Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 26

Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 26
Eins manns barátta Kristín Ýr segir heildstæðan stuðn- ing skorta og ekki síst þegar kemur að sjaldgæfum sjúkdómum. Hún hefur því valið að vekja athygli á málstaðnum og styrkja Einstök börn með því að hlaupa 100 kíló- metra í febrúarmánuði. „29. febrú- ar er dagur sjaldgæfra sjúkdóma. Dagurinn er sjaldgæfur eins og sjúk- dómarnir,“ segir Kristín og bætir við að mánuðurinn endi á málþingi á vegum Einstakra barna. „Mig langar að vekja athygli á að barátta foreldra einstakra barna er afskaplega mikil eins manns barátta. Það er alltaf eins og hvert og eitt foreldri þurfi að hefja sömu baráttu aftur og aftur og hún skili sér ekki til næsta. Að hlaupa úti í febrúar er ekki endilega auðvelt, en þannig er líf sem foreldri fatlað barns; ekki endilega auðvelt.“ Yngsta dóttir K rist-ínar, Freydís Borg, var greind með Williams-heilkenni þegar hún var 13 mánaða gömul. Um er að ræða sjald- gæfan litningagalla þar sem hluta sjöunda litningsins vantar. „Heilkennið er ekki tengt erfðum og einkennin eru bæði andleg og líkamleg. Meðal helstu einkenna eru óværð ungbarna og erfiðleikar við næringu. Vöðvaspenna er lág, liðir lausir og börn byrja oft ekki að ganga fyrr en rúmlega tveggja ára. Þau eiga erfitt með fínhreyf- ingar, sjónin er oft léleg og mörg eiga í hjarta- og æðavandamálum. Þroskaskerðing fylgir heilkenninu en er mismikil milli einstaklinga.“ Kristín segir Williams-krakka félagslynda og jákvæða og það eigi svo sannarlega við um Freydísi. „Ég hef enn ekki hitt lífsglaðari og einlægari manneskju. Reyndar er hún líka óþekkasta barnið mitt en uppátæki hennar skilja mig alltaf eftir í hláturskasti á sama tíma og ég reyni að ala hana upp,“ segir hún og hlær en auk Freydísar á Kristín tvær eldri dætur. „Freydís Borg telst frekar framarlega í þroska miðað við hennar heilkenni. Við vorum heppin og hvorki æðaþrengingar né hjartagalli hafa hrjáð hana hingað til.“ Þú ert öðruvísi en systur þínar Freydís, sem nú er sex ára, fæddist 9 merkur og 45 sentímetrar. „Hún var afskaplega lítil og hrá og þegar ég fékk hana í hendurnar í fyrsta sinn man ég að ég hugsaði: Þú ert öðru- vísi en systur þínar. Sem reyndist rétt, en það var mikil þrautaganga að fá greininguna. Fyrstu mánuðina þroskaðist hún illa, svaf ekki og grét næstum allan sólarhringinn. Við foreldrarnir leituðum til lækna en í ungbarnaeftirlitinu var mér tjáð að ég væri líklega bara kvíðin og þunglynd, barnið væri heilbrigt og ég þyrfti að huga að eigin geðheilsu og á tímabili var ég farin að trúa því að ég væri að missa vitið. Þegar greiningin svo kom pass- aði allt sem ég sá og upplifði við heilkennið hennar.“ Kristín segist finna áfallastreituna kræla á sér þegar hún rifjar upp þennan tíma. „Í raun hef ég lifað á vígvelli síðan Freydís fæddist. Stundum hef ég getað sest niður en ég hef aldrei lagt niður vopnin, því ég verð ávallt að vera tilbúin í næsta stríð.“ Gat ekki verið til staðar Það var þegar Freydís var níu mán- aða að Gestur Pálsson barnalæknir kom af stað greiningarferli sem tók marga mánuði. Eldri dætur Krist- ínar voru sjö og tólf ára þegar Frey- dís Borg bættist í hópinn og gengur Kristín svo langt að segja að þær hafi ekki átt móður í tvö og hálft ár. „Ég bara gat ekki verið til staðar.“ Þremur árum eftir fæðingu Frey- dísar skildu foreldrar hennar. „Það er ekki hægt að komast í gegnum álag sem fylgir árum af svefnlausum nóttum, ótta og áhyggjum án þess að eitthvað brotni.“ Við mæðgur getum allt „Ég vil eiginlega segja að ég hafi eignast nýtt líf, kafla 2, eftir að ég átti Freydísi. Því þrátt fyrir alla þá erfiðleika sem ég hef tekist á við með henni kennir hún mér að meta lífið og vera glöð. Ég lærði að sleppa tökunum á óþarfa áhyggjum og taka á móti lífinu eins og það birt- ist mér og hönd í hönd getum við mæðgur allt sem við ætlum okkur.