Fréttablaðið - 12.12.2002, Page 8
8 12. desember 2001 FIMMTUDAGUR
Höfn í Hornafirði:
Sykursæt síld á dönsk jólaborð
ÚTFLUTNINGUR „Danir vilja mikinn
sykur í síldina. Miklu meiri sykur
en aðrir,“ segir Hermann Stefáns-
son, framleiðslustjóri hjá Skinney –
Þinganesi á Höfn í Hornafirði. Þar
er starfsfólk nú í óða önn við að
ganga frá síldarflökum í dósir sem
sendar eru til Danmerkur og lenda
þar á jólahlaðborðum. Mikil eftir-
spurn er eftir síld í Danmörku fyrir
jólin enda litið á hana sem órjúfan-
legan hluta jólaundirbúningsins:
„Síðustu þrjár vikur höfum við
sent 200 þúsund dósir með síld til
Danmerkur en árlegur útflutning-
ur okkar nær 900 þúsund dósum.
Þetta eru edikflök og kryddflök í
sykurlegi að sérstakri ósk danskra
kaupenda,“ segir Hermann Stef-
ánsson, sem hefur verulegar
áhyggjur af síldarvertíðinni: „Hún
er búin að vera afspyrnuslæm. Við
fáum sáralitla sem enga síld,“ seg-
ir hann. ■
SÍLD
Á dönsku jólaborði.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
D
EB
1
94
55
12
/2
00
2
hva› fær› flú í s kó i n n . . .
. . . f rá 1 2 . - 1 5 . d e s emb er?
S M Á R A L I N D
debenhams
STEKKJASTAUR
færir þeim sem kaupa
herrajakkaföt
4.000 kr.
gjafabréf
til kaupa á skyrtu
og bindi í herradeildinni.
GILJAGAUR
færir öllum
sem kaupa
dömuspariskó
sokkabuxur
að gjöf.
STÚFUR
færir öllum
sem kaupa
50 ml. ilmvatnsglas
1.000 kr. gjafabréf
í snyrtivörudeildinni.
ÞVÖRUSLEIKIR
færir þér 20% afslátt
af barnaúlpum.
Arnaldur Indriðason
Einar Már Guðmundsson
Einar Kárason
Guðrún Eva Minervudóttir
Stefán Máni og
Þórarinn Eldjárn
KK mætir og tekur lagið
Fimmtudagskvöldið
12.desember kl. 20:00
lesa rithöfundarnir
Brot af því besta
í anddyri
Borgarleikhússins
Óskar Guðjónsson saxafónleikari og
Davíð Þór Jónsson píanóleikari leika léttan jazz fyrir gesti.
Veitingasala verður á staðnum.
Ókeypis aðgangur
Jemen vill fá
flugskeytin
Fimmtán flugskeyti frá Norður-Kóreu fundust um borð í flutningaskipi
úti af austurhorni Afríku á mánudag. Bandaríkin segja Jemen hafa
brotið samning. Norður-Kórea segir að öllum ríkjum beri að koma sér
upp vörnum af eigin rammleik.
MADRID, WASHINGTON, AP Háttsettur
embættismaður í Jemen sagði í
gær að fimmtán flugskeyti og
annar hernaðarbúnaður frá
N o r ð u r- K ó r e u ,
sem fannst falinn
í skipi á Araba-
hafi á mánudag-
inn, sé í eigu Jem-
ens. Stjórnvöld
þar í landi vilja fá
þau afhent.
B a n d a r í k i n
segja kaupin brot
á samningi sem Jemen hafi gert
við Bandaríkin eftir að Norður-
Kóreu var bannað að selja búnað
af þessu tagi. Sendiherra Banda-
ríkjanna í Jemen var hins vegar
kallaður á fund utanríkisráð-
herra Jemens, þar sem því var
mótmælt að Bandaríkin legðu
hald á flugskeytin.
Tvö spænsk herskip stöðvuðu
flutningaskipið Sosan á Araba-
hafi um það bil 520 sjómílur út
af austurhorni Afríku. Flug-
skeytin voru falin í sements-
farmi skipsins.
Bandaríska leyniþjónustan
hafði fylgst með skipinu um
hríð. Tvö spænsk skip, Navarra
og Patinu, sem tekið hafa þátt í
hernaðaraðgerðum undir stjórn
Bandaríkjanna í þessum heims-
hluta, stöðvuðu skipið á mánu-
dag. Í gær tóku bandarískir her-
menn að sér stjórn skipsins. Það
er nú á leið til hafnar.
Skipinu var ekki siglt undir
neinum þjóðfána, en skipstjór-
inn sagði það skráð í Kólumbíu.
