Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 31

Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 31
Engifer- og túrmerikrætur hafa í árþúsundir verið notaðar í lækningaskyni. Þessar rætur eru náskyldar og eru enn þann dag í dag notaðar bæði í kínverskum og indverskum náttúrulækningum. Bromelain er ensím, unnið úr ananasplöntunni, sem hefur bæði góð áhrif á meltingu og bólgur og vísbendingar eru um mun víðtæk- ari heilsufarsleg áhrif. Þessi þrjú náttúrulegu efni eru saman komin í Ginger, Turmeric & Bromelain- bætiefninu frá Natures Aid og eru vinsældir þess sífellt að aukast. Fann mun eftir viku Þrymur Sveinsson hefur notað Ginger, Turmeric & Bromelain um þó nokkurt skeið með ótrúlegum árangri. Hann hafði þetta að segja: „Fyrst þegar Ginger, Turmeric & Bromelain fékk umfjöllun í Frétta- blaðinu fannst mér samsetningin í bætiefninu vera áhugaverð. Ég las mig betur til á netinu og þar sem þær greinar sem ég fann um efnin gáfu sömu niðurstöðu ákvað ég að kaupa glas til reynslu. Ástæðan er sú að allt frá unga aldri hafði ég átt við vandamál í öndunarfærum að stríða sem lýsti sér m.a. í stífluðu nefi. Engin lausn fannst þrátt fyrir að ég hafi leitað víða. Vandamálið versnaði stöðugt og ég var farinn að nota nefúða allt að fjórum sinnum á dag þegar ég var sem verstur. Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vandamálið horfið, ég gat dregið andann áreynslu- laust, án hjálparefna í fyrsta skipti síðan á unglingsaldri. Ég hef notað Ginger, Turmeric & Bromelain að staðaldri síðan en gæði þessa nátt- úrulyfs eru ótvíræð.“ Rót vandans Engifer er afar vinsælt í bæði asískri og indverskri matargerð ásamt því að vera notað þar í lækn- ingaskyni. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á engiferi*1 enda talin hafa góð áhrif gegn ógleði, verkjum og bólgum. Engifer getur einnig haft vatnslosandi áhrif og jafnað blóðsykur. Það má neyta engifers á ýmsa vegu en við fáum sjaldnast nóg í matnum þrátt fyrir að það gefi gott bragð. Það má þó bæta það upp með inntöku á rótinni einni og Nefstíflur loksins horfnar! Í náttúrunni er að finna magnaðar jurtir og rætur sem geta bætt heilsu okkar á ýmsan máta. Engifer Turmeric & Bromelain-blandan hefur reynst mörgum vel og er einnig góð fyrir meltinguna. sér. Engiferrót er góð rifin í vatn/ te, sem nýpressaður safi eða taka sem bætiefni. Þessi magnaða rót hefur þó enn fleiri kosti en hún er talin sérlega góð fyrir meltinguna þar sem hún dregur úr meltingar- ónotum og hefur jákvæð áhrif á ákveðnar tegundir meltingar- ensíma með því að auka eða bæta flæðið gegnum meltingarveginn. Engifer hitar okkur innan frá og því gott að fá sér t.d. te þegar við fáum kvef og svo bendir ýmislegt til þess að það hafi góð áhrif á vöðvaverki, sem skýrist sennilega af bólgueyð- andi áhrifum hans. Krónískar bólgur Turmeric (Curcuma longa) er eitt öflugasta andoxunarefnið á markaðnum og það er ekkert nátt- úrulegt efni sem hefur verið jafn mikið rannskað. Það getur unnið vel gegn bólgum en eins og bráðar (skammtíma) bólgur í líkamanum eru nauðsynlegar eru langvarandi/ krónískar bólgur að sama skapi mjög slæmar. Krónískar bólgur eru rótin að mörgum lífsstílssjúkdómum og hafa rannsóknir*2 sýnt að kúrkúm- ín geti dregið úr líkum á þessum bólgum. Bromelain fyrir ennis- og kinnholur Bromelain er ensím úr ananas- plöntunni en þetta ensím brýtur niður prótein og getur því nýst fólki með meltingarvandamál, rétt eins og meltingarensím. Fjöldi rannsókna hefur verið framkvæmdur og bendir til margra ávinninga náttúrulega efnisins bromelain, m.a. að það geti haft jákvæð áhrif á nefslímu- bólgur í ennis- og kinnholum og það getur hjálpað fólki með liðverki og dregið úr almennum bólgum. Einnig hafa rannsóknir*3 bent til þess að efnið hafi góð áhrif á frjókornaofnæmi. Gott fyrir heilsuna Erfitt er í stuttu máli að telja upp kosti þeirra efna sem þetta bæti- efni inniheldur. Kúrkúmín, sem er virka efnið í túrmerik, verndar liðina þar sem það eykur náttúru- lega framleiðslu kortisóns sem getur haft bólgueyðandi áhrif. Rannsóknir*4 benda til þess að engifer sé blóðþynnandi og auki blóðflæði ásamt því að geta dregið úr bólgum, verið vatnslosandi, jafnað blóðsykur og minnkað ógleði. Einnig hafa báðar þessar rætur jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. Þriðja efnið í blöndunni er ensímið bromelain sem er m.a. græðandi, hefur góð áhrif á meltinguna og virðist geta unnið á ýmsum bólgu- vandamálum í ennis- og kinn- holum. Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. Mælt er með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við f logaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki. Ekki ráðlagt fyrir ófrískar konur, eða konur með barn á brjósti, þá sem eru á blóðþynnandi lyfjum eða hafa fengið gallsteina. *1 Gingerols & shogaols: Important nutraceutical principles from ginger https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/26228533 https://www.ncbi.nlm.nih.gov/books/NBK92775/?log$=- activity *2 Bólgueyðandi eiginleikar kúrkúmín https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/19594223 *3 Verkun og þol bromelains á langvarandi nefslímubólgur https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/24273953 *4 The amazing and mighty ginger https://www.ncbi.nlm.nih.gov/books/NBK92775/?log$=activity Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vandamálið horfið. Þrymur Sveinsson Vinsældir Ging- er, Turmeric & Bromelain eru sífellt að aukast en bætiefnið hefur reynst vel við bólgum og meltingar- vandamálum. Engifer, túrmerik og Bromelain eru saman komin í Ginger, Turmeric & Bromelain-bætiefninu frá Natures Aid. Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Krill Oil - öflugustu Omega 3 fitusýrurnar Kristófer Fannar Stefánsson „Eftir að ég fór að taka Krill olíuna finn ég mjög mikinn mun á mér og þá sérstaklega húðinni“ Krill olía er omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd, sótt í Suðurskautshafið sem er hreinasta hafsvæði veraldar. Líkaminn á mjög auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku. K ill_O l_5x10_20170825 copy.pdf 1 28/08/2017 09:58 FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.