Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 46
46 12. desember 2002 FIMMTUDAGUR
TÍMAMÓT
DANS
Ætli ég verði ekki að baka pip-arkökur,“ segir Guðrún
Gísladóttir leikkona, sem á 48
ára afmæli í dag. „Það er eina
venjan sem ég hef komið mér
upp varðandi afmælisdaginn.
Þetta eru piparkökur sem ég set
málshætti inn í.“
Þetta hefur blaðamaður aldrei
heyrt áður og biður um frekari
útskýringar. „Jú,“ segir Guðrún,
„ég sker út svona eins og pínulít-
ið umslag, set málshátt sem er
skrifaður á pappír inn í kökuna
og brýt yfir.“ Guðrún segir fjöl-
skylduna sameinast um bakstur-
inn og málshættina koma úr öll-
um áttum. „Spakmæli úr bókum
og svona eitthvað sem maður
kann.“ Hún er reyndar ekki sú
eina í fjölskyldunni sem á af-
mæli í mánuðinum. „Ég verð
væntanlega líka að undirbúa af-
mæli sonar míns, sem á afmæli
eftir tvo daga.“
Guðrún segir afmælin sín
hafa horfið svolítið í jólaundir-
búning í gegnum árin. „Ég er eig-
inlega óskaplega lítið afmælis-
barn, bæði út af desember og
öllu umstanginu fyrir jólin og
svo eru margir í kringum mig
sem eiga afmæli. Það er svolítið
þannig með okkur desember-
börnin að jólin stela afmælunum
okkar. „
Guðrún segist muna sérstak-
lega eftir afmælisgjöf sem hún
fékk þegar hún varð fertug. „Þá
fékk ég skíðasleða sem mér þótti
mikið til koma. En það hefur ekki
verið mikið skíðasleðafæri und-
anfarið, þannig að sleðinn bíður
snjókomunnar í geymslunni.“
Guðrún er í fríi frá leiklistinni
í bili og veit ekki hvert verður
næsta verkefni. „Það er dýrðlegt
að vera í fríi. „Ég er aðallega að
sinna húsmóðurstörfum og
nöldra í heimilisfólkinu,“ segir
hún hlæjandi. ■
Guðrún Gísladóttir leikkona á afmæli í dag.
Hún verður í piparkökubakstri.
Afmæli
Jólin stela afmælunum
KROSSGÁTA
LÓÐRÉTT: 1 frost, 2 viðauki, 3 þjáningar, 4 merkra, 5 óvissu, 6 venju, 7 fátækt,
8 húmi, 11 fyrirferð, 14 stunda, 16 refsingu, 18 kropp, 20 hrædds, 21 karl-
mannsnafn, 23 bakkanum, 26 ásakanir, 28 ekra, 30 hreyfist, 31 nabbi, 38 eira.
LÁRÉTT:
1 gón,
4 guðsþjónustur,
9 djörf,
10 kona,
12 hey,
13 dundar,
15 svall,
17 svelgurinn,
19 dreitill,
20 öflug,
22 hindri,
24 poka,
25 sáðlönd,
27 skortur,
29 kynið,
32 keyrir,
34 innyfli,
35 röðinni,
36 drekkur,
37 dysja.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 flet, 4 sverar, 9 ferlíki, 10 erji, 12 álit, 13
kaunin, 15 last, 17 alin, 19 rót, 20 storm, 22 asaði, 24 var, 25 skut, 27 arka, 29
æðruna, 32 utan, 34 anar, 35 nótunni, 35 stamir, 37 drós. Lóðrétt: 1 frek, 2 efju,
3 teinar, 4 sláni, 5 víl, 6 ekil, 7 ritara, 8 reitti, 11 raftar, 14 ilms, 16 sóðana, 18 nauð,
20 svarks, 21 orkuna, 23 strand, 26 kænur, 28 atóm, 30 unir, 32 arms, 33 ati.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Kast-
ljósgagnrýni á ritstörf Davíðs Oddssonar
hefur enn ekki verið vísað til miðstjórnar
Sjálfstæðisflokksins.
Leiðrétting
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
JARÐARFARIR
13.30 Ásgrímur Sigurðsson, Möðrusíðu
6, Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
13.30 Jónheiður Níelsdóttir, Njálsgötu
1, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
13.30 Reynir Ármannsson verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
13.30 Ösp Viðarsdóttir, Flókagötu 63,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
AFMÆLI
Gísli S. Einarsson alþingismaður er 47
ára.
Guðrún Gísladóttir leikkona er 48 ára í
dag.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson söngvari
er 35 ára.
ANDLÁT
Fríða Kristín Gísladóttir Ólafs er látin.
Bálför hefur farið fram.
Grétar Finnbogason, Suðurvangi 14,
Hafnarfirði, lést 9. desember.
Hulda M. Jónsdóttir, Skarðshlíð 14a,
Akureyri, lést 8. desember.
Jóhann Ármann Kristjánsson, Sólhlíð
19, Vestmannaeyjum, lést 6. desember.
