Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 27
27FIMMTUDAGUR 12. desember 2002
Blásarasveit Vesturbæjarskóla
í uppl‡stum gar›inum kl.16:00
Dagskrá Litlu jólanna á Hressó er að finna á www.reykjavik.is
Fimmtudagur 12. desember
Opið frá kl 14 - 18
/ T
ei
kn
in
g:
H
al
ld
ór
B
al
du
rs
so
n
Upplestur Jón Björnsson og Stefán
Sigurkarlsson lesa úr bókum sínum
Einnig verður lesið úr bókinni
um George Best
Jólagjöfin í ár:
Sögulegir
skór og
fingrabrúður
Síðastliðið vor opnaði safnbúð í
Listasafni Íslands og þar er
hægt að fá ýmsar sniðugar og
óvenjulegar jólagjafir fyrir börn
jafnt sem fullorðna. Í búðinni
eru seldar bækur, plaggöt og
kort sem safnið gefur út auk ís-
lenskra listmuna af ýmsu tagi,
einkum keramik, glermunir og
skartgripir. Í bland við íslenskar
vörur er mikið úrval af gjafa-
vöru frá erlendum söfnum, til
dæmis geisladiskar, bækur og
safngripir. Frá Metropolitan-
safninu í New York hefur búðin
fengið litla skó úr plastefni sem
steyptir eru eftir sögulegum
skóm í eigu safnsins. Með hverj-
um skó fylgja upplýsingar um
uppruna hans og sögu. Skóna er
hægt að hengja upp og þeir geta
því verið skemmtilegt skraut á
jólatréð fyrir þá sem vilja fara
óhefðbundnar leiðir.
Safnbúðin hefur einnig á
boðstólum vörur fyrir yngstu
kynslóðina og nýlega fékk búðin
upp í hendurnar brúðuleikhús og
fingrabrúður við vinsæl ævin-
týri. Brúðurnar eru fluttar inn
frá Bandaríkjunum en ævintýrin
fylgja með á íslensku. ■
Englaskraut verður sífellt vin-
sælla á Íslandi enda hafa
englarnir yfir sér einstaklega
hátíðlegan og friðsamlegan blæ.
Þeir hafa verið nátengdir jóla-
hátíðinni frá upphafi og gegna
stóru hlutverki í jólaguðspjall-
inu. Þar er sagt frá því þegar
þeir birtust fjárhirðunum við
Betlehem og tilkynntu þeim
fæðingu frelsarans. Því er það
vel við hæfi að á mörgum heim-
ilum tróni engill á toppi jóla-
trésins í stað jólastjörnu.
Englar TÁKN jólahátíðar