“ Kristín segist þakklát fyrir líf sitt í dag. „En fjandinn hvað það hefur oft tekið á að standa í þessar báðar lappir. Áfallastreita er stór partur af lífi mínu og hún tekur stundum völdin. Þess vegna hefði verið ósk- andi að haldið væri utan um fólk í þessari stöðu og okkur hjálpað að fóta okkur. Langtímaáhrifin eru nefnilega svo mikil.“ Vopnin ekki lögð niður Kristín Ýr Gunnarsdóttir ætlar að hlaupa samtals 100 kílómetra í febrúar og safna þannig stuðningi fyrir Einstök börn. Sjálf á hún dóttur með sjaldgæfan litningagalla og kallar eftir breytingum eftir að hafa að eigin sögn varið sex árum á vígvelli. Kristín Ýr mun segja sögu sína og Freydísar á Instagram-reikningi sínum, @kristinyr. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég vildi óska þess að ég og dætur mínar hefðum fengið heildrænni aðstoð. Þar sem hefði verið haldið utan um okkur sem fjölskyldu. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Yfir helmings líkur á skilnaði Kristín nefnir dæmi um foreldra barna sem þurfa umönnun allan sólarhringinn og nýta foreldra- greiðslur frá Tryggingastofnun. „Þetta er hópur sem dettur út af vinnumarkaði og nýtur engra rétt- inda á meðan. Þau greiða ekki í stéttarfélag né lífeyrissjóð og mega hvorki stunda nám né lítið starfs- hlutfall. Oftast eru þetta konur sem hverfa úr samfélaginu svo árum skiptir til að vera umönnunaraðilar og samkvæmt skýrslu Eurostat eru aðstandendur á Íslandi undir mestu álagi allra í Evrópu. Það er mikilvægt að halda utan um fjölskyldurnar í heild, enda yfir 50 prósent líkur á að foreldrar skilji vegna álags.“ Mæður taldar móðursjúkar „Ég vildi óska þess að ég og dætur mínar hefðum fengið heildrænni aðstoð. Þar sem hefði verið haldið utan um okkur sem fjölskyldu. For- eldrar fatlaðra barna lifa á þessum vígvelli sem ég nefni, það eina sem við hugsum er að lifa af daginn og á verstu veikindatímunum að barnið okkar lifi af daginn því það er bara alls ekki sjálfsagt. Ég vildi óska þess að það yrði hlustað betur, þá sérstaklega á mæður. Því í samtali mínu við margar mæður sem hafa verið í sömu stöðu og ég kemur fram að þær voru taldar móðursjúkar, þunglyndar eða bara einfaldlega bent á að fara út að labba til að róa hugann.“ Erfitt að berjast við kerfið „Ég vildi óska að foreldrar þyrftu ekki að berjast í hverju skrefi og kerfið yrði þeim aðstoð en ekki vettvangur átaka. Það er svo erfitt að berjast við kerfið og þurfa á því að halda á sama tíma. Fólki lendir saman og það hefur gríðarleg áhrif að lenda saman við einhvern sem þú þarft á sama tíma að treysta fyrir velferð barnsins þíns.“ Kristín nefnir sem dæmi um bar- áttuna að hún hafi sótt um árs frest- un á skólagöngu Freydísar þar sem hún er bæði fædd í lok desember og með þroskaskerðingu. Slík frestun sé þekkt ef um sérstakar aðstæður sé að ræða og hafði Kristín ráðfært sig við fagfólk í tíma. „En ferlið var þannig að félagsráð- gjafi skrifaði skýrslu um Freydísi sem við foreldrarnir fengum aldrei að sjá og svo var það í valdi skóla- stjóra hverfisskólans að ákveða hvert skref er varðaði velferð Frey- dísar í þessu máli. Skólastjórinn tók ákvörðun, án samráðs eða nokkurs samtals við okkur foreldrana. Hann ákvað að hún væri í stakk búin til að hefja skólagöngu um haustið. Viðkom- andi félagsráðgjafi og skólastjóri ræddu aldrei við okkur og könnuðu aldrei ástæður þess að við teldum þetta Freydísi fyrir bestu. Manneskjur sem aldrei höfðu hitt Freydísi gátu bara með einu penna- striki tekið ákvörðun um velferð hennar. Þetta er svona ekta dæmi um kerfi þar sem er bara vaðið áfram og verkferlar eru í rugli. Ég get ekki annað séð í þessu dæmi en vanvirðingu við fatlaða einstakl- inginn.“ 2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.