Fréttablaðið - 25.01.2020, Qupperneq 32
Ed Sheeran náði
ekki lagi í úrslit og
fjarvera laga á borð við
Gangnam Style, Harlem
Shake og Despacito var
fremur ánægjuleg.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Við erum Haukur Ísbjörn og Guðjón Heiðar. Við erum úthverfabörn sem gerðust
miðbæjartítlur með allt of mikinn
frítíma í leit að tilgangi,“ segja þeir
félagar.
Hvers vegna ákváðuð þið að gera
þetta?
„Það var víst þessi áðurnefndi
skortur á tilgangi. Svo hefur okkur
alltaf langað til að upplifa okkur
mikilvæga og merkilega. Þetta er
svona leið til að skrá okkur á spjöld
sögunnar án þess að hafa afrekað
neitt sérstaklega.“
Hvernig fór þetta fram?
„Þetta fór auðvitað allt fram eftir
alþjóðlega vottuðum ISO-stöðlum.
Valin var þverfagleg nefnd þar sem
álitsgjafar voru valdir af kost-
gæfni, fagmennsku og hlutleysi.
Lögð var áhersla á að nefndin væri
skipuð hipp, kúl og myndarlegu
fólki með puttann á púlsinum.
Um er að ræða plötusnúða, tón-
listarfólk, sjálfskipaða kverúlanta
með sterkar skoðanir. Var þetta
síðan jafnað út með því að leita til
nokkurra fulltrúa hins sauðsvarta
almúga, jafnvel austan við Snorra-
braut.“
„Eftir að nefndin tók við störfum
skilaði hver og einn meðlimur
inn 20 laga lista með þeim lögum
sem þeim fannst standa upp úr á
áratugnum. Listarnir voru teknir
saman og þau 20 lög sem náðu inn
á flesta þeirra komust í úrslit,“
útskýra þeir. „Að því loknu var
nefndin kölluð saman á nýjan leik
og fengin til að gefa hverju lagi
eink unn á skalanum 1–10. Þetta
var svo reiknað saman og við
heildartöluna bættist eitt stig fyrir
hvern lista sem lagið birtist á.“
Komu niðurstöðurnar á óvart?
„Bæði og. Margt kom á óvart.
Annað ekki. Það var til dæmis
lítið um rapp sem komst í úrslit,
sérstaklega miðað við hversu
áberandi sú tónlistarstefna var á
þessum áratug. Var það þá gjarnan
þannig að fólk var að kjósa sömu
rapparana en ekki sömu lögin. Til
að mynda fengu Drake, Kend-
rick Lamar og Weeknd slatta af
atkvæðum en þau dreifðust á mis-
munandi lög. Einnig vakti athygli
okkar að Ed Sheeran náði ekki lagi
í úrslit og fjarvera laga á borð við
Gangnam Style, Harlem Shake og
Despacito var fremur ánægjuleg.“
Hvað einkennir helst tónlist
þessa áratugar að ykkar mati?
„Rafskotið og dansvænt popp,
alveg svona korter í klúbbamúsík
var mest áberandi.
Hljóðblöndunin í þessum
lögum er nánast sótthreinsuð og
lítið um lífræna tilburði. Dagar
Indie-sveitanna virðast vera
taldir, að minnsta kosti í bili.
„The“ sveitirnar vöktu litla lukku
miðað við hvernig stemningin var
á fyrsta áratug aldarinnar. Það var
lítið um rokkið almennt, það var
ekki eitt rokklag sem komst í úrslit
og nánast ekkert rokklag fékk svo
mikið sem tilnefningu. Stúlkna-
og strákasveitir voru furðu lítið
áberandi, fyrir utan One Direction
sem náði mikilli hylli en komst þó
ekki á lista í þessari könnun.“
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur
þróunina næsta áratug?
„Þetta gæti farið á báða vegu.
Það er auðvitað sennilegt að
tölvurnar séu að fara að taka yfir í
framtíð sem verður köld, drunga-
leg og dystópísk. Gervigreind
mun að öllum líkindum tröllríða
tónlistarsenunni. Heilmyndir
munu taka við af tónlistarfólki.
Amy Winehouse og Kurt Cobain
munu gefa út lag saman þar sem
Biggie Smalls mætir með gestavers,
allt samið af TuneBot 3000, nýjasta
útspili tölvurisanna.
Annars væri líka gaman að sjá
hvort rokkið, jafnvel pönkið og
lífrænni stefnur muni snúa aftur
með stæl. Teljum við okkur a.m.k.
geta slegið því föstu að nu-metal
muni hljóta dýrðlega endurkomu
og Fred Durst muni hljóta endur-
nýjun lífdaga. Handboltarokkið er
þó líklega farið yfir móðuna miklu
til frambúðar. Blessunarlega.“
Hitað verður upp með pub-quiz
sem byrjar 20.30 þar sem gestir
geta spreytt sig á spurningum sem
snúa að lögum þessa áratugar og
eiga kost á að vinna pitsumáltíð
á Hressingarskálanum. Bjór og
skot verða á tilboði á 600 kr. til
miðnættis og kokteilar á 1.500 frá
kl. 17–21.
Sótthreinsuð hljóðblöndun
og lítið um lífræna tilburði
Í kvöld verður sannkölluð tónlistarveisla á Hressingarskálanum þar sem fram
kemur hvaða lag hlýtur titilinn „vinsælasta lag áratugarins“. Vinirnir Guðjón
Heiðar og Haukur Ísbjörn standa að baki þessari metnaðarfullu rannsókn.
Guðjón Heiðar Valgarðsson og Haukur Ísbjörn Jóhannsson eru mennirnir á bak við verkefnið og viðburðinn „Lag áratugarins“. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nánari upplýsingar veitir Júlíus á julius@fastus.is
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
WELLION GALILEO GLU/KET
KETÓNAMÆLIR
Blóðsykur- og ketónamælir í einu og sama tækinu
Ketó-mataræðið (Ketogenic Diet) er búið að festa sig í sessi hjá stórum hóp Íslendinga.
Margir hafa náð að léttast mikið og aukið vellíðan með ketóna lífstíl. Mataræðið er notað
af mörgum sem úrræði gegn ýmsum kvillum og fyrir fólk sem vill léttast og lifa heilbrigðu líferni.
Wellion ketóna- og glúkósamælirinn er samþykktur af heilbrigðisstarfsfólki og er notaður
á mörgum háskólasjúkrahúsum víða um Evrópu.
fastus.is
Wellion ketónamælir:
• Wellion GLU/KET mælir
• 10 x Glúkósa strimlar
• 1 x skotbyssa fyrir fingur
• 10 x stungunálar
• Veski fyrir mælinn
• Auðlesinn bæklingur
með myndum til útskýringa.
Verð: 6.900 kr
Verð: 3.100 kr
Wellion ketónastrimlar:
• 10 x Ketónastrimlar
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R