Fréttablaðið - 04.01.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 04.01.2020, Síða 8
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt. Stefnt er að því að skipa í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni um­ sækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni um­ sækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) núverandi starf 2) menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnu­ brögðum, 11) upplýsingar um tvo fyrrverandi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf lands­ réttardómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 20. janúar 2020. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgi­ gögn berist dómsmálaráðuneytinu með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 3. janúar 2020. Embætti dómara við Landsrétt laust til umsóknar HEILBRIGÐISMÁL Ný rannsókn á heilsuhagfræðilegum áhrifum af þverfaglegri verkjameðferð á Reykjalundi sýnir fram á að fyrir hverja krónu sem sett er í með- ferðina fáist átta krónur til baka. Rannsóknin stóð yfir frá árinu 2003 til ársins 2011 og voru niðurstöður hennar birtar í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. „Þessi aðferðafræði hefur verið notuð varðandi endurhæf ingu verkjasjúklinga á Reykjalundi síðustu áratugi,“ segir Magnús Óla- son, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi og forsvars- maður rannsóknarinnar. Gagnaöfl- un stóð yfir í um fjögur og hálft ár og voru þátttakendur endurmetnir í þrjú ár þar á eftir. „Meðferðin snýr að því að losa fólk við sterk verkjalyf og styrkja það til að hafa jákvæð viðhorf gagn- vart verkjunum því yfirleitt er það ekki raunsætt að ætla að losa fólk við verki sem hafa varað lengi. Því er mikilvægt að kenna fólki að lifa sem bestu lífi með verkjunum, þar með talið að koma sem flestum út á vinnumarkað,“ bætir hann við. Magnús segir niðurstöður rann- sóknarinnar sýna fram á virkni endurhæf ingarmeðferðarinnar sem veitt er á Reykjalundi og að mikilvægt sé að styrkja meðferð af þessu tagi því hún skili sér margfalt út í samfélagið. „Við upphaf rann- sóknarinnar var vinnugeta hópsins um 30 prósent en í þriggja ára eftir- litinu var hún komin upp í 64 pró- sent,“ segir hann. „Heilsu hag f ræðileg i áv inn- ingurinn er annars vegar sá að koma fólki út á vinnumarkaðinn og hins vegar að draga úr notkun á heilbrigðisþjónustu sem er ekki að skila sér í meðferð sjúklinganna,“ segir Magnús. „Það gerum við með því að draga úr lyfjaneyslu, fá fólk til þess að hreyfa sig og svo notumst við við hugræna atferlismeðferð,“ bætir hann við. „Héðinn Jónsson sjúkraþjálfari og annar höfundur greinarinnar gerði heilsuhagfræðilegu útreikn- ingana og niðurstöðurnar eru ekki ólíkar því sem er að gerast í lönd- unum í kringum okkur. Svipuð rannsókn var gerð í Svíþjóð fyrir tæpum 20 árum og þar kom í ljós að fyrir hverja krónu sem sett var í sambærilega meðferð fengust níu krónur út í samfélagið,“ segir Magnús og bætir við að í kjölfarið hafi sænska ríkið breytt reglum um bið eftir endurhæfingarmeðferð þar í landi. „Þá varð það þannig að enginn sem metinn hafði verið til endurhæfingar átti að þurfa að bíða eftir meðferð lengur en í mánuð.“ Aðspurður að því hvaða áhrif niðurstöðurnar geti haft á með- ferðina sem veitt er á Reykjalundi segir Magnús að óskandi væri að stytta biðlista hér á landi. „Biðlist- inn hér er sveigjanlegur á hverjum tíma en yfirleitt eru jafn margir að bíða eftir meðferð á Reykjalundi og eru meðhöndlaðir á hverju ári,“ segir Magnús. Hann segir að innan við 200 manns séu meðhöndlaðir árlega en að yfirleitt séu 200-300 manns á bið eftir meðferð. „Þess vegna komast auðvitað ekki allir þeir sem óskað hefur verið eftir meðferð fyrir að og svona meðferð ætti að styrkja frekar.“ birnadrofn@frettabladid.is Ein króna verður að átta krónum Niðurstöður nýrrar rannsóknar Magnúsar Ólasonar læknis sýna fram á mikinn hagfræðilegan ávinning þverfaglegrar verkjameð- ferðar á Reykjalundi. Fyrir hverja krónu sem sett er í meðferðina fáist átta krónur út í samfélagið. Langur biðlisti er í meðferðina. Um tvö hundruð manns eru meðhöndlaðir í þverfaglegri verkjameðferð á Reykjalundi árlega. Samkvæmt Magnúsi Ólasyni lækni eru að jafnaði tvö til þrjú hundruð manns á biðlista eftir meðferðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Svona meðferð ætti að styrkja frekar. Magnús Ólason, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga á Reykja- lundi DÓMSMÁL Þrotabú hins fallna f lugfélags WOW air hefur stefnt Icelandair fyrir samkeppnislaga- brot. Forsvarsmenn þrotabúsins saka Icelandair um að hafa beitt skaðlegri undirverðlagningu sem hafi valdið WOW air miklu tjóni. Icelandair vísar ásökununum á bug. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Stefnan var þingfest í október en fyrirtaka í málinu verður um miðj- an janúar. Stefnan byggir á frum- niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins á verðlagningu Icelandair sem birt var f lugfélaginu árið 2015. Segir í stefnunni að Icelandair hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með skaðlegri undirverð- lagningu og verðlækkunum sem náð hafi til ferða félagsins á milli Kef lavíkur og Amsterdam, Kaup- mannahafnar, Lundúna og Parísar í báðar áttir í öllum tilvikum á milli þess 1. janúar 2012 og 31. desember 2016. Sjö ár eru frá því að WOW air kvartaði undan háttsemi Icelandair til Samkeppniseftirlitsins. Rann- sóknin spannaði í kjölfarið sautján mánaða tímabil. Icelandair hefur þegar skilað inn greinargerð í mál- inu þar sem kröfum þrotabúsins er hafnað. Þá kemur fram í stefnunni að for- svarsmenn þrotabúsins hafi orðið þess áskynja við undirbúning mál- sóknarinnar að Icelandair hafi hugsanlega framið sambærileg og jafnvel alvarlegri samkeppnis- brot á öðrum f lugleiðum, líkt og til New York, Boston, Montreal og Arlanda. Segjast þeir hafa hug á því að framkvæma frekari rannsóknir á meintum brotum félagsins. – oæg Þrotabú WOW air dregur Icelandair fyrir dómstóla Forsvarsmenn þrota- búsins saka Icelandair um að hafa beitt skaðlegri undirverðlagningu sem hafi valdið WOW air miklu tjóni. Gjaldþrot WOW air í fyrra var mikið reiðaraslag fyrir íslenskt þjóðarbú. 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.