Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 47
Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum
Rannsóknarlektor á handritasviði
Starf rannsóknarlektors við handritasvið Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum er laust til umsóknar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknarlektornum er ætlað að sinna rannsóknum og
taka þátt í þeim verkefnum sem unnið er að á handrita
sviði, svo sem ritstjórn bóka, í samvinnu við aðra starfs
menn sviðsins.
Rannsóknir á handritum og textum sem þau varðveita
og útgáfustarfsemi eru hornsteinar starfsins á handrita
sviði, en jafnframt þarf rannsóknarlektorinn að taka
þátt í miðlun upplýsinga og þekkingar til fræðimanna,
stúdenta og almennings.
Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á
rannsóknar sviði stofnunarinnar.
Ætlast er til að þeir geti með námsferli sínum, starfs
reynslu og ritverkum sýnt fram á kunnáttu á fræðasviði
handritasviðs, og hafi næga þekkingu og reynslu til að
vinna að rannsóknum á því sviði, einkum bókmenntum og
sögu miðalda, en einnig textaútgáfum.
Góð kunnátta í íslensku máli að fornu og nýju er skilyrði
sem og gott vald á talaðri og ritaðri íslensku.
Kunnátta í ensku og dönsku eða öðru norrænu máli er
nauðsynleg og frekari tungumálakunnátta er kostur.
Gerð er krafa um góða samskiptahæfni.
Horft verður til þess að sérsvið og reynsla
umsækjenda falli sem best að rannsókna og
þjónustuþörfum stofnunarinnar.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða fullt starf og í því er fólgin 40% rann
sóknarskylda.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakenn
ara og fjármála og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs.
Ráðið verður í starfið frá 1. september 2020 til fimm ára
með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma
liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr.
569/2009.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar hjá stofnuninni
í síma 5254010.
Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðunni:
www.arnastofnun.is.
Umsóknir og meðferð þeirra
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og
rannsóknir, svo og vottorð um námsferil sinn og störf. Í
umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta
talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til
þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu
þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar
þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn
höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækj
endur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig
er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum
umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir vinna að sem
stendur og hver séu áform þeirra um rannsóknarverk
efni ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til þess
að umsækjendur láti fylgja nöfn og netföng tveggja
einstaklinga sem eru til þess bærir að veita umsagnir um
verk þeirra og hæfni.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
skal senda á netfangið umsoknir@arnastofnun.is eða til
Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum,
Árnagarði við Sturlugötu, 102 Reykjavík ásamt fylgigögn
um í þríriti. Umsóknarfrestur er til og með 06.03.2020.
Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna er farið
eftir ákvæðum laga um Stofnun Árna Magnússonar í ís
lenskum fræðum nr. 40/2006 og reglugerðar um Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 861/2008.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um
ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf hjá Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum er tekið mið af jafnréttisstefnu
stofnunarinnar.
Ráðgjafi óskast til starfa
NPA miðstöðin óskar eftir að ráða öflugan ráðgjafa til
starfa á skrifstofu miðstöðvarinnar.
Viðkomandi mun fá tækifæri til að taka þátt í þróa starfið sitt, ásamt því að taka þátt í uppbyggingu á starfsemi og þjónustu NPA
miðstöðvarinnar. Starfið felst í því að veita núverandi og væntanlegum NPA notendum hjá NPA miðstöðinni ráðgjöf er varðar skipulag og
framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Um er að ræða spennandi, fjölbreytt og lærdómsríkt starf í lifandi starfsumhverfi
sem enn er í þróun.
Um er að ræða allt að 100% starfshlutfall. Unnið er á hefðbundnum skrifstofutíma en vinnutími getur verið sveigjanlegur. Sérstaklega
verður horft til umsækjenda sem hafa persónulega reynslu af NPA eða sambærilegu og við tökum fagnandi á móti umsóknum frá fötluðu fólki.
Helstu verkefni:
• Ráðgjöf, samskipti og aðstoð við félagsfólk, aðstoðarfólk og aðra
um þætti er snúa að framkvæmd NPA og hugmyndafræðina um
sjálfstætt líf.
