Fréttablaðið - 12.12.2002, Qupperneq 4
4 12. desember 2001 FIMMTUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Hvort kanntu betur við hvít
eða rauð jól?
Spurning dagsins í dag:
Kaupirðu bækur fyrir jólin?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
12%
18%Rauð
70%
FLESTIR VILJA
SNJÓ
Flestir gesta á
frett.is vilja hvít
jól, en um fimmt-
ungur vill hafa
auða jörð.
Alveg sama
Hvít
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur vísað
frá fjárkröfu Betri Pizza ehf. á
hendur Papa John’s International,
Inc. Málið eigi að leysa með gerð-
ardómi eins og fyrirtækin hafi
áður gert samkomulag um.
Tveir bræður sem eiga Betri
Pizzur gerðu sérleyfissamning
við Papa John’s um að selja pitsur
undir merkjum bandarísku keðj-
unnar hérlendis. Salan hófst 31.
ágúst 2000.
Bræðurnir segja að vegna
ósveigjanlegra skilyrða Papa
John’s um gæði áleggs, stærð
pitsanna og flókinna vinnuferla
hafi hráefniskostnaðurinn á end-
anum sligað reksturinn. Kostnað-
urinn hafi alls ekki verið í sam-
ræmi við umsamin 30 til 40% af
heildarrekstrarkostnaði. Þegar
allt hafi verið komið í ógöngur, að-
eins sjö mánuðum eftir opnum,
hafi Papa John’s loks fallist á að
minnka mætti pitsurnar. Það hafi
þó engu bjargað.
Aðalkrafa Betri Pizza hljóðar
upp á 409 milljónir króna, sem
bræðurnir segja að væri verð-
mæti rekstrarins hefði viðskipta-
áætlun þeirra náð fram að ganga.
Til vara krefjast þeir 5 milljóna
króna bóta vegna útlagðs kostnað-
ar og rekstrartaps.
Bræðurnir telja að þeim sé
fjárhagslega ofviða að sækja rétt
sinn í gerðardóm. ■
HÆSTIRÉTTUR
Vísaði kröfu frá.
Betri Pizzur og Papa John’s í gerðardóm:
Kröfu pitsubræðra
vísað frá Hæstarétti
Matvælaverð:
Borið saman
við útlönd
ALÞINGI Þingmenn samþykktu
þingsályktunartillögu Rannveigar
Guðmundsdóttur, þingmanns Sam-
fylkingar, á ástæðum mismunandi
matvælaverðs hér og í helstu ná-
grannalöndum.
Þingsályktunartillagan breyttist
talsvert í meðförum þingsins. Alls-
herjarnefnd þótti hún kalla á of um-
fangsmiklar og kostnaðarsamar að-
gerðir í upphaflegri gerð sinni.
Þingið felur ríkisstjórn nú að kanna
matvælaverð hér í samanburði við
helstu nágrannalönd og reyna að
gera grein fyrir hugsanlegum
ástæðum á mismunandi verðlagi og
er þar kveðið vægar að orði en í
upphaflegu tillögunni. ■
DAVÍÐ ODDSSON
Sagðist vonast til að leggja fram frumvarp
á næstunni en tók fram að slíkar yfirlýsing-
ar hefði hann gefið áður.
Breytt matvælaeftirlit:
Styttist í
frumvarp
ALÞINGI Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra vonast til þess að geta
fljótlega lagt fram lagafrum-
varp þar sem skipulag matvæla-
eftirlits er fært til betri vegar.
Davíð sagði á þingfundi að út-
tekt á núverandi fyrirkomulagi
hefði sýnt að það væri óviðun-
andi. Unnið hefði verið að drög-
um að nýju skipulagi þar sem
gert er ráð fyrir að landinu verði
skipt í nokkur eftirlitssvæði en
ein stofnun hafi yfirumsjón með
eftirlitinu. Hann sagði sveitar-
stjórnir hafa gert athugasemdir
við að matvælaeftirlit væri tekið
úr verkahring þeirra.