Hann sagði einnig að síðast
hefði það komið til hafnar í
Kína. Rúmlega tuttugu manns
voru í áhöfn þess. Þeir sögðust
allir vera frá Kóreu, en nefndu
ekki hvort þeir ættu við Suður-
eða Norður-Kóreu.
Flugskeytin eru bæði
skammdræg og meðaldræg. Þau
eru svipaðrar gerðar og Scud-
flugskeytin sem Írakar notuðu í
Flóabardaga.
Hryðjuverkamenn hafa haft
bækistöðvar í Jemen, en stjórn-
völd þar í landi hafa skipað sér í
flokk með Bandaríkjunum í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum.
Embættismenn í Jemen fullyrtu
í fyrstu að þeir hefðu ekkert vit-
að um ferðir þessa skips.
„Öllum ríkjum ber skylda til
að koma sér upp af eigin ramm-
leik hernaðarmætti sem þau
geta sjálf treyst á,“ sagði í gær í
leiðara Rodong Sinmun, sem er
opinbert dagblað stjórnarinnar í
Norður-Kóreu. „Nauðsynlegt er
að vera betur á verði gegn hern-
aðaráætlun Bandaríkjanna um
að ná heimsyfirráðum og ‘stríði
gegn hryðjuverkum’,“ segir enn
fremur í leiðaranum.
Ekki er vitað hvort þessi leið-
ari er skrifaður beinlínis sem
viðbrögð við fundi flugskeyt-
anna. Venjulega eru stjórnvöld í
Norður-Kóreu nokkra daga hið
minnsta að bregðast við heims-
málunum. ■
Breskur dómstóll:
Zakajev
frjáls áfram
LONDON, AP Tsjetsjeninn Akhmed
Zakajev verður
ekki hnepptur í
fangelsi í Bret-
landi þrátt fyrir að
Rússar hafi opin-
berlega krafist
framsals hans.
Rússar saka hann
um hryðjuverk og
fleiri glæpi í
tengslum við að-
skilnaðarbaráttu
Tsjetsjena. Danir
handtóku Zakajev
í október en létu hann lausan í lok
nóvember. ■
SPÆNSKI HERINN
Spænskir hermenn beina vopnum sínum
að flutningaskipinu Sosan. Fimmtán flug-
skeyti fundust falin í sementsfarmi skipsins
þegar það var tekið úti af austurhorni Afr-
íku á mánudaginn.
„Nauðsynlegt
er að vera
betur á verði
gegn her-
naðaráætlun
Banda-
ríkjanna.“
AP
/A
H
N
Y
O
U
N
G
-J
O
O
N
ORÐRÉTT
JAFNVEL ALLRAR
ÞJÓÐARINNAR
Ég reiknaði með að fá a.m.k.
meirihlutastuðning útvarpsráðs.
Elín Hirst fékk minnihluta atkvæða út-
varpsráðs í stöðu fréttastjóra. DV, 11. des-
ember.
HVAÐ EF MAÐUR ER TEKINN
FYRIR AÐ PISSA?
Þú ert að nota þetta til að fremja
glæp.
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari svarar
spurningu manns um hvort hann gæti
fengið aftur búnað sem hann notaði við
peningafölsun. DV, 11. desember
LEIÐIST ORÐIÐ JÓLAGLÖGGIÐ
Þá kom í ljós að sárafáir höfðu
freistast til að drekka áður en þeir
settust undir stýri.
Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn
um ánægjulega fækkun þeirra sem aka
eftir einn. Morgunblaðið, 11. desember.
Olíuskipið Prestige:
Lekur áfram olíu
AKHMED
ZAKAJEV
Var handtekinn
við komuna til
Bretlands.
MADRID, AP Um það bil 125 tonn af
olíu berast á hverjum degi frá olíu-
skipinu Prestige, sem brotnaði í
tvennt og sökk til botns út af Spán-
arströnd nýverið. Þessi olíuleki
gæti haldið áfram næstu þrjú árin.
Spænskir vísindamenn skýrðu
frá þessu á þriðjudaginn. Þeir segja
olíuna leka úr samtals fjórtán
sprungum á skipinu. Tveir kostir
eru nú fyrir hendi. Annað hvort að
loka sprungunum eða dæla því sem
eftir er af olíunni úr skipinu.
Upplýsingarnar um lekann hafa
vísindamennirnir úr frönskum
rannsóknarkafbáti.
Spænsk stjórnvöld hafa verið
gagnrýnd harðlega fyrir það hvern-
ig þau brugðust við þegar leki kom
að olíuskipinu 19. nóvember. ■