Fréttablaðið - 25.01.2020, Page 48

Fréttablaðið - 25.01.2020, Page 48
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi, Yfirhjúkrunarfræðingur hjúkrunarsviðs Staða yfirhjúkrunarfræðings hjúkrunarsviðs á Blönduósi er laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. apríl 2020. Á hjúkrunarsviði eru samreknar þrjár deildir. Deild A sem er blönduð sjúkra- og hjúkrunardeild, deild B sem er hjúkrunardeild og svo dvalardeild. Rýmin eru samtals 34. Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á hjúkrun á hjúkrunarsviði. Næsti yfirmaður er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Blönduósi. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is og á www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi starfsferliskrá og upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 11.02.2020 Nánari upplýsingar veita: Ásdís H Arinbjörnsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis - asdis.arinbjarnardottir@hsn.is - 455 4100 Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar - gudny.fridriksdottir@hsn.is - 860 7750 Helstu verkefni og ábyrgð - Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er á hjúkrunarsviði - Stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður - Skipuleggja og stjórna hjúkrunarþjónustu hjúkrunarsviðs og taka þátt í klínísku starfi - Tryggja að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun Hæfnikröfur - Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun - Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar er æskileg - Þekking á RAI-mati æskileg - Reynsla af stjórnun er æskileg - Framúrskarandi samskiptahæfni - Frumkvæði og metnaður til að ná árangri Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Við leitum að metnaðarfullum samstarfsfélaga, með brennandi áhuga á orkugeiranum, í hóp frábærra sérfræðinga í stjórnstöð okkar. Starfs- og ábyrgðarsvið · Stýring og vöktun raforkukerfisins · Aðgerðastjórnun og áætlanagerð um rekstur flutningskerfisins · Þátttaka í greiningar- og úrbótaverkefnum · Þátttaka í nýsköpunarverkefnum Menntunar- og hæfniskröfur · Háskólamenntun í raungreinum sem nýtist í starfi eða víðtæk reynsla úr orkugeiranum eða stóriðju · Geta til að starfa undir álagi · Framúrskarandi samskiptahæfileikar og geta til að starfa í teymi · Öguð og nákvæm vinnubrögð · Sterk öryggis- og jafnréttisvitund Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á landsnet.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Stjórnstöðin ber ábyrgð á stjórnun raforkukerfisins, samhæfingu aðgerða í tengslum við truflanir og viðhald auk þess að halda utan um orkumarkað. Nýju starfsfólki er veitt öflug og markviss þjálfun en um er að ræða krefjandi og ábyrgðarmikið starf. Hluti starfsins er vaktavinna. Við bjóðum þér spennandi framtíð Landsnet er þjónustufyrirtæki sem kappkostar að vinna í takt við samfélagið og hefur það að meginmarkmiði að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við bjóðum upp á fyrsta flokks aðbúnað, góðan starfsanda, frábært mötuneyti, aðgengi að líkamsræktaraðstöðu og stuðning við að viðhalda og sækja sér frekari þekkingu. Við erum þátttakandi í fjölmörgum rannsóknar- og samvinnuverkefnum innan Norðurlandanna og Evrópu. Um Landsnet 12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.