Fréttablaðið - 12.12.2002, Page 40
40 12. desember 2002 FIMMTUDAGUR
Sýning í Galleríi Sævars Karls:
Ólík sýn listamanna á Heklu
LIST Samruni – sköpun heildar er
yfirskrift sýningar sem haldin
er í Galleríi Sævars Karls,
Bankastræti.
Að sýningunni stendur hópur
listamanna, fræðimanna og
arkitekta sem um tveggja ára
skeið hefur unnið að verkefni
um eldfjallið Heklu. Tilefnið er
ár fjallsins hjá Sameinuðu þjóð-
unum.
Á sýningunni kennir ýmissa
grasa. Valdimar Leifsson hefur
gert stuttmyndina Heklumynd
sem sýnd er nokkrum sinnum á
dag. Eldgosa-myndlistar-gjörn-
ingur er framlag Vignis Jó-
hannssonar en Janus Jakobsson
og Helgi Svavar Helgason
leggja við hljóðræna túlkun.
Halldór Vésteinn Sveinsson sýn-
ir myndina 02.12.02 sem er sýn
listamannsins á leið upp fjallið.
Arkitektarnir Hlédís Sveins-
dóttir og Gunnar Bergmann sjá
um hönnun hússins en auk þess
eru þar ljósmyndir eftir Sigrúnu
Eðvarðsdóttur. Ari Trausti Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur
flytur einnig erindi sem hann
tileinkar Heklu.
Sýningin hófst þann 6. des-
ember en síðasti sýningardagur
er í dag. ■
JÚRÓVISJÓN „Mér líst vel á lögin,
þau eru mjög fjölbreytt, bæði
júróvisjónleg og ekki júróvisjón-
leg,“ segir Jóhanna Jóhannsdóttir,
varadagskrárstjóri RÚV, en hún
heldur utan um framkvæmd for-
keppni Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva að þessu sinni.
Júróvisjónaðdáendur geta nú
tekið gleði sína á ný eftir þunnan
þrettánda þessa árs. Undirbún-
ingur er í fullum gangi. Alls bár-
ust Sjónvarpinu 204 lög sem nú
hafa verið grisjuð niður í 15 sem
munu taka þátt í forkeppninni.
Það er meira en verið hefur og
verður þetta tekið með stæl núna
að sögn varadagskrárstjórans. Nú
er verið að endurútsetja lögin og
æfa. Í janúar fara lögin svo til
upptöku í sjónvarpssal og síðan
verða þau send út þrjú í senn frá
3. til 7. febrúar. Þá mun jafnframt
fylgja portrett af höfundi hvers
lags um sig en fram til þess tíma
mun mikil leynd hvíla yfir hverjir
þar eru á ferð. Jóhanna sagði oft
„no comment“ þegar Fréttablaðið
gekk á hana. Hún ljóstraði því þó
upp að þarna innan um væru
þekktir höfundar sem hefðu verið
áberandi í söngvakeppninni und-
anfarin ár.
Sjónvarpið leggur til fjögurra
manna grunnhljómsveit undir
stjórn Gunnars Þórðarsonar og
hafa höfundar svigrúm til að
bæta við einu hljóðfæri eða
skipta út eftir því hvað þurfa
þykir, auk þess sem nota má allt
að þrjá bakraddasöngvara.
Söngvarar geta svo verið allt frá
einum upp í þrjá.
15. febrúar, á laugardags-
kvöldi, rennur svo stóra stundin
upp og er jafnvel fyrirhugað að
halda keppnina í tónleikasal og
selja almenningi aðgang. „Gera
svolítið meira úr þessu en verið
hefur,“ segir Jóhanna. Þá verða
lögin 15 flutt í beinni útsendingu
og mun símakosning þjóðarinnar
ráða úrslitum. Til vara er dóm-
nefnd ef símkerfið hrynur. Sjálft
Júróvisjónið verður svo í Riga í
Lettlandi 24. maí 2003. ■
HEKLA
Listamennirnir hafa unnið að verkefninu í tvö ár. Sýning þeirra snýst um eldfjallið Heklu.
JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR
Hún sér um undirbúning söngvakeppni
Evrópskra sjónvarpsstöðva að hálfu RÚV,
sem senn mun bresta á. Hún þverneitar
að gefa upp hvaða 15 höfundar komust
áfram en 204 lög voru send til keppninnar.
Lagahöfundarnir eru
algjört leyndarmál
RÚV er í óðaönn að undirbúa Júróvisjón. 204 lög bárust í keppnina um
júróvisjónlagið og 15 þeirra munu keppa um að verða framlag Íslands
Inngangur að
vestrænni heimspeki:
Spekingar
spjalla um
hugsuði
BÆKUR Hið íslenska bókmennta-
félag hefur gefið út bókina Mikl-
ir heimspekingar eftir Bryan
Magee sem er þekktur enskur
heimspekingur, rithöfundur og
útvarpsmaður. Í bókinni eru
fimmtán samræður um hug-
myndir og kenningar margra
frægustu og stórbrotnustu heim-
spekinga Vesturlanda frá forn-
Grikkjum til okkar daga. Meðal
þeirra eru Platon, Aristóteles,
Descartes, Hume, Kant,
Schopenhauer, Nietzsche,
Russell og Wittgenstein. Magee
ræðir verk þessara hugsuða við
heimspekinga sem útlista
torskilin hugtök og flóknar
kenningar á skýru og skiljanlegu
máli. ■
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
Ég er að lesa Sonju eftir Reyni Trausta og
Stolið frá höfundi stafrófsins eftir Davíð
Oddsson. Smásögur Davíðs eru ákaflega
skemmtilega skrifaðar og fullar af litríkum
mannlýsingum og bókin um Sonju er ævin-
týralegt ferðalag um 20. öldina með þeim
Sonju og Reyni.
Hrafn Jökulsson, ritstjóri.
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
Síðasta vikan !!
allir bolir nú 1.000 – allar skyrtur nú 1.900
allar buxur nú 2.500 – allir jakkar nú 5.000
allir bolir nú 1.000 – peysur 1.500 - 2.500
opið mánudaga til föstudaga frá 12 – 18
og laugardaga 12 – 16
GK Reykjavík Outlet, Faxafeni 9, sími 533 1060