Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 6
6 12. desember 2001 FIMMTUDAGUR
ERLENT
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 46
1.
2.
3.
Eiginkona Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur sætt
gagnrýni fyrir að hafa notið að-
stoðar ástralsks svikahrapps við
íbúðakaup. Hvað heitir konan?
Hábrú á ytri leið fyrirhugaðrar
Sundabrautar hefur verið líkt af
alþingismanni við Golden Gate
brúna í San Francisco. Hvaða al-
þingismaður sagði þetta?
Hann lék Superman í samnefnd-
um kvikmyndum. Í dag eygir
hann von um að geta gengið á
ný. Hvað heitir maðurinn?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 84.7 0.44%
Sterlingspund 133.18 -0.19%
Dönsk króna 11.5 -0.06%
Evra 85.42 -0.05%
Gengisvístala krónu 126,86 -0,46%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 308
Velta 4.618 milljónir
ICEX-15 1.325 0,21%
Mestu viðskipti
Sjóvá-Almennar hf. 225.792.214
Íslandsbanki hf. 164.090.437
Pharmaco hf. 137.714.000
Mesta hækkun
Marel hf. 3,39%
Jarðboranir hf. 2,82%
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. 2,56%
Mesta lækkun
Kögun hf. -2,40%
Ker hf. -1,64%
Íslandssími hf. -1,40%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8605,7 0,4%
Nasdaq*: 1404,5 1,0%
FTSE: 3974,9 1,3%
DAX: 3320,9 0,5%
Nikkei: 8727,7 -0,9%
S&P*: 908,4 0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
ADSL mótald • Stofngjald • Músarmotta
Samtals verðmæti 18.125 kr.
Aðeins 5.900 kr.
Hver býður betur?
Start-
pakkinn
- allt sem til þarf
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
94
98
11
/2
00
2
islandssimi.is
800 1111
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í skaða-
bótamáli Franklíns Steiner gegn
ríkissjóði vegna meintrar ólög-
mætrar handtöku lauk í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Franklín krefst einnar millj-
ónar króna í bætur. Hann segir
lögregluna í Hafnarfirði, þar
sem hann býr, hafa handtekið sig
að ástæðulausu í janúar í fyrra
þegar hann hafi verið að koma
úr bíltúr með sex ára syni sín-
um. Lögreglan hafi ekki verið að
rannsaka neitt ákveðið mál og
því ekki mátt taka hann höndum.
Lögregla hefur sagt að al-
mennar upplýsingar hefðu
borist henni um að Franklín
geymdi hass við Krýsuvíkurveg.
Þess vegna hefði hann verið elt-
ur og síðar handtekinn. Ekkert
hass fannst á Franklín eða í bíl
hans.
Franklín hefur áður fengið
bætur fyrir ólögmæta handtöku
lögreglunnar í Hafnarfirði. Þær
dæmdi Hæstiréttur honum
vegna atviks sem varð 1997. Líkt
og nú krafðist hann einnar millj-
ónar króna. Niðurstaðan var 40
þúsund krónur.
Dóms í málinu er að vænta
innan fjögurra vikna. ■
Aðalmeðferð í skaðabótamáli Franklíns Steiner lokið:
Fær Steiner aftur
fé fyrir handtöku?
FRANKLÍN STEINER
Franklín Steiner huldi andlit sitt þegar
hann mætti fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í
síðustu viku að gefa skýrslu í skaðabóta-
máli sínu gegn ríkissjóði.
Selfoss:
Skúringa-
konur
heiðraðar
RÆSTINGAR Skúringakonur sem
sjá um ræstingar í húsakynnum
Sveitarfélagsins Árborgar voru
heiðraðar í síðustu viku fyrir vel
unnin störf. Höfðu þær þá setið
námskeið á vegum fyrirtækisins
Gæðavörur sem séð hefur sveit-
arfélaginu fyrir hreinlætisvör-
um síðastliðin fjögur ár.
