Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 28
12. desember 2002 FIMMTUDAGUR Ég er alltaf rosalega ánægðurmeð þær gjafir sem ég fæ,“ segir Ólafur Ástgeirsson, sem leiðir þó sjaldan hugann að jóla- gjöfum og kýs helst eitthvað nyt- samlegt. „Auðvitað er gaman að fá allt í jólagjöf en mér finnst alltaf mjög praktískt að fá fatnað eins og til dæmis skyrtu og bindi eða hanska. Eitthvað sem allir geta keypt ef þeir vita nokkurn veginn hvernig maður er í laginu. Ég er alls ekki nógu duglegur að kaupa mér föt sjálfur svo það kemur sér mjög vel að fá þau í jólagjöf.“ Konurnar í fjölskyld- unni hafa verið duglegar við að gefa Ólafi föt enda þekkja þær hann vel og vita upp á hár hvað hann vantar og hvers hann óskar. „Þær velja fötin yfirleitt sjálfar enda treysti ég þeim vel til þess að vita hvað mér líkar. Þær reyna stundum að grennslast lúmskt fyrir um það hvað mig vantar en helst þannig að ég fatti ekki neitt.“ Ólafur hefur mjög gaman af bókum og segir þær vel þegnar undir jólatréð. „Ég er meira fyrir fræðandi bækur og tek þær yfir- leitt fram yfir skáldsögur. Sagn- fræðirit finnast mér oft bitastæð og eins ævisögur manna sem hafa frá einhverju að segja. Því miður eru sorglega fáir sem gefa mér bækur og þá einna helst systkini mín.“ Ólafur gefur sjálf- ur systkinum sínum og móður yf- irleitt bækur og reynir þá að velja einhverjar sem hann ímyndar sér að þau muni hafa gaman af að lesa. „Ég myndi samt aldrei gefa bók sem ég gæti ekki hugsað mér að lesa sjálfur.“ Ólafur segist glugga í bækurnar yfir jólin eftir því sem tími vinnst til en viðurkennir að jóla- fríið sé yfirleitt alltof stutt og er- ilsamt til að hægt sé að sökkva sér í lestur. Ólafur er mikill áhugamaður um tónlist og finnst alltaf ánægjulegt að fá nýja geisladiska í safnið. „Þeir sem gefa mér jóla- gjafir þekkja mig nógu vel til að vita hverju ég hef gaman af. Bók- um og geisladiskum er líka alltaf hægt að skipta án vandræða og það ætti maður ekki að hika við að gera ef manni líkar ekki það sem maður fær,“ segir Ólafur. Í dag virðist sem minna sé um að hjónum séu gefnir nytsamleg- ir hlutir í sameiningu og það á einnig við hjá Ólafi. „Ég og konan mín fáum sjaldan sameiginlegar jólagjafir í seinni tíð. Mér finnst eins og gjafirnar séu orðnar persónulegri núorðið og ekki eins mikið um að verið sé að gefa fólki hluti til heimilisins nema þá helst ef það er nýbyrjað að búa.“ ■ Ólafur Ástgeirsson tengir jólin ekki við veraldleg gæði og kýs helst nytsamlegar og þarfar jólagjafir. Hann treystir sínum nán- ustu fullkomlega til að velja eitthvað sem honum líkar og er iðu- lega hæstánægður með það sem hann fær. „Auðvitað er gaman að fá allt í jólagjöf en mér finnst alltaf mjög praktískt að fá fatnað eins og til dæmis skyrtu og bindi eða hanska.“ JÓLAGJÖF HANDA karlmanni um fertugt Föt eru alltaf vel þegin ÓLAFUR ÁSTGEIRSSON Ætlar að halda jólin heima í faðmi fjölskyldunnar og hefur litlar áhyggjur af jólagjöfunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G Ó

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.