• Taka á móti erindum sem berast miðstöðinni og svara fyrirspur-
num.
• Að taka þátt í almennum störfum og verkefnum á vegum NPA
miðstöðvarinnar.
• Að leiðbeina, styðja og hvetja félagsfólk til þátttöku.
• Að efla sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt félagsfólks.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg, til dæmis í
þroskaþjálfun, iðjuþjálfun, félagsráðgjöf eða fötlunarfræðum.
• Þjónustulund og jákvætt viðmót.
• Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Sjálfstæði, ábyrgð í starfi og framtakssemi.
• Geta til að bregðast við breyttum aðstæðum.
• Almenn og góð tölvukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
MIÐSTÖÐIN
MIÐSTÖÐIN
NPA miðstöðin er vaxandi samvinnufélag í eigu fatlaðs fólks og er rekin án ágóðasjónarmiða. Á skrifstofu NPA
miðstöðvarinnar starfa nú sjö manns og mun miðstöðin flytja í nýtt og glæsilegt húsnæði í apríl á þessu ári. Hlutverk
miðstöðvarinnar er að vinna að framgangi hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf og innleiðingu notendastýrðrar
persónulegrar aðstoðar á Íslandi. NPA miðstöðin tekur einnig að sér umsýslu með NPA samningum félagsmanna
sinna (umsýsluaðili) og annast margvíslega hagsmunagæslu, fræðslu og ráðgjöf.
Umsókn, ásamt ferilskrá, sendist á npa@npa.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2020.
Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Eysteinsson, framkvæmdastjóri, í síma 567 8270 eða í gegnum hjortur@npa.is.
HÆFNISKRÖFUR
STARFSSVIÐ
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík auglýsir
eftir kennara á sviði fjármála og tengdra greina.
Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og
verður starfsheitið ákvarðað út frá formlegu hæfnismati.
Viðskiptadeild HR býður upp á nám á grunn- og framhaldsstigi í viðskiptafræði og hagfræði.
Háskólinn í Reykjavík tekur þátt í flutningskostnaði fyrir nýja kennara sem flytja frá útlöndum.
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegur 1 | 101 Reykjavík | S: 599 6200 | hr.is
Akademísk
staða í ármálum
Nánari upplýsingar um starfið veita dr. Friðrik Már Baldursson (fmb@ru.is) forseti viðskipta-
deildar og Ester Gústavsdóttir (esterg@ru.is) mannauðssérfræðingur. Farið er með allar
fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík: radningar.hr.is eigi síðar en 1. mars 2020.
Rannsóknir á sviði fjármála og tengdra greina.
Kennsla í grunn- og framhaldsnámi í
námskeiðum á borð við fjármál fyrirtækja,
alþjóðafjármál, verðmat, afleiður,
eignastýringu og stafræn fjármál.
Leiðsögn nemenda á grunn-,
meistara- og doktorsstigi.
Þátttaka í stjórnsýslu deildarinnar,
þar með talið við þróun námsframboðs.
Doktorspróf í fjármálum, eða tengdum greinum.
Færni og reynsla með rannsóknarstörfum
staðfest af birtum ritverkum á viðurkenndum
alþjóðlegum vettvangi.
Reynsla af kennslu og metnaður í þróun
kennsluaðferða.
Góð enskukunnátta er skilyrði.
Hæfni í mannlegum samskiptum,
frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Umsóknarbréf þar sem fram kemur
hvort umsækjandi sækir um starf
lektors, dósents eða prófessors.
Starfsferilskrá ásamt ritaskrá.
Afrit af viðeigandi prófskírteinum.
Yfirlit um fyrirhugaðar rannsóknir
(e. research statement).
Afrit af þremur til fimm birtum ritverkum.
Yfirlit um fyrirhugaða kennslu og nálgun
umsækjanda í kennslu (e. teaching statement).
Gögn til vitnis um árangur í kennslu.
Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill
koma á framfæri og geta stutt umsóknina.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsóknum: