Fréttablaðið - 25.01.2020, Side 8
vildarkort
Allir kaupendur og seljendur fá Vildarkort Lindar
sem veitir 30% afslátt hjá eftirfarandi fyrirtækjum
510 7900Hlíðasmári 6 fastlind.is nyjaribudir.is
Fáðu framúrskarandi þjónustu
og skráðu eignina þína á
fastlind.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Vest-
mannaeyjum rannsakar enn ábend-
ingu um hvarf Geirfinns sem barst
árið 2016. „Eins og staðan er í dag
þá stendur yfir frekari gagnaöflun
og viðtöl við hugsanleg vitni,“ segir
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri
í Vestmannaeyjum. Rannsókn lög-
reglu byggir á ábendingu manns
sem gaf sig fram við lögreglu árið
2016.
Grunsamlegt háttarlag
Í skýrslutöku kvaðst maðurinn
hafa séð þrjá borgaralega klædda
menn koma á smábáti til hafnar í
Vestmannaeyjum um miðjan dag
þann 20. nóvember 1974, daginn
eftir að Geirfinnur hvarf í Keflavík.
Tveir jakkafataklæddir menn hafi
leitt þann þriðja á milli sín sem hafi
verið máttfarinn og að því er virtist
rænulítill. Þeir hafi komið inn í ver-
búð þar sem sjónarvotturinn bjó
og dvalið þar dágóðan tíma í lok-
uðu herbergi með leyfi kokksins í
mötuneyti verbúðarinnar. Þegar
þeir gengu aftur út hafi hann átt
stutt orðaskipti við þá og spurt hinn
rænulitla hvort ekki væri allt í lagi.
Sá hafi svarað veikum rómi og sagt:
„Mundu eftir mér.“ Hinir jakkafata-
klæddu hafi þá rætt sín í milli hvort
þeir þyrftu ekki að taka sjónarvott-
inn líka og honum hafi ekki orðið
um sel en þarna hafði leiðir skilið
og hann horft á eftir þríeykinu fara
aftur um borð í trilluna og sigla frá
bryggju.
Nokkru síðar, þegar tekið var að
rökkva, hafi trillan komið aftur að
landi og þá hafi þeir aðeins farið
tveir frá borði; mennirnir í jakka-
fötunum og augljóslega verið á
hraðferð. Vitnið minnist þess einnig
í skýrslutökunni að sama kvöld hafi
lítil f lugvél f logið frá Vestmanna-
eyjum og hafi hann tengt hana við
ferð mannanna tveggja án þess að
hafa fyrir því annað en eigið hug-
boð.
Fékk hótanir símleiðis
Í skýrslutökunni lýsti sjónar-
votturinn bæði útliti mannanna
þriggja og klæðnaði. Þeir gætu hafa
verið um þrítugt, annar í kringum
185 sentimetrar, með hrokkið hár
og gleraugu með svartri kassalaga
umgjörð. Hinn hafi verið höfðinu
lægri, þunnhærður með frekar ljóst
hár og gráblá augu.
Rænulausi maðurinn hafi verið í
dökkum fötum en einhverju ljósu
að ofan og hárið svart og úfið en
þó eins og það hefði verið greitt til
hliðar.
Aðrir hafi einnig séð til þeirra,
þar á meðal menn á bryggjunni
sem voru að gera við net. Þá hafi
aðrir verkamenn í verbúðinni einn-
ig orðið varir við mennina í mötu-
neytinu. Þá hafi sjónarvotturinn
séð mann taka ljósmyndir af trill-
unni nokkrum dögum eftir atvikið.
Ekki liggur fyrir um hvaða trillu er
að ræða en sjónarvotturinn lýsti
henni þannig að um tveggja til
þriggja tonna trébát væri að ræða.
Hvítum að ofan og brúnum að
neðan með litlu stýrishúsi aftast
með þremur gluggum.
Sjónarvotturinn var hins vegar
aðkomumaður í Vestmannaeyjum
og dvaldi þar aðeins í eitt ár. Hann
gat því ekki nafngreint aðra mögu-
lega sjónarvotta.
Nokkrum dögum síðar hafi sími
í herbergi hans og unnustu hans
í verbúðinni hringt og unnustan
svaraði. Maður hafi verið í símanum
og haft í hótunum við hana um að
ef þau héldu ekki kjafti yrði gengið
frá þeim. Þetta hafi verið um svipað
leyti og lýst var eftir Geirfinni Ein-
arssyni í fjölmiðlum og hafi sjónar-
votturinn farið að leggja saman tvo
og tvo. Unnustan fyrrverandi hefur
einnig gefið skýrslu um símtalið og
staðfest frásögn mannsins.
