Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.01.2020, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 04.01.2020, Qupperneq 58
Það eru alls konar skoð­anir uppi þegar kemur að þessu m sau ma­skap. Ein kona sagði: Ég sauma ekki mann sem hefur drepið annan mann, en það er dálítið erfitt þegar um tíma Íslendingasagna er að ræða,“ segir Jóhanna Erla Pálma­ dóttir, bóndi og handavinnukenn­ ari, brosandi þar sem hún situr við hið mikilfenglega útsaumsverk Vatnsdalsrefilinn. Við erum stödd í Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi þar sem Jóhanna er verkefnastjóri. Heimur Vatnsdælasögu er að verða til í myndum, fyrir hennar atbeina, og hún leiðir okkur Anton ljós­ myndara fúslega inn í þann heim. „Vatnsdælasaga gerist á árunum frá 840 til 1030. Hér er skip Ingi­ mundar gamla og Vigdísar konu hans að koma að ströndum Íslands. Fólkið er sjóveikt en okkur gekk mjög illa að fá einhvern til að sauma æluna! Á Borðeyri í Hrútafirði sér Ingimundur nýrekið viðarborð og nefnir eyrina eftir því. Síðar koma þau hjón að Vatnsdalshólunum þar sem Vigdís segir: Hér mun eg eiga dvöl nokkra því eg kenni mér sóttar. Þá segir Ingimundur eins og góðir menn gera: Verdi þat að góðu – og hún fæðir Þórdísi, fyrsta innfædda Húnvetninginn.“ Fyrsta veturinn kemur Ingi­ mundur að vatni, samkvæmt sög­ unni. Svo skemmtilega vill til að á bökkum þess er Jóhanna fædd og uppalin og býr þar enn á bænum Akri sem stendur við Húnavatn. „Þar fann Ingimundur ísbirnu með tvo húna og af því leiðir að við erum enn Húnvetningar! Faðir minn, Pálmi Jónsson, sem ég stríddi stundum á að kynni betur Vatns­ dælu en sína eigin fjölskyldusögu, vildi meina að birnan hefði trú­ lega verið drepin, því þær eru svo grimmar þegar þær hafa húna að verja. En Ingimundur fór með hún­ ana heim og geymdi þá,“ segir hún og heldur áfram leiðsögninni: „Hér er Sauðadalurinn, lítill dalur milli Vatnsdals og Svínadals, Ingimund­ ur týndi sauðum sínum og þeir fundust í þessum litla dal. Síðan týndust svínin líka, þessi göltur sem var gamall og lífsreyndur og hafði verið á skipinu að utan, svam yfir vatn sem nú heitir Svínavatn. Þann­ ig að örnefnin í landinu okkar eru hér á þessum fyrstu metrum refils­ ins, við köllum hann líka örnefna­ kaflann. Svo voru bæjarheitin eftir annaðhvort búskaparháttum eða körlunum sem bjuggu þar og þau notum við enn í dag.“ Verkið næstum hálfnað Jóhanna útskrifaðist frá Hånd­ arbejdets Fremmes Seminarium í Kaupmannahöfn 1988. Hún hlaut fálkaorðuna 17. júní á nýliðnu ári fyrir störf í þágu safna og menn­ ingar í heimabyggð. Vatnsdalsrefill­ inn er hennar hugmynd og eign en teikningarnar eru gerðar af annars árs nemendum arkitekta­ og hönn­ unardeildar Listaháskóla Íslands árið 2011, undir stjórn Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur myndlistar­ konu. Samhliða því sem nemarnir teiknuðu kveðst Jóhanna hafa verið að sauma alls konar teikningar sem þeir sendu henni til að átta sig á hversu smáar teikningarnar máttu vera fyrir refilsaumsporin sem ein­ kenna verkið. Nú er búið að sauma um 22 metra af ref linum af 46. Nálin stendur í mynd af Hofi í Vatnsdal þegar við erum á ferð. Jóhanna heldur áfram sögunni: „Í síðustu ferð Ingimundar til Noregs fer hann með þrjá ísbirni og gefur þá Haraldi hárfagra, vini sínum – ísbirnir þóttu konunglegar gjafir. Í staðinn fær hann tvö skip, Haraldur bað hann að velja en Ingi­ mundur var svo snjall pólitíkus að hann bað konuginn að velja fyrir sig, hann valdi skipið Stíganda og annað til og fyllti þau af viði. Stíg­ andanafnið er enn til á gömlu tré­ smíðaverkstæði hér á Blönduósi. Svo dvaldi Ingimundur eitt ár í Noregi og þegar hann kom heim var hann orðinn gamall maður og kall­ aður Ingimundur gamli eftir það. Næst gerist það að fyrsta skrá­ setta veiðideila Íslandssögunnar fer fram þegar Ingimundarsynir reyna að aftra því að hinn ódæli Hrol­ leifur veiði í Vatnsdalsá. Sú deila endar með því að Hrolleifur drepur Ingimund gamla. Það gerðist upp úr árinu 900 en við Húnvetningar erum ekki enn búnir að fyrirgefa Hrolleifi það óhæfuverk.“ Ingimundur í rauðri skikkju Kaf larnir í Vatnsdælu eru 47 en nemendurnir sem teiknuðu refilinn voru 22, að sögn Jóhönnu. „Kristín Ragna skipti köf lunum niður í 22 þætti, setti þá í hatt og lét nem­ endurna draga, sumir fengu sam­ liggjandi einn, tvo eða þrjá kaf la, enginn gat ráðið hvaða kafla hann fékk en þurfti að taka tillit til þess sem á undan fór og þess sem á eftir gerðist. Auðvitað eru teikningarnar breytilegar því teiknararnir fengu að halda eigin stíl. Ingimundur er því ekki alltaf eins á ref linum, en hann þekkist alltaf á rauðu skikkj­ unni sinni. Hrolleifur hefur sérstök einkenni líka, svo og mamma hans með allar sínar vörtur. Nemend­ urnir stúderuðu mikið veiðiskap í þeim gögnum sem þeir gátu fengið. Svo eru alls konar tákn í reflinum. Hrafnarnir birtast þegar einhver er drepinn, eða slíkt er yfirvofandi. Jóhanna á hugmyndina að gerð Vatnsdalsrefilsins og á mörg saumspor í honum. Þegar gerð hans lýkur sér hún hann fyrir sér á Þingeyrum þar sem Vatnsdæla var rituð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Endursegja söguna með útsaumi Þráðlistin á sér öflug vígi við Árbraut á Blönduósi, í Heimilisiðnaðarsafninu og Textílmiðstöð Íslands. Í því síðarnefnda dvelur listafólk tímabundið. Sumt á sín spor í Vatnsdalsreflinum sem er þar í mótun. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is HROLLEIFUR HEFUR SÉRSTÖK EINKENNI LÍKA, SVO OG MAMMA HANS MEÐ ALLAR SÍNAR VÖRTUR. Ingimundur gamli og hans fólk gaf kennileitum nöfn sem enn eru í gildi, svo sem Borðeyri og Víðidalur. 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.