. Annars ætti ekki að vera flóknara að vera með slíkt í stræt- isvögnum en flugvélum,“ segir formaður stjórnar Strætó bs. ■ Betri samgöngur: Tölvustýrðar strætóferðir ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K R I 19 57 2 12 /2 00 2 dagar til jóla Opið til kl. 22.00 til jóla 12 e r m e › a l l t f y r i r j ó l i n REYKJAVÍK Suðaustan 8-10 m/s smáskúrir. Hiti 5 til 7 stig. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Skúrir 6 Akureyri 3-8 Léttskýjað 3 Egilsstaðir 3-8 Léttskýjað 3 Vestmannaeyjar 8-13 Skúrir 6 ➜ ➜ ➜ ➜ + + + + Lögregla telur sterkar líkur á að maðurinn hafi falið sig á heimili fyrrver- andi sambýlis- konu. AP /B JÖ R N S IG - U R D SO N PÁLL PÉTURSSON „Við höfum ekki viðurkennt þessa tölu, 4 milljarða króna, og ég er ekki sammála því að nokkuð vanti upp á framlög ríkisins.“ Vandi sveitarfélaga: Vantar fjóra milljarða SVEITARFÉLÖG Sveitarfélögin vantar enn fjóra milljarða króna frá rík- inu, að sögn Halldórs Halldórs- sonar, bæjarstjóra á Ísafirði. Halldór segir að fáist ekki auknir fjármunir frá ríkinu vegna tilflutnings verkefna verði sveit- arfélög að hækka gjaldskrár sínar og skerða þjónustu verulega. Páll Pétursson félagsmálaráðherra hafnar þessu. „Fullyrðingar um að 4 millj- arða króna vanti frá ríki til sveit- arfélaga vegna verkefnatilflutn- ings eru ekki réttar,“ segir Páll og bendir á að fjármálalegt uppgjör ríkis og sveitarfélaga, sem gengið var frá fyrir afgreiðslu fjárlaga, hafi verið gert í góðri sátt og for- svarsmenn sveitarfélaganna hafi lýst yfir ánægju með þau sam- skipti. „Við höfum ekki viðurkennt þessa tölu, 4 milljarða króna, og ég er ekki sammála því að nokkuð vanti upp á framlög ríkisins vegna flutnings verkefna, þetta hefur allt saman verið gert upp,“ segir Páll og dregur einnig í efa fullyrðingar um allt að eins millj- arðs króna tekjutap sveitarfélaga vegna rýmri heimilda til að stofna einkahlutafélög. Nánar bls. 20 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 28% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á fimmtu- dögum? 53% 72% TÖLVUVÆTT LEIÐAKERFI FYRIR VIÐSKIPTAVINI STRÆTÓ Á næstunni verður opnaður sérstakur vefur þar sem viðskiptavinir geta stimplað inn hvar þeir eru staddir og hvert þeir eru að fara. Tölvan veitir þeim síðan upplýsingar um hagkvæmustu leiðina milli þessara tveggja staða.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.