Menn tengdir Landsvirkjun
Sjónarvotturinn skýrði næst frá því
að nokkrum árum síðar hefði hann
séð mynd af hávaxnari manninum
í dagblaði með frétt sem tengdist
Landsvirkjun. Þá hafði hár manns-
ins gránað nokkuð. Svo líða nokkrir
dagar og þá sér hann manninn í
sjónvarpinu. Hann lýsir því þann-
ig að fréttamaðurinn hafi byrjað
á því að nefna að maðurinn væri
laus við gleraugun. Maðurinn hafi
ekki brugðist vel við þeirri athuga-
semd og á því augnabliki hafi
sjónarvotturinn áttað sig á því að
um annan jakkafatamanninn úr
Eyjum væri að ræða. Viðtalið hafi
snúist um einhver verkefni Lands-
virkjunar. Sjónarvotturinn mundi
ekki nákvæmlega hvenær viðtalið
var í sjónvarpinu en líklega milli
1980 og 1990.
Löngu síður var sjónarvottur-
inn heimilismaður hjá stjúpföður
sínum á prestssetri á Austfjörðum
er þangað komu tveir menn á vegum
Landsvirkjunar vegna línulagnar
um land prestssetursins. Þótt vitnið
myndi ekki hvaða ár þetta var má
af skýrslu hans áætla að þetta hafi
verið um eða upp úr 1990. Sagði
sjónarvotturinn að hann hefði strax
þekkt annan þeirra sem lágvaxnari
manninn í Eyjum. Honum var einn-
ig samstundis ljóst að maðurinn
þekkti hann líka. Hann hefði horft
á sig allan tímann meðan fundurinn
á prestsetrinu stóð yfir og komið að
borðinu til hans og spurt: „Á hvers
vegum ert þú hérna?“ Hann hafi
svarað því til að hann væri heimilis-
maður á staðnum. Þegar gestirnir
voru farnir spurði fóstri hans um
kynni hans af manninum og því
ljóst að ekki hafði farið fram hjá
prestinum að þeir virtust þekkjast.
Í þriðja skiptið sá sjónarvottur-
inn mennina í nágrenni við Kára-
hnjúkavirkjun árið 2007 eða
2008. Hann var þá sjálfur að keyra
vinnuvél og sagðist oft hafa mætt
öðrum þeirra, sem ók Range Rover,
á svæðinu. Í eitt skiptið hafi hann
mætt bílnum við einbreiða brú og
þurft að stoppa vélina til að hleypa
bílnum yfir. „Þá eru þeir bara báðir
félagarnir þarna. Það vantaði bara
manninn á milli þeirra,“ segir í
skýrslu mannsins. Ljóst hafi verið
að annar þeirra, sá lágvaxnari með
grábláu augun, hefði verið úti í lönd-
um, hann hafi verið mjög sólbrúnn.
Fleiri viðtöl í farvatninu
Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins
segir Páley rannsóknina ýmsum
erfiðleikum bundna, gagnaöf lun
sé tímafrek og einhverjir þeirra sem
nafngreindir eru í frásögn sjónar-
vottsins séu látnir.
„Eins og gefur að skilja er tíma-
frekt að finna gögn frá 1974 enda
lítið sem ekkert til af gögnum á
rafrænu formi og ýmislegt glatað,“
segir Páley og bætir við: „Hins vegar
hefur tekist að finna ýmis gögn
sem hjálpa til við rannsóknina en
einhverjir sem nafngreindir eru í
þessum gögnum eru látnir og veldur
það eðlilega meiri erfiðleikum við
að greina atvikið.“
Páley segist ekki geta veitt frekari
upplýsingar um stöðu rannsóknar-
innar að svo stöddu þar sem gagna-
öflun og viðtölum sé ekki lokið.
Ábending um Geirfinn enn í rannsókn
Lögreglan í Vestmannaeyjum er enn að afla gagna og viðtala við hugsanleg vitni vegna ábendingar um tvo grunsamlega menn með
rænulítinn mann á milli sín í Vestmannaeyjum 20. nóvember árið 1974. Sjónarvotturinn telur mennina tengjast Landsvirkjun.
Vitni segist hafa séð menn koma með rænulítinn mann á milli sín úr trillu við höfnina í Eyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hins vegar hefur
tekist að finna ýmis
gögn sem hjálpa til við
rannsóknina.
Páley Borgþórs-
dóttir, lögreglu-
stjóri í Vest-
mannaeyjum
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur@frettabladid.is
2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð