Fréttablaðið - 12.12.2002, Qupperneq 47
FIMMTUDAGUR 12. desember 2002
FÓLK Í FRÉTTUM
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Við segjum frá nýjum
sjálfsmorðssöfnuði þar sem
fólk borðar sig rólega í hel!
Fæstir gera sér grein fyrir
að þeir séu meðlimir!
DÍANA PRINSESSA
Fær seint að hvíla í friði fyrir ágangi
fjölmiðla.
Díana prinsessa
í undarlegu máli:
Barn jarð-
sett í hallar-
garðinum
KÓNGAFÓLK Díana prinsessa heitin
leyfði náinni vinkonu sinni að
jarðsetja barn í hallargarðinum
við Kensington-höll. Vinkonan,
Rosa Monckton, fæddi andvana
barn árið 1994. Barnið var skírt
Natalía. Að söng The Daily Mail
leyfði Díana vinkonu sinni að
jarðsetja barnið í garðinum með
tilheyrandi viðhöfn. Kaþólskur
prestur jarðsöng barnið.
Viðstaddir jarðaförina voru
Díana, Rosa, eiginmaður hennar
Monckton og Paul Burrell, fyrr-
verandi þjónn Díönu, sem grun-
aður var um að hafa stolið mun-
um úr höll hennar. ■
Niðurstaða miðstjórnar Sjálf-stæðisflokksins um að hún
gæti ekki tekið á prófkjörinu í
Norðvesturkjördæminu olli fleir-
um vonbrigðum en þeim sem
kærðu prófkjörið. Ýmsir and-
stæðingar flokksins höfðu beðið
niðurstöðunnar spenntir sann-
færðir um að aðeins tvær leiðir
væru færar, annars vegar að
miðstjórn ógilti prófkjörið, sem
yrði túlkað sem staðfesting á
stórkostlegu kosningasvindli, eða
að miðstjórn léti prófkjörið
standa, sem yrði túlkað sem svo
að hún léti kosningasvindlið óá-
talið. Miðstjórn sigldi hins vegar
á milli skerjanna, lýsti vonbrigð-
um með framkvæmd prófkjörs-
ins og lofaði breyttum reglum
sem koma í veg fyrir svona lagað
í framtíðinni, það sé bara ákkúrat
í þessu máli sem ekkert sé hægt
að gera.
Fótboltinn getur sameinaðótrúlegasta fólk. Nú eru póli-
tísku rifrildisseggirnir Stefán
Pálsson og Stefán Hrafn Haga-
lín, sem skotið hafa föstum skot-
um hvor á annan, farnir að vinna
að stofnun samtaka stuðnings-
manna allra merkustu liðanna í
ensku deildakeppninni, það er að
segja þeirra sem híma í neðri
deildum og sýna væntanlega
ekki merki um að komast þaðan
á næstunni. Þar sem allt of mik-
ið er gert fyrir stuðningsmenn
úrvalsdeildarliða er þeim mein-
aður aðgangur að þessum sjálfs-
hjálparsamtökum og sama á
reyndar við um stuðningsmenn
Stoke, sem eru undir sömu sök
seldir. Eftir stendur að stuðn-
ingsmenn minnimáttar liða geta
sameinast í ást sinni á félögum
sem sjaldan ef nokkurn tíma
prýða íslenska sjónvarpsskjái.
FÓLK Samkvæmt krufningar-
skýrslu var banamein John
Entwistle, bassaleikara rokksveit-
arinnar gömlu The Who, hjarta-
áfall vegna neyslu kókaíns.
Entwistle hafði verið hjartveikur
um nokkurn tíma og ástand hjart-
ans batnaði ekki með reykingum
eins pakka á dag og þó nokkurrar
áfengisneyslu.
Læknirinn sem framkvæmdi
krufninguna sagði kókaínið ekki
vera beina dánarorsök heldur hafi
hjartað ekki þolað álagið.
Entwistle fannst látinn á hótelher-
bergi í Las Vegas að morgni sama
dags og The Who ætlaði að hefja
tónleikaferð. Eftirlifandi meðlim-
ir sveitarinnar ákváðu að hætta
ekki við til að heiðra minningu
Entwistle. ■
John Entwistle:
Kókaín
ekki fyrir
hjartveika
JOHN ENTWISTLE
Þjáðist af hjartveiki.