Fréttablaðið - 12.12.2002, Page 33
33FIMMTUDAGUR 12. desember 2002
Afgreiðslutími
frá 1. des 2002
w w w . v i n b u d . i s
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
A
V
R
19
42
9
11
/2
00
2
Vínbúðin Akureyri mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-16
Vínbúðin Heiðrún mán.-fim. 09-18 föstudaga 09-19 laugardaga 09-16
Vínbúðin Austurstræti mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-14
Vínbúðin Hafnarfirði mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-16
Vínbúðin Holtagörðum mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-16
Vínbúðin Kringlunni mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-18
Vínbúðin Mjódd mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-16
Vínbúðin Smáralind mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-18
Vínbúðin Eiðistorgi mán.-fim. 11-18 föstudaga 11-20 laugardaga 11-16
Vínbúðin Garðabæ mán.-fim. 14-18 föstudaga 12-20 laugardaga 12-16
Vínbúðin Spönginni mán.-fim. 14-18.30 föstudaga 12-20 laugardaga 12-16
Vínbúðin Mosfellsbæ mán.-fim. 14-19 föstudaga 12-20 laugardaga 12-16
Vínbúðin Dalvegi, mán. 13-18 föstudaga 11-19 laugardaga 11-18
Kópavogi þri.-fim. 11-18
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of
my Vanity“ sem útleggst á íslensku
„Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí
Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið
svokallaða IVD (intensive vanity dis-
order) eða hégómaröskun en það heil-
kenni verður æ algengara meðal þeirra
sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa.
Myndlistamaðurinn Hildur Ásgeirsdóttir
Jónsson sýnir í Galleríi Sævars Karls.
Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn-
ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs-
son.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd
eru verk eftir um 50 listamenn sem
fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning-
in árin 1980-2000.
Sýningin Hraun - ís - skógur er í Lista-
safni Akureyrar. Sýningin er opin alla
daga milli 12 og 17. Henni lýkur 15. des-
ember.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
ræna húsinu.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil-
is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka.
Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir
eru velkomnir.
Flökt - Ambulatory - Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í Ný-
listasafninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Árný Birna Hilmarsdóttir heldur sýn-
ingu á íslensku landslagi unnu í gler í
Gallerí Halla rakara, Strandgötu 39,
gegnt Hafnarborg.
Sýning á bútasaumsverkum eftir 10
konur stendur nú yfir í Garðabergi, fé-
lagsmiðstöð eldri borgara að Garðatorgi
7 í Garðabæ. Sýningarnar verða opnar
alla daga nema sunnudaga frá kl. 13 til
17.
TÓNLEIKAR Kammerkór Langholts-
kirkju er skipaður söngvurum úr
Kór Langholtskirkju sem allir
hafa stundað söngnám og hafa
langa kórreynslu að baki.
Kammerkórinn hefur tekið að sér
sérstök verkefni ýmiss konar þar
sem þurft hefur lítinn kór, þá
mest við kirkjulegar athafnir svo
sem jarðarfarir og brúðkaup, en
einnig verkefni sem tengjast ráð-
stefnum og komu skemmtiferða-
skipa til landsins.
Kórinn tók þátt í Norræna tón-
listarmótinu í Gautaborg 1997 og
kynnti þá íslenska kirkjutónlist.
Árið 1998 hélt kórinn ásamt
Gradualekór Langholtskirkju
sérstaka afmælistónleika til heið-
urs Jóni Ásgeirssyni tónskáldi. Í
júlí á þessu ári tók Kammerkór
Langholtskirkju þátt í alþjóðlegri
kórakeppni í Randers í Dan-
mörku og sigraði í flokki
kammerkóra.
Kammerkórinn hefur gefið út
hljómdisk þar sem flutt eru meðal
annars verkin sem kórinn flutti í
keppninni í Danmörku, keppnis-
verkin tvö eftir danska tónskáldið
Michael Bojesen, Ave Maria eftir
Hjálmar H. Ragnarsson og Ég vil
lofa eina þá eftir Báru Grímsdótt-
ur. Kórinn heldur útgáfutónleika
af þessu tilefni í Langholtskirkju í
kvöld klukkan 20.30. ■
KAMMERKÓR LANGHOLTSKIRKJU
Flytur kórverkin Faðir vor og Vor hinsti dagur er hniginn eftir Jón Ásgeirsson á nýja disk-
inum. Þessi verk hafa ekki komið út áður á plötu.
Kammerkór Langholtskirkju:
Keppnisverk gefin
út á hljómdiski