Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 31
31FIMMTUDAGUR 12. desember 2002 Heimsendingar og sótt! A f g r e i ð s l u t í m i : 1 1 - 0 1 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 6 u m h e l g a r Grensásvegur 12 533 2200 SPRENGITILBOÐ! 12“ pizza m/3 áleggstegundum 690 kr. 16“ pizza m/3 áleggstegundum 990 kr. 18“ pizza m/3 áleggstegundum 1.190 kr. EF SÓTT EF SÓTT EF SÓTT SAGA jólanna Fæðingar- dagur Jesú Þó að fjöldinn allur af fræði- mönnum og leikmönnum hafi stundað rannsóknir á ævi Jesú svo öldum skiptir hefur enn ekki tekist að fastsetja með vissu fæð- ingardag frelsarans. Þó vitum við að haldið var upp á 25. desember sem afmæli Jesú í fyrsta sinn í Róm árið 336 og var það þá gert til þess að reyna að draga athygl- ina frá hátíðarhöldum sem haldin voru um þetta leyti til heiðurs rómversku sólguðunum. Hér á Ís- landi sem og á hinum Norður- löndum tíðkaðist í heiðnum sið að halda stóra hátíð í nánd við vetr- arsólhvörf, sennilega til að bjóða skammdeginu birginn og fagna rísandi sól. Margt er á huldu um þessi hátíðarhöld og hvernig þau þróuðust en ljóst er að þegar kristni barst til landsins runnu þau saman við fæðingarhátíð frelsarans. Óhætt er að segja að tímasetning jólanna sé ákaflega vel til fundin fyrir íbúa Norður- hvels jarðar þar sem þau hleypa birtu og yl inn á heimilin einmitt þegar skammdegið stendur sem hæst. ■ Ínótt kom Stekkjastaur tilbyggða og færði börnum glaðn- ing, fyrstur bræðra sinna. Von- andi fékk enginn kartöflu í skóinn en ef svo fór þá er tækifæri til að bæta ráð sitt áður en Giljagaur kemur til byggða í kvöld. Í dag er líka tilvalið að hefjast handa við konfektgerð svo hægt sé að bjóða gestum upp á heimagert sælgæti og jafnvel lauma nokkrum molum með í jólapakkana. ■ 12 DAGAR TIL JÓLA ÍEnglandi, Bandaríkjunum og víð-ar er mistilteinn vinsælt skraut á heimilum yfir jólahátíðina og er hefð fyrir því að fólk fái koss ef það stendur undir greininni. Hér á Ís- landi hefur þessi siður ekki fest rætur enda er mistilteinninn frá fornu fari tengdur harmrænum at- burði í norrænum goðsögum. Þar segir frá því þegar Baldur, hinn hvíta ás, dreymir fyrir dauða sínum og allir leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að draumurinn verði að veruleika. Frigg, móðir Baldurs, ákveður að biðja allar skapaðar verur og hluti að heita sér því að gera honum aldrei mein. Baldur var allra ása hugljúfastur og því var bón Friggjar auðsótt. Á vegi hennar varð þó ein hrísla sem henni þótti of ung til að krefja eiðsins og fór því svo að mistilteinninn var það eina í veröldinni sem skaðað gat Baldur. Árin liðu og ásar gerðu það að leik sínum að skjóta örvum að Baldri, sem aldrei kenndi sér meins. Loka hinum lævísa tók að leiðast þessi leikur og ákvað hann því að grípa til sinna ráða. Hann gabbaði Höður hinn blinda ás til að skjóta mistilteinsör að Baldri og fór svo að hann lá örendur eftir. ■ Jólahefðir: Mistilteinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.