Fréttablaðið - 12.12.2002, Síða 26
26 12. desember 2002 FIMMTUDAGUR
Nú fer hver að verða síðasturað senda jólamat til útlanda.
Að sögn Sólmundar Oddssonar,
innkaupamanns í Nóatúni, fer
eftir því hvert verið er að senda
hvenær síðustu forvöð eru. „Síð-
ustu forvöð fyrir lengri leiðirnar
eru í kringum 15. desember en
því fyrr, því betra.“
Að sögn Sólmundar ættu þeir
sem eru til að mynda að senda til
Ameríku að fara að huga að því
að ganga frá sínum málum. Þær
sendingar sem fara til Evrópu
eða Skandinavíu mega fara af
stað örlítið seinna. Hann segir að
nokkurn tíma geti einnig tekið
að koma sendingunni af stað.
„Menn hringja inn og þá þarf að
taka til vörurnar og koma þessu
af stað, þannig að það tekur um
einn og hálfan sólarhring að
koma vörunni í sendingu,“ segir
Sólmundur.
Mikil aðsókn er í þjónustuna.
„Það er alveg ótrúlegt. Þetta er
alltaf að verða stærra. Bæði
hafa námsmenn erlends frá ver-
ið að hringja til okkar beint og
senda okkur tölvupóst og síðan
hafa ættingjar og aðrir sem eru
hér nýtt sér þessa þjónustu.“
Sólmundur segir að hangikjöt
sé langvinsælasta varan sem
send er út. Töluvert sé einnig
um konfekt, laufabrauð og flat-
brauð. ■
Síðustu forvöð
15. desember
MATUR Á LEIÐ ÚT
Starfsmaður Nóatúns í Austurveri pakkar jólamat sem senda
á til útlanda. Farið er varlega með vörurnar, þær meðhöndl-
aðar sem kælivörur og sendar undir merkjum DHL.
Ég ætla ekki að halda jól í ár ogelda ekkert,“ segir Margrét
Helga Jóhannsdóttir leikkona að-
spurð um jólamatinn og hefðirnar.
„Ég er að fara til Kanarí og vonast
til að fá þar smáan grillaðan kol-
krabba, sem er uppáhaldssjávar-
fangið.“
Margrét Helga hefur ekki fyrr
haldið jól á Spánarströndum en
hlakkar heilmikið til. „Ég var
reyndar í Damörku um jólin í
fyrra, hjá dóttur minni, og smakk-
aði þá í fyrsta skipti nokkuð sem
mig hafði lengi dreymt um, nefni-
lega fasana. Fólk í skáldsögum er
sífellt að gæða sér á þessum fugli,
en þegar til kom var hann svo sem
ósköp delíkat og fínn, en ekkert
miðað við rjúpuna og gæsina. Það
vantaði þetta sterka villibráðar-
bragð.“
Margrét Helga reiknar þó með
að fá skötu á Þorláksmessu. „Mér
er sagt að það sé einhver kona
sem selur skötu á bar á Kanarí,“
segir hún og finnst ekki mikið þótt
Spánverjar lifi við skötulykt einn
eftirmiðdag. „Það er alltaf svo
mikil hvítlauksfýla af Spánverj-
unum, ég held þeir geti þolað lykt-
ina,“ segir hún.
Margrét Helga segist vera
komin í hið algjöra jólafrí. „Nú
eru börnin uppkomin og tækifæri
til að gera eitthvað allt öðruvísi.
En ég hélt auðvitað alltaf jól fyrir
fjölskylduna og hafði þá oftast
villibráð á aðfangadagskvöld.
Hreindýr, rjúpur og gæs var al-
gengur jólamatur og eftirréttur-
inn ris a’la mande.“ Hún segist
alltaf hafa haft gaman af að elda.
„Ef ég hætti í leiklistinni myndi
ég sennilega koma mér í eitthvert
eldhús. Þess vegna er ég svona
myndarleg utan um mig, ekki af
því ég hreyfi mig ekki heldur
vegna þess hvað mér þykir gott að
borða. Ég leifi nefnilega aldrei af
diskinum mínum,“ segir Margrét
Helga og er nú þegar komin í
ferðagírinn og eiginlega hálfa
leiðina til Kanarí. ■
Kolkrabbi
í jólamatinn
Margrét Helga Jóhannsdóttir
Er á leið í jólafrí til Kanarí. Hún er nú að
leika hlutverk Grýlu í Borgarleikhúsinu.
„Stórkostleg kona, Grýla,“ segir Margrét
Helga.
JÓLAMATURINN
minn
JÓLAMATUR
til útlanda