Fréttablaðið - 12.12.2002, Síða 44
PERSÓNAN Þórir Kolbeinsson,
heimilislæknir á Hellu og for-
maður Félags heimilislækna,
hefur staðið í ströngu undan-
farnar vikur. „Ég hef gaman af
félagsmálum og hef alltaf litið
þannig á að ég geti ekki vikist
undan því sem ég ætla öðrum að
gera,,“ segir Þórir.
Hann er fæddur á Siglufirði
en flutti ungur suður til Reykja-
víkur með móður sinni. Hann
stundaði nám í Menntaskólanum
við Hamrahlíð og síðan í lækna-
deild Háskóla Íslands. Eftir árs-
dvöl í Bandaríkjunum, þar sem
Þórir lagði stund á lyflækningar,
sneri hann með fjölskylduna yfir
hafið, fluttist til Skövde í Svíþjóð
og sneri sér að heimilis-
lækningum. „Skömmu eftir að
ég kom heim réði ég mig á
heilsugæslustöðina á Hellu og
hef verið þar síðan. Ég kann af-
skaplega vel við mig á Hellu og
þaðan er stutt í þéttbýlið. Hella
er vel í sveit sett og þar er til-
tölulega veðursælt.“
Þórir segir að með tímanum
verði læknirinn vel kunnugur
sjúklingnum og fjölskylduhög-
um hans. „Sú nánd sem skapast
við sjúklingana veldur því að
læknirinn á betra með að átta sig
á hvað amar að. Það eru heimilis-
lækningar eins og best verður á
kosið.“
Á Hellu og í nágrenni er ekki
vandasamt að finna sér eitthvað
til að dunda við utan vinnu. Þór-
ir segist hafa tekið upp á að stun-
da hestamennsku og golfvöllur-
inn er ósjaldan heimsóttur.
„Fjölskyldan tekur einnig tíma
því nú eru barnabörnin að byrja
að koma en ég og síðari kona
mín, Dýrfinna Kristjánsdóttir,
áttum fyrir samtals fimm börn.
Það er því oft þétt setinn bekkur-
inn þegar öll fjölskyldan kemur
saman.“ ■
Kann vel við að
vinna og búa á Hellu
Þórir Kolbeinsson, formaður Félags heimilislækna, segist ekki geta
vikist undan því sem hann ætli öðrum að gera.
44 12. desember 2002 FIMMTUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
Heyrirðu hjalið í
henni? Hún fer að
segja fyrsta orðið
hvað af hverju!
Hún hlýtur að pikka
upp orð hér og þar!
DÓMARA-
FÍFL!
Hei!
Af hverju
er þetta
endilega
MÉR
að kenna??
TÓNLIST
ROKK OG RAPP
Rapparinn Nelly og rokkarinn Steven Tyler
úr Aerosmith tóku höndum saman og
fluttu lag til heiðurs Jam Master Jay úr
Run DMC á Billboard-hátíðinni um
síðustu helgi.
Gekk-á-staur
er fyrstur
Sumir eru þeirrar skoðunar aðnöfn jólasveinanna séu fram-
andi og forn og vísi ekki til
reynsluheims nútímabarna. Hér
er á gamansaman hátt reynt að
laga þessa sígildu sveina að árinu
2002. Fréttablaðið mun birta
reglulega fram til jóla brot úr
þessum bálki sem er eftir Ragnar
Eyþórsson.
Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem taka við af tröllum,
í tæknivæddum heim.
Út um allt þeir sáust,
oftar en áður.
Og láta illum látum,
svo landinn verði þjáður.
Grýla fín var orðin,
með fullan fataskáp.
En svali Leppalúði,
sat fast við sjónvarpsgláp.
Enn jólasveinar nefnast,
um jólin birtast þeir.
Og einn og einn þeir koma,
en aldrei tveir og tveir.
Þeir eru þrettán,
þessir nýju menn.
Og allir vildu ónáða
eins flesta í senn.
Nútímanum vöndust,
nokkuð betur en við.
En líka gerðu grikki,
að gömlum trölla sið.
Brunandi á bílum,
þeir birtast hér og þar
og byrja strax að herja
á fólkið alls staðar.
Miklu verr en áður
og aldrei hika við,
að hrekkja fólk og trufla
þess heimilisfrið.
Gekk-á-staur er fyrstur,
með fíflalæti og bögg.
Eftir snafs og öl
og ótal jólaglögg.
Vill hann tæma flöskur,
það veitir mikla sælu
Loks stoppar jólagleðin,
í stórum polli af ælu.
Eftir Ragnar Eyþórsson (með fullri
virðingu fyrir Jóhannesi úr Kötlum)
TEIKNINGAR: INGI SÖLVI ARNARSON
BRYNJA SVERRISDÓTTIR
Brynja hefur vakið athygli í heimspress-
unni fyrir seríu sína „Embracing Faith“.
Brynja Sverrisdóttir:
Selur í versl-
un DKNY
HÖNNUN Verslun Donnu Karan í
New York hefur í dag sölu á skart-
gripum Brynju Sverrisdóttur.
Munirnir, sem eru úr seríu sem
hún kallar „Embracing Faith“, eru
unnir úr gulli, silfri og verðmæt-
um steinum. Verslun Donnu Kar-
an hefur tryggt sér einkaréttinn á
að selja skartgripi Brynju í New
York. Af tilefni þess verður hald-
in sérstök sýning á skartgripun-
um í verslun Donnu Karan á Man-
hattan í dag.
Brynja gefur hluta af ágóðan-
um til góðgerðasamtakanna
Amnesty International og Sam-
taka langveikra barna.
Brynja vann fyrir Donnu Kar-
an frá 1987-‘97. Donna segist hafa
valið skartgripi Brynju þar sem
þeir beri með sér mikinn boðskap.
Brynja sameinar á gripum serí-
unnar „Embracing Faith“ helstu
trúartákn jarðarinnar. Með því
vill hún vekja fólk til umhugsunar
um að öll trúarbrögð eigi sömu
eða svipaðar rætur. ■
ÞÓRIR KOLBEINSSON
„Sú nánd sem skapast við sjúklingana
veldur því að læknirinn á betra með að
átta sig á hvað amar að.“
PERSÓNAN JÓLASVEINAR 2002