Friðrik Jónasson, kennari, er látinn.
Sigurður Björn Brynjólfsson frá Hrísey
er látinn.
Cherie Blair.
Guðmundur Hallvarðsson.
Christopher Reeve.
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
• Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Elskan mín, ég gæti dáið fyrirþig.“
„Þetta segirðu alltaf, en gerir
svo ekkert í málinu.“
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Fékk skíðasleða í afmælisgjöf fyrir
nokkrum árum, en síðan hefur varla snjó-
að svo sleðinn er ónotaður í geymslunni.
Ég er að vinna hjá Búnaðar-bankanum, í trygginga- og líf-
eyrisdeild. Bíð eftir að banka-
stjórastaðann losni,“ segir Sigurð-
ur Valur Sveinsson, handbolta-
kappi með meiru. Sigurður Valur
hefur starfað í Búnaðarbanakan-
um í um eitt ár. Þrátt fyrir aldur-
inn segist hann ekki vera búinn að
leggja skóna á hilluna en hann
spilar með Hraðlestinni í ut-
andeildinni.
„Það er hörkufjör þar og við
erum langbestir. Búnir að vinna
alla leikina,“ segir Sigurður Valur.
Hann er þó ekki eina kempan í lið-
inu sem leikið hefur með landslið-
inu því Valdimar Grímsson, Jón
Kristjánsson, Ingi Rafn Jónsson
og Júlíus Gunnarsson leika með
liðinu sem og söngvarinn kunni
Stefán Hilmarsson, sem gjarnan
er kenndur við Sálina hans Jóns
míns.
Alltaf jafn
gaman að dansa
Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir eru Norður-
landameistarar í samkvæmisdönsum.
Jónatan Arnar Örlygsson ogHólmfríður Björnsdóttir eru
nýkomin frá Noregi þar sem þau
gerðu sér lítið fyrir og unnu
Norðurlandameistaratitil í sam-
kvæmisdönsum, þriðja árið í
röð. Þau eru 14 ára gömul og eru
búin að æfa dans í mörg ár. „Ég
byrjaði fyrir sjö árum,“ segir
Hólmfríður „og finnst alltaf jafn
gaman.“ „Ég er búinn að vera í
þessu í níu ár,“ segir Jónatan.
Þau æfa 3-4 sinnum í viku og svo
eru alltaf tarnir fyrir keppnir.
En þau segjast þó hafa nógan
tíma til að sinna öðrum áhuga-
málum. „Ja, ég er til dæmis í
djassballett, og svo er alltaf nóg
að gera í skólanum,“ segir
Hólmfríður, en Jónatan segist
æfa fótbolta. Þau Hólmfríður og
Jón hafa dansað saman í fimm
ár, en nokkur skortur er á herr-
um í dansinn. „Það er stundum
erfitt fyrir stelpur að fá herra,
þeir eru einfaldlega ekki nógu
margir,“ segir Hólmfríður.
Jónatan samþykkir það og
segir að þrátt fyrir að félagar
hans séu jákvæðir á dansinn
hafi honum ekki tekist að draga
þá með. En hvað þarf til að
verða góður dansari? „Áhuga og
metnað,“ segir Hólmfríður. „Það
er trúlega líka nauðsynlegt að
byrja snemma að æfa,“ bætir
Jónatan við. „Annars er þetta
bara æfing.“
Þau segjast vera miklir vinir,
„næstum eins og systkin,“ segir
Hólmfríður. „Annað væri bók-
staflega ekki hægt,“ segir Jón-
atan og hlær.
Þau eru sammála um að
keppnisferðir til útlanda séu
ferlega skemmtilegar, og
stefna ótrauð á sameiginlega
sigra í framtíðinni. Hólmfríður
og Jónatan æfa dans hjá Dans-
íþróttafélaginu Gulltoppi í
Reykjavík. ■
HÓLMFRÍÐUR OG JÓNATAN ARNAR
Eru næstum eins og systkin segja þau sjálf.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Það hefur heyrst á tali nokk-urra þingmanna að þeir bíði
nú þeirra tíðinda einna frá Krist-
jáni Pálssyni að hann tilkynni um
sérframboð. Eftir að miðstjórn
vísaði kæru stuðningsmanna Vil-
hjálms Egilssonar frá sér þykir
ljóst að meðferð á kæru stuðn-
ingsmanna Kristjáns verður ekki
í miklu frábrugðin. Kristján er
því úti í kuldanum. Mönnum þyk-
ir heldur ólíklegt að metnaðar-
fullur maður eins og Kristján láti
gott heita og velta því fyrir sér
með hvaða hætti sérframboðið
verði fremur en hvort af því
verði. Eitthvað hefur heyrst að
stuðningsmenn hans séu bjart-
sýnir á að DD framboð verði
samþykkt af miðstjórn. Það yrði
þá í fyrsta skipti í sögu flokksins.
FÓLK Í FRÉTTUM
HVAR?