Fréttablaðið - 12.12.2002, Side 35
Leikarinn George Clooney hef-ur verið að senda út samúðar-
kort til leikara sem hann hefur
neyðst til að
klippa út úr leik-
stjórnarfrumraun
sinni. Myndin,
sem kemur til
með að heita
„Confessions of a
Dangerous
Mind“, var orðin
aðeins of löng og
neyddist Clooney því að taka upp
skurðarhnífinn. Á kortunum út-
skýrir hann fyrir leikurunum að
eina ástæðan fyrir því að þeir
birtast ekki í endanlegri útgáfu
myndarinnar sé vegna tíma-
skortsins og að ákvörðunin komi
leiklistarhæfileikum þeirra ekk-
ert við. Clooney kannast greini-
lega við þau leiðindi að mæta á
frumsýningu myndar sem svo
var búið að klippa hann út úr.
Leikkonan Sandra Bullock seg-ist vera ákveðin í því að
þyngja sig. Hún segist vera leið á
því að passa aðeins í föt sem séu
hönnuð á fyrirsætur sem deila
svipuðu vaxtalagi og Kate Moss.
Þar sem hún hefur ákveðið að
taka nokkurra mánaða frí frá
vinnu ætlar hún að nýta tækifær-
ið til þess að borða og kaupa sér
svo víðari föt í samræmi við auk-
inn vöxt.
Framkomu áströlsku sveitar-innar The Vines í spjallþætti
Jay Leno var aflýst eftir að
söngvari sveitar-
innar, Craig
Nicholls, fékk
kast í hljóðpruf-
unni fyrir þátt-
inn. Söngvarinn
var víst í „góðum
fíling“ og hóf að
hamra gítar sín-
um á plexíglers-
ramma sem búið var að koma
utan um trommusettið. Honum
tókst að brjóta sig í gegn fram-
leiðendum þáttarins til mikils
ama. Þar sem söngvarinn þótti
aðeins of óútreiknanlegur í hegð-
un var brugðið á það ráð að af-
lýsa því að sveitin kæmi fram.
Piltunum verður svo ekki boðið
að koma fram síðar. Nicholls
hefði betur beðið með lætin þar
til hann var að minnsta kosti í
beinni útsendingu.
35FIMMTUDAGUR 12. desember 2002
SÍMI 553 2075
RED DRAGON kl. 10CHANGING LANES kl. 6 og 8
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10 b.i. 12 áraKl. 4.45, 6.50 og 9 VIT 485 Sýnd kl. 5, 7 og 9 VIT 468 ASH WEDNESDAY kl. 5.30IMP. OF BEING EARNEST kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.30 og 8.30 bi. 12 ára