Fréttablaðið - 12.12.2002, Qupperneq 30
30 12. desember 2002 FIMMTUDAGUR
Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Einnig opið um helgar. Verið velkomin.
100% mesta vöruúrval á fermetra.
Austurlenskt bollastell
og aðrir skrautmunir
með ekta gyllingu,
einnig glæsileg
glös og pottar.
Ótrúlegt úrval
öðruvísi
gjafavöru.
Heitasta búðin í bænum
Jólaskreytingar – Skreytingar við öll tækifæri
Ný sending af gjafavöru
Öðruvísi
blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is
Náttfatnaður
í miklu úrvali
Flónelsnáttföt
Bómullarnáttföt
Satínnáttföt fyrir
alla fjölskylduna
Náttkjólar, undir-
kjólar, sloppar
Mjög gott verð,
opið alla daga 11-19
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi, S. 554 4290
JÓLAÖS Í MÍLANÓ
Íbúar Mílanó stoppuðu til að líta á jólatréð sem er staðsett í miðbæ Mílanó á milli þess sem litið var í búðir.
Ég er alltaf voðalega mikið fyrirþetta praktíska,“ segir Sigur-
borg Kristjánsdóttir. „Núna gæti ég
vel hugsað mér að fá stóran djúsí
hvítan frotte-náttslopp. Sá sem ég á
er alveg í henglum og mig bráðvant-
ar nýjan.“ Sigurborg segist oft fá
ilmvötn og krem og það komi sér
alltaf mjög vel. Eiginmaður Sigur-
borgar og börn eru dugleg að velja
sjálf gjafir handa húsmóðurinni og
hún þarf ekki að leiða þau í verslan-
ir til að þau rati á réttu gjöfina.
„Einu sinni fékk ég rosagóða dún-
úlpu sem ég hef notað mikið og
maðurinn minn gaf mér líka veski
einhvern tíma sem ég var mjög
ánægð með.“ Þótt Sigurborg óski
sér gjarnan nytsamlegra hluta vill
hún alls ekki fá heimilistæki eða
húsbúnað í jólagjöf. „Ég og maður-
inn minn gefum hvort öðru aldrei
hluti til heimilisins en eigum það
reyndar til að sleppa jólagjöfum
hvort til annars og kaupa okkur í
staðinn eitthvað sem okkur langar í
og vantar.“
Sigurborg hefur mjög gaman af
að lesa og leggur mikið upp úr því
að fá bækur í jólagjöf. „Ég verð
alltaf að fá að minnsta kosti eina
bók. Við hjónin gefum yfirleitt
hvort öðru bækur og erum þá oft
búin að gefa vísbendingu um hvað
okkur langar í. Svo þekkjum við
auðvitað áhugasvið hvors annars
ósköp vel.“ „Praktískar“ jólagjafir
og bækur eru árvissar hjá Sigur-
borgu en hún segist líka alltaf verða
mjög glöð þegar maðurinn hennar
kemur henni á óvart og laumar ein-
hverju óvæntu með í pakkann.
En þegar öllu er á botninn hvolft
er ein jólagjöf sem fjölskyldan ósk-
ar sér framar öllu og ekki síst Sig-
urborg. „Við þráum öll að eignast
lítinn hvolp. Við eignuðumst hvolp í
byrjun þessa árs en hann varð fyrir
bíl snemma í haust og við höfum
verið óhuggandi síðan. Helst vildum
við fá aftur hvolpinn sem við misst-
um en við erum meðvituð um að það
er ekki hægt,“ segir Sigurborg.
Vinkona hennar á Cavalier-tík
sem gaut sjö hvolpum síðastliðinn
vetur. Yngsta hvolpinum var vart
hugað líf en með mikilli umhyggju
tókst að koma honum á legg. „Ég
var meira eða minna með hvolpinn í
fanginu því ég var eitthvað lagnari
við að gefa honum pelann en aðrir.
Ég var því meira eða minna hjá vin-
konu minni og aðstoðaði hana með
hvolpana. Sá litli var vart farinn að
ganga þegar hann tók upp á því að
elta mig til dyra þegar ég fór heim.
Með tímanum tókum við slíku ást-
fóstri hvort við annað að ekki var
um annað að ræða en ég tæki hann
að mér. Hann hét Loki og húsbónd-
inn og börnin tóku honum fagn-
andi.“
Síðan Loki dó hefur heimilislífið
breyst. „Það vantar mikið og að
óreyndu hefði ég ekki trúað hvað lít-
ill hvolpur getur haft mikil áhrif.
Hann hafði tök á að laða það besta
fram í okkur öllum og það líður vart
sá dagur að við hugsum ekki til
hans. Cavalier-hundar eru mjög eft-
irsóttir og ég verð að öllum líkind-
um að bíða fram á næsta ár eftir að
geta keypt annan í stað Loka. Við
hugsum ekki um annað en að fá
hund sem geti að einhverju leyti
fyllt upp í skarð hans. Ég veit hins
vegar að við fáum aldrei hvolpinn
okkar aftur en annar hvolpur myndi
gleðja okkur mikið.“ ■
Sigurborg Kristjáns-
dóttir uppeldisfræð-
ingur er meira fyrir
nytsamlegar jólagjafir.
Að þessu sinni óskar
hún og fjölskyldan
hennar þess þó um-
fram allt að fá lítinn
hvolp sem komið getur
í staðinn fyrir þann
sem þau misstu fyrr á
árinu.
Langar í
lítinn hvolp
HVAÐ Á AÐ GEFA
konu um fertugt?
LOKI LITLI, HVOLPUR
AF CAVALIER-TEGUND
Þessi mynd er tekin af honum þegar hann
var sex vikna.
HVÍTA PIPARKÖKUHÚSIÐ
Bandaríska forsetafrúin, Laura Bush, sýnir hér glæsilegt piparkökuhús sem hefur sjálft
Hvíta húsið að fyrirmynd.
M
YN
D
/AP
SIGURBORG KRISTJÁNSDÓTTIR
Fjölskyldan er að þessu sinni sammála um
hvað yrði besta jólagjöfin.