Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 71
Rannsóknirnar
sýna einnig að
margir gátu dregið úr
notkun bólgueyðandi
lyfja og jafnvel hætt
notkun þeirra með því
að nota jurtalyfið.
Sýnt hefur verið fram á að kalt veðurfar hefur marktæk áhrif á líf fólks með liðverki
og því margir sem leita lausna með
inntöku hefðbundinna verkja-
lyfja. En hvað er það sem gerir
veturinn svona erfiðan tíma fyrir
þá sem þjást af liðverkjum og hvað
er til ráða? Daði Freyr Ingólfsson,
lyfjafræðingur fer yfir nokkur
atriði sem geta haft áhrif á liðverki
að vetri til.
Haltu á þér hita
Fólk finnur almennt fyrir meiri
verkjum og stirðleika í liðum í
köldu umhverfi. Lágt hitastig í
umhverfi eykur liðverki, en aðeins
5°C munur í umhverfishita getur
aukið bólgur umtalsvert. Því er
nauðsynlegt að klæða sig vel og
hafa hlýtt inni hjá sér. Heit sturta
eða bað, dregur líka úr áhrifum
liðverkja.
Létt hreyfing getur dregið úr
verkjum og stífleika í liðum
Þegar kalt er úti eru eðlileg við-
brögð að halda kyrru fyrir og
hreyfa sig sem minnst. Hins vegar
leiðir skortur á hreyfingu til þess
að liðir stífna og verkir aukast.
Létt hreyfing, eins og ganga eða
sund, getur komið í veg fyrir stíf-
leika og því er mælt með reglulegri
hreyfingu fyrir þá sem þjást af lið-
verkjum. Hins vegar er ekki mælt
með erfiðum æfingum í kulda og
því gott að láta aðra sjá um snjó-
moksturinn!
D-vítamín
Vetri fylgir minni dagsbirta og
sól, sem veldur minni framleiðslu
D-vítamíns. Skortur á D-vítamíni
eykur hættu á að fólk fái aukna
liðverki. Mælt er því með því að
taka ráðlagðan skammt af D-víta-
míni.
Lyf við liðverkjum
Þegar liðverkir eru farnir að hamla
daglegu lífi getur þurft að grípa til
lyfja. Það er mikilvægt að minnka
bólgur í liðum, því það getur
dregið úr vöðvastífni og stirð-
leika. Fólk á þá auðveldara með
að hreyfa sig og finnur ekki eins
mikið til.
Harpatinum hefur reynst vel
gegn vægum liðverkjum
Jurtalyfið Harpatinum frá íslenska
lyfjafyrirtækinu Flor ealis hefur
reynst mörgum vel til þess að
draga úr vægum lið- og gigtar-
verkjum. Harpatinum inniheldur
útdrátt úr djöflaklóarrót (Harpa-
gophytum procumbens) sem er vel
þekkt lækningajurt. Sambærileg
jurtalyf hafa verið notuð lengi og
er djöflakló eitt mest selda jurtalyf
í Evrópu. Fjölmargar klínískar
rannsóknir á þúsundum ein-
staklinga liggja að baki verkun
djöfla klóar og sýna að rótin getur
stuðlað að minni gigtar- og lið-
verkjum. Rannsóknirnar sýna
einnig að margir gátu dregið úr
notkun bólgueyðandi lyfja og jafn-
vel hætt notkun þeirra með því að
nota jurtalyfið. Harpatinum þolist
auk þess almennt vel og hefur færri
og vægari aukaverkanir saman-
borið við bólgueyðandi gigtarlyf.
Aðeins eru fjögur jurtalyf með
viðurkennda skráningu á Íslandi.
Harpatinum er viðurkennt jurta-
lyf og framleitt undir ströngum
gæðakröfum lyfjaframleiðslu sem
tryggir að neytandinn fær alltaf
réttan skammt sem er mikilvægt
fyrir bæði verkun og öryggi.
Gagnlegar upplýsingar
Harpatinum fæst án lyfseðils
í apótekum. Notkun: 2 hylki
tvisvar á dag. Lyfið er ekki ráðlagt
börnum undir 18 ára, þunguðum
konum eða konum með barn á
brjósti. Ekki skal nota lyfið ef ein-
staklingur er með ofnæmi fyrir
jarðhnetum eða soja, sár í maga
eða þörmum. Lesið vandlega upp-
lýsingar á umbúðum og í fylgiseðli
fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu
og aukaverkanir. Sjá nánari upp-
lýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.
Liðverkir að vetri og
náttúrlegar lausnir
Nú þegar kalt er í veðri og sólar nýtur lítið við finna margir
fyrir auknum liðverkjum, en hvers vegna?
Daði Freyr Ingólfsson, lyfjafræðing-
ur, bendir á ráð sem virka á liðverki.
Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða sár í maga eða þörmum er þekkt. Ekki ráðlagt ungmennum undir 18 ára aldri, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið á Íslandi
til að draga úr gigtarverkjum
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0