Gert er ráð fyrir að kostnaður
við matvælaeftirlit verði svipað-
ur eftir breytingu og fyrir. ■
Störf kjörnefndar D-lista
í Suðurkjördæmi:
Aðfinnslur
í 10 liðum
FRAMBOÐ „Heiður flokksins er að
veði, að miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins sýni í verki að ekki sé
hægt að leyfa sér hvað sem er í
nafni flokksins.“ Þetta eru nið-
urlagsorðin í bréfi varamanns í
kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi til miðstjórnar
vegna uppstillingar á framboðs-
lista. Tínd eru til tíu atriði og ber
allt að sama brunni. Kjörnefnd
er sökuð um trúnaðarbrot, vís-
vitandi mismunun á frambjóð-
endum og þverbrot á siðaregl-
um. Tveir kjörnefndarmenn eru
sagðir hafa setið áfram, þrátt
fyrir að hafa gefið kost á sér,
varamenn voru ekki boðaðir þótt
aðalmenn vantaði og fullyrt er
að rétt kjörnum varamönnum
hafi jafnvel verið neitað um setu
í kjörnefndinni. Erindið var lítil-
lega rætt á fundi miðstjórnar
Sjálfstæðisflokksins en síðan
vísað til framkvæmdastjóra.
Svars er ekki að vænta fyrr en
eftir jól. ■
VIÐSKIPTI Viðskipti voru stöðvuð
með bréf Aco-Tæknivals í gær
eftir að tilkynning barst um að
viðræður væru í gangi um sölu
verslunarrekstrar félagsins.
Rekstur félagsins hefur verið erf-
iður að undanförnu. Verslunar-
rekstur er um helmingur af starf-
semi félagsins.
Að sögn forsvarsmanna fyrir-
tækisins er stefnt að því að samn-
ingum ljúki fyrir lok þessarar
viku. Nokkrir fjárfestar munu
koma að kaupum verslunarsviðs
félagsins. Orðrómur hefur verið á
kreiki um að Bjarni Ákason, for-
stöðumaður sviðsins, fari fyrir
hópnum, en það hefur ekki fengist
staðfest.
Innan verslunarsviðsins eru
verslanirnar BT tölvur, Office1
og Sony og Apple setrið. Búnað-
arbanki Íslands, sem á ríflega
þriðjung í fyrirtækinu, tekur
þátt í viðræðunum. Bankinn á
nokkuð undir því að takist að
gera verðmæti úr fyrirtækinu.
Eigið fé þess var samkvæmt níu
mánaða uppgjöri neikvætt um
140 milljónir. ■
ERFIÐUR REKSTUR
Búnaðarbankinn á rúman þriðjung
í Aco-Tæknivali. Unnið er að sölu
verslunarrekstrar til að létta á fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins.
Brugðist við rekstrarvanda:
Aco-Tæknival selur verslanir
FJÖLMIÐLAR „Ég er afar ánægð að
hafa fengið þetta starf. Maður
vissi aldrei hver niðurstaðan
yrði,“ segir Elín Hirst, sem skipuð
var nýr fréttastjóri Ríkissjón-
varpsins síðdegis í gær. Aðdrag-
andinn var langur og nú síðast
þurfti Elín að lúta í
lægra haldi fyrir
Sigríði Árnadóttur
fréttamanni í at-
kvæðagreiðslu í
útvarpsráði í
fyrradag. En út-
varpsstjóri hugs-
aði sig um í sólar-
hring og valdi svo
Elínu. Hún á ekki
von á miklum
breytingum í rek-
stri fréttastofunnar á næstunni:
„Fréttastofan er að koma vel
út í áhorfskönnunum. Þetta er sú
fréttastofa sem fólk segist
treysta best og það eru viss skila-
boð um að halda um stjórnvölinn
eins og verið hefur. En vissulega
væri gaman að kanna ný lönd
þegar fram líða stundir,“ segir
Elín, sem starfað hefur við fjöl-
miðla allt frá því að hún lauk fjöl-
miðlanámi í háskólabænum
Gainesville í Flórída fyrir 18
árum. Nú er hún 42 ára, gift Frið-
riki Friðrikssyni, framkvæmda-
stjóra Breiðbands Landssímans.
Saman eiga þau tvo syni og búa á
Seltjarnarnesi:
„Ég hef aldrei skilið hvers
vegna það ætti að vera erfiðara
fyrir konu en karlmann að gegna
þessu starfi. Ég þekki frétta-
stjórastarfið vel og svo er staðan
heima hjá mér orðin önnur en
áður þar sem annar strákurinn er
kominn í menntaskóla og hinn í tí-
unda bekk í grunnskóla,“ segir nýi
fréttastjórinn, sem notar frí-
stundir sínar til mastersnáms í
sagnfræði við Háskóla Íslands.
