Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 48
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi, Yfirhjúkrunarfræðingur hjúkrunarsviðs
Staða yfirhjúkrunarfræðings hjúkrunarsviðs á Blönduósi er laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá
1. apríl 2020.
Á hjúkrunarsviði eru samreknar þrjár deildir. Deild A sem er blönduð sjúkra- og hjúkrunardeild, deild B sem er hjúkrunardeild
og svo dvalardeild. Rýmin eru samtals 34.
Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á hjúkrun á hjúkrunarsviði.
Næsti yfirmaður er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Blönduósi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is og á www.starfatorg.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi starfsferliskrá og upplýsingar um
nám og fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.02.2020
Nánari upplýsingar veita:
Ásdís H Arinbjörnsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis - asdis.arinbjarnardottir@hsn.is - 455 4100
Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar - gudny.fridriksdottir@hsn.is - 860 7750
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er
á hjúkrunarsviði
- Stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun með því að hvetja til
rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður
- Skipuleggja og stjórna hjúkrunarþjónustu hjúkrunarsviðs
og taka þátt í klínísku starfi
- Tryggja að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við
fjárhagsáætlun
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla
við hjúkrun
- Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar
er æskileg
- Þekking á RAI-mati æskileg
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Við leitum að metnaðarfullum samstarfsfélaga, með brennandi áhuga
á orkugeiranum, í hóp frábærra sérfræðinga í stjórnstöð okkar.
Starfs- og ábyrgðarsvið
· Stýring og vöktun raforkukerfisins
· Aðgerðastjórnun og áætlanagerð um
rekstur flutningskerfisins
· Þátttaka í greiningar- og úrbótaverkefnum
· Þátttaka í nýsköpunarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólamenntun í raungreinum sem nýtist í starfi eða víðtæk
reynsla úr orkugeiranum eða stóriðju
· Geta til að starfa undir álagi
· Framúrskarandi samskiptahæfileikar og geta til að starfa í teymi
· Öguð og nákvæm vinnubrögð
· Sterk öryggis- og jafnréttisvitund
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á landsnet.is.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Stjórnstöðin ber ábyrgð á stjórnun raforkukerfisins, samhæfingu aðgerða í tengslum við truflanir og
viðhald auk þess að halda utan um orkumarkað. Nýju starfsfólki er veitt öflug og markviss þjálfun en
um er að ræða krefjandi og ábyrgðarmikið starf. Hluti starfsins er vaktavinna.
Við bjóðum
þér spennandi
framtíð
Landsnet er þjónustufyrirtæki sem
kappkostar að vinna í takt við samfélagið
og hefur það að meginmarkmiði að
tryggja örugga afhendingu á raforku
til framtíðar. Við bjóðum upp á fyrsta
flokks aðbúnað, góðan starfsanda,
frábært mötuneyti, aðgengi að
líkamsræktaraðstöðu og stuðning við að
viðhalda og sækja sér frekari þekkingu.
Við erum þátttakandi í fjölmörgum
rannsóknar- og samvinnuverkefnum
innan Norðurlandanna og Evrópu.
Um Landsnet
12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R