Vörurnar eru umhverfisvænar
og því betri en hefðbundnar
vörur. Á fyrrnefndu námskeiði
fengu skúringakonurnar leið-
beiningar um meðferð þeirra. ■
FLOTI FISKIBÁTA Á ERMARSUNDI
Sjómenn lokuðu í gær siglingaleiðum og
höfnum við Ermarsund og víðar í Evrópu.
Evrópusambandið:
Sjómenn
mótmæla
LONDON, AP Sjómenn í norðanverðri
Evrópu efndu til mótmæla í gær
gegn tillögum Evrópusambandsins
um samdrátt í fiskveiðum. Veiði-
heimildir verða minnkaðar um allt
að 80% ef tillögur Franz Fischlers,
sjávarútvegsstjóra Evrópusam-
bandsins, ná fram að ganga.
Eliot Morley, sjávarútvegsráð-
herra Breta, segir þennan sam-
drátt ganga of langt. „Ég tel að
þetta hefði hrikalegar afleiðingar
fyrir sjávarútveginn,“ sagði hann í
viðtali við BBC.
Sjómenn frá Danmörku, Bret-
landi, Belgíu, Hollandi og fleiri
ríkjum lokuðu mörgum höfnum í
gær með fiskibátum sínum til þess
að mótmæla samdrættinum.
„Þetta er of mikill og hraður
samdráttur og við fáum ekkert
tækifæri til þess að bæta okkur
upp skaðann,“ sagði Steven Moss,
breskur sjómaður.
Vegna mikils þrýstings frá sjó-
mönnum og útgerðarmönnum þyk-
ir ólíklegt að tillögur Fischlers nái
fram að ganga óbreyttar. ■
AP
/M
YN
D
EKIÐ Á HREINDÝR Pallbíl var
ekið á hreindýr í Lóni austan
Hafnar í Hornafirði á þriðju-
dagsmorgun. Að sögn lögregl-
unnar á Höfn var dýrið í stórri
hjörð sem var í Lóninu. Dýrið
drapst við áreksturinn en öku-
mann sakaði ekki. Mikið er nú
um hreindýr á þessu svæði en
slíkt er venja á þessum árstíma.
BÍLVELTA Í FAGRADAL Bíll valt í
Fagradal, milli Egilsstaða og
Reyðarfjarðar, um eittleytið í
gærdag. Ökumaðurinn, sem var
einn í bílnum, slasaðist ekki al-
varlega.
FERÐAMÁL „Ég hef enga ástæðu til
að ætla annað en að við fáum leyfi
til flugsins. Í fyrstu verður flogið
vikulega en líklega verður dag-
legt flug í sumar,“ segir Steinþór
Jónsson, hótelstjóri
Hótel Keflavíkur
og umboðsmaður
kanadíska flugfé-
lagsins HMY
Airways, sem í gær
sótti um að fá að
flytja flugfarþega
frá Keflavík til
Vancouver. HMY Airways byrjar
að fljúga til Íslands í næstu viku á
leiðinni frá Vancouver á vestur-
strönd Kanada til Manchester á
Englandi.
Steinþór hefur þegar átt fund
með Sturlu Böðvarssyni sam-
gönguráðherra vegna málsins og
segir að sá fundur hafi lofað góðu.
Í gær sendi Steinþór inn umsókn
til ráðuneytisins. Hann var áður
umboðsmaður Canada 3000, sem
bauð Íslendingum upp á lág far-
gjöld um tíma. Steinþór segir að á
þeim tíma hafi þjónustugjöld í
Keflavík verið mjög há. Nú sé
raunin önnur og þessi gjöld séu að-
eins þriðjungur þess sem var þá.
Nú er kostnaðurinn aðeins 1.000
dollarar á vél í stað 3.000 dollara
áður eða um 67 prósent lægri.
Þrír aðilar þjónusta vélar í
Keflavík og hefur kanadíska flug-
félagið þegar samið við Vallarvini
um að annast þjónustuna. Stein-
þór segir að miklar gjaldeyris-
tekjur fylgi komu flugfélagsins.
10 til 12 stöðugildi þurfi til að
þjónusta félagið og óbein vinna
fyrir 30 til 40 manns hljótist af.