Nýkomin úr fyrsta prófinu. Svo
stundar hún leikfimi af miklu
kappi „...og reyni svo að hugsa um
fjölskylduna þess á milli,“ eins og
hún segir sjálf.
Elínu hefur verið legið á hálsi
fyrir að vera vinkona Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra og
það hefur ekki alltaf auðveldað
henni starfið. Á þessu hefur hún
þó skýrar skoðanir: „Frétta-
mennska og pólitík fara afskap-
lega illa saman. Ef maður ætlar að
vera fagmaður í fjölmiðlum þá
skiptir maður sér ekki af pólitík.
Svo einfalt er það,“ segir Elín
Hirst, fréttastjóri Ríkissjónvarps-
ins frá því í gær.
eir@frettabladid.is
ELÍN HIRST
Tveggja barna móðir á Seltjarnarnesi; fagmaður sem skiptir sér ekki af stjórnmálum.
Fréttamennska og
pólitík fara illa saman
Elín Hirst var ráðin fréttastjóri Ríkissjónvarpsins í gær. Á ekki von á
breytingum en gæti hugsað sér að kanna ný lönd.
„Ég hef aldrei
skilið hvers
vegna það
ætti að vera
erfiðara fyrir
konu en karl-
mann að
gegna þessu
starfi.“
Varasjóður húsnæðis-
mála:
Kominn á
Krókinn
VARASJÓÐUR Sigurður Árnason hef-
ur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Varasjóðs húsnæðismála, en
sjóðurinn hefur aðsetur á Sauðár-
króki. Sigurður tekur við af Garð-
ari Jónssyni, skrifstofustjóra í fé-
lagsmálaráðuneytinu, en sjóður-
inn hefur haft starfsemi sína þar
frá því hann var stofnaður þann 1.
ágúst síðastliðinn. Varasjóði hús-
næðismála er ætlað að veita fram-
lög til sveitarfélaga og félaga á
þess vegum vegna félagslegra
íbúða og tekur hann jafnframt við
öllum réttindum og skyldum vara-
sjóðs viðbótarlána, sem lagður
var niður samhliða. Tekjur sjóðs-
ins verða að minnsta kosti 140
milljónir króna á ári. ■
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
varasjóður húnsæðismála flyst nú frá ráðu-
neytinu norður í skagafjörð, ásamt nýjum
framkvæmdastjóra.
Kröfum um að hlé verði
gert á stóriðjuviðræðum:
Tekið með
stóískri ró
STÓRIÐJA Samningamenn Alcoa og
íslenska ríkisins taka með stóískri
ró kröfum um að hlé verði gert á
viðræðum í tengslum við fyrir-
hugað álver í Reyðarfirði uns
dómstólar hafa úrskurðað í kæru-
málum vegna mats á umhverfis-
áhrifum Kárahnjúkavirkjunar.
Atli Gíslason hæstaréttarlög-
maður hefur ritað aðalforstjóra
Alcoa bréf vegna þessa og krafist
þess að fyrirtækið hætti öllum
samningaviðræðum við Íslend-
inga uns úrskurður dómstóla ligg-
ur fyrir. Atli Gíslason, Náttúru-
verndarsamtök Íslands og fleiri
stefndu málinu fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur í upphafi þessa árs
til ómerkingar á úrskurði um-
hverfisráðherra um mat á um-
hverfisáhrifum Kárahnjúkavirkj-
unar. Málinu var vísað frá, meðal
annars vegna þess að Landsvirkj-
un hafði ekki verið stefnt, og stað-
festi hæstiréttur þá niðurstöðu í
sumar.
Aftur var stefnt í málinu, með-
al annars bæði Landsvirkjun og
Fjarðabyggð, og hefur málflutn-
ingur farið fram. Niðurstöðu dóm-
stóla er beðið en á meðan sitja
fulltrúar Íslands og Alcoa að
samningaborði. Stefnt er að því að
ljúka gerð raforkusamnigs við
Landsvirkjun í lok vikunnar. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó