Fréttablaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 48
Áþeim árum sem engir báruhjálma nema hermenn voru oft
blóðug átök á götum Reykjavíkur.
Krakkar úr einstaka götum eða
hverfum fundu hjá sér þörf til að
berja á jafnöldrum sínum í öðrum
götum og öðrum hverfum. Oftast
var notast við trésverð, lurka og
jafnvel eggvopn. Þetta var gert af
alvöru og blóð rann oftar en ekki.
Tímarnir hafa breyst.
NÚ SITJA krakkar inni við og
drepa mann og annan. Þau þurfa
ekki hjálma þar sem þau skaðast
ekki á líkama. En eflaust truflast
sálin eitthvað við að leika sér við að
drepa og nauðga í þykjustunni, sem
er náttúrulega mun heppilegra en að
gera það í alvöru. Kannski koma al-
vöruathafnir á eftir, hver veit?
Götubardagar heyra hins vegar sög-
unni til, eða hvað? Getur verið að
þeir sem börðust af alvöru sem börn
muni leita að gömlu lurkunum og
streyma aftur út á göturnar og
berja á öðru fólki? Getur verið að
herforingi Hauskúpunnar, sem var
ósigrandi, kalli í mig aftur og segi
mér að berjast á ný?
ÉG HEYRÐI í útvarpi fjóra Norð-
lendinga vera að tala saman. Einn
þeirra, sér í lagi, sagðist hafa miklar
áhyggjur af Reykvíkingum. Ástæð-
ur þessa sagði hann vera skiptingu
Reykjavíkur í tvö kjördæmi. Í
fyrstu áttaði ég mig ekkert á hvað
hann var að fara, sá ekki og sé ekki
hvað það kemur íbúum Reykjavíkur
svo mikið við þó þingmenn hafi
samþykkt þessa vitleysu. Norðlend-
ingurinn færði rök fyrir máli sínu,
rök sem ég áttaði mig ekki á að
væru til.
HANN TALDI öll merki ljós um að
ef þingmenn ákveða að setja peninga
í til dæmis hjúkrunarheimili í norð-
urhluta Reykjavíkur muni þeir sem
búa sunnan Miklubrautar ekki með
neinu móti sættast á það nema fá
ámóta mikla peninga í ámóta verk-
efni. Hann hafði af þessu miklar
áhyggjur og óttaðist að með kjör-
dæmaátökum borgarbúa minnki
möguleikar annarra Íslendinga til að
fá mola af borðum þingmanna. Ég sé
fyrir mér Hauskúpuna, Sjóræningj-
ana, Svörtu höndina og öll hin bar-
dagafélögin berjast á Miklubrautinni
um hvort kjördæmið fái fleira mola.
Ætli þetta sé háttur annarra?
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
í Húsasmiðjunni
Verklegar jólagjafir
Bora & bitasett - 112 STK
Verð áður 6.337 kr.
Jólaverð 3.995 kr.
Verkfærakassar
Jólaverð frá 599 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
68
2
1
2/
20
02
Allt frá grunni
að góðum jólum
Opið til kl. 18.00 um helgar í Skútuvogi
Tilboð
Tilboð
Á
Jólaverði
Höggborvél DWT SBM - 500W
Verð áður 4.995 kr.
Jólaverð 3.995 kr.
Stingsög CD301 Black & Decker
370W - Verð áður 4.900 kr.
Jólaverð 3.845 kr.
Ryobi borvél & hjólsög
14.4V - Sett, taska & rafhlöður.
Verð áður 26.427 kr.
Jólaverð 19.995 kr.
Hleðsluborvél DWT 12V
Taska, 2 rafhlöður & verkfæri.Verð áður 5.995 kr.
Nú 4.995 kr.
Smíðasvunta - leður
2.990 kr.
Hauskúpan
var ósigrandi
Bakþankar
Sigurjóns M. Egilssonar