HMY Airways, sem er í eigu kín-
versks auðkýfings, er með tvær
Boeing 757-200 vélar í rekstri en
mun fjölga í sex vélar í vor.
„Ég vonast til þess að fyrstu Ís-
lendingarnir fljúgi í febrúar eða
mars,“ segir Steinþór. Heimildir
Fréttablaðsins herma að fargjald-
ið fyrir níu tíma flug frá Keflavík
til Vancouver með HMY verði um
eða innan við 50 þúsund krónur.
Íslendingar geta ekki keypt
fargjöld með félaginu til Evrópu
en ástæðan er sú að alþjóðareglur
heimila ekki að taka farþega héð-
an til Englands.
rt@frettabladid.is
Þjónustugjöldin
67 prósent lægri
Hótelstjóri í Keflavík er óþreytandi í að semja við flugfélög um að koma
til Íslands. Vonast er til þess að fyrstu Íslendingarnir fljúgi til Kanada
með HMY Airways í febrúar. Fargjaldið innan við 50 þúsund.
STEINÞÓR JÓNSSON
Tók að sér að vera umboðsmaður kanadís-
ka flugfélagsins HMY Airways.
Þjónustugjöld
í Keflavík eru í
dag aðeins
þriðjungur
þess sem
áður var.
ALÞINGI Tryggja verður að Lands-
virkjun bíði ekki skaða af þeirri
niðurstöðu óbyggðanefndar að
vatnsréttindi á Þjórsársvæðinu
séu ekki eign fyrirtækisins heldur
ríkisins, sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra í fyrirspurnartíma
á Alþingi. „Ég vonast til að geta
lagt frumvarp þess efnis fyrir
þingið um leið og það kemur sam-
an aftur.“
Svanfríður Jónasdóttir, þing-
maður Samfylkingar, segir að sér
finnist svörin ekki benda til þess
að forsætisráðherra hafi mikinn
skilning á breytingum sem séu að
eiga sér stað. Þá sé athyglisvert að
forsætisráðherra ætli ekki að láta
atvinnugreinar standa við sama
borð. Stigið hafi verið hænufet í þá
átt að láta sjávarútveginn greiða
auðlindagjald en Landsvirkjun eigi
að sleppa við það samkvæmt svör-
um forsætisráðherra.
Davíð sagðist telja ótvírætt að
þar sem eignarhlutur ríkisins í
Landsvirkjun hafi aukist þegar
vatnsréttindin voru afhent fyrir-
tækinu á sínum tíma hafi komið
gjald fyrir réttindin. ■
Eignarréttur vatnsréttinda:
Landsvirkjun
skaðist ekki
DAVÍÐ ODDSSON
Telur að Landsvirkjun hafi þegar greitt fyrir vatnsréttindi í Þjórsárverum og hyggst leggja
fram frumvarp til að tryggja rétt fyrirtækisins.
FJÖLGAR Í HERNUM Þúsundir
ungra manna á Fílabeinsströnd-
inni buðu sig fram til herþjón-
ustu til þess að berjast gegn
uppreisnarmönnum, sem hafa
barist gegn stjórnarhernum í
þrjá mánuði. Um það bil 2.000
manns hópuðust saman fyrir
utan varnarmálaráðuneyti lands-
ins og hrópuðu: „Við viljum bún-
inga!“
Akureyringur:
Hættir ekki
að keyra
DÓMSMÁL Karlmaður fæddur 1980
hefur verið sviptur ökuleyfi í tvö
ár.
Maðurinn ók án þess að hafa
ökuréttindi frá Reykjavík til Akur-
eyrar í febrúar og ölvaður innan-
bæjar á Akureyri í ágúst. Áfengis-
magn í blóði mannsins mældist 0.86
prómill. Sjálfur taldi hann sig alls-
gáðan.
Maðurinn var fyrst sviptur öku-
réttindum í júlí 2001 til eins árs.
Engu að síður var hann ítrekað tek-
inn við akstur eftir það. Fyrir sex
vikum var hann dæmdur í 15 mán-
aða skilorðsbundið fangelsi vegna
brota á hegningarlögum. ■