Fréttablaðið - 25.01.2020, Side 78
Okkar ástkæri,
Guðmundur Örn
Guðbjartsson
lést á heimili sínu í Los Cristianos,
Tenerife, þriðjudaginn 21. janúar.
Ingifríður Ragna Skúladóttir
Guðbjartur Vilhelmsson
Ásdís Erna Guðmundsdóttir
Grétar Örn Guðmundsson
Patrik Birnir Guðmundsson
Alexía Ýr Magnúsdóttir
Guðmundur Dór Guðmundsson
Hrafnkell Skúli Guðmundsson
Vilhelm Guðbjartsson
Eydís Erna Guðbjartsdóttir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Rut Árnadóttir
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður Miðleiti 3,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 18. janúar.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
31. janúar klukkan 13.00.
Þorsteinn Unnsteinsson
Árni S. Unnsteinsson Anna Guðmundsdóttir
Sigurlaug Katrín
Unnsteinsdóttir Þorsteinn J.J. Brynjólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
Áslaug Sæunn
Sæmundsdóttir
lést 17. janúar á Landspítalanum
Fossvogi. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 30. janúar kl. 13.00.
Guðmundur Svavar Valgarðsson
Íris Huld Guðmundsdóttir Gestur Sigurðsson
Margrét Sæunn Frímannsdóttir Jón Gunnar Ottósson
Helga Anna Hannesdóttir Sævar Erlendsson
Inga Hanna Hannesdóttir Ómar Jóhannesson
Hafdís Hannesdóttir
Hjörtur Sæmundsson Sigrún Gunnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Sigfúsdóttir
áður til heimilis í Árskógum 6,
Reykjavík,
lést þann 18. janúar á Hrafnistu
Laugarási. Útför hennar fer fram frá
Seljakirkju fimmtudaginn 30. janúar kl. 15. Blóm og kransar
eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á Félag langveikra barna.
Greta Viðars Jónsdóttir Guðjón Jónsson
Guðrún Rögn Jónsdóttir
Sólbjörg Alda Jónsdóttir
Sigfús Kristinn Jónsson Ragnhildur Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Þorbjörg Ó. Morthens
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
þriðjudaginn 28. janúar. kl. 15.00.
Þórey Morthens Jónas Þór Steinarsson
Ólafur Morthens Unnur Hauksdóttir
Björn Morthens Katrin Franke
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýhug, samúð og
vinarhug vegna andláts ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Sævars Brynjólfssonar
skipstjóra,
Pósthússtræti 3, Keflavík.
Einnig þökkum við öllum þeim sem af alúð og
fagmennsku studdu hann í veikindum hans.
Ingibjörg Hafliðadóttir
Bryndís Sævarsdóttir Einar Þ. Magnússon
Hafliði Sævarsson Jenný Lovísa Þorsteinsdóttir
Brynjólfur Ægir Sævarsson Áslaug Ármannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Júlía Gunnarsdóttir
lést 12. janúar á hjúkrunarheimilinu
Skjóli. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Magnús Matthíasson Ragna Jóna Sigurjónsdóttir
Birgitta Lára Matthíasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Bjarneyjar Sigurðardóttur
frá Seyðisfirði,
Hæðargarði 29, Reykjavík.
Rannveig Jónína Ásbjörnsdóttir Stefán Carlsson
Björn Eyberg Ásbjörnsson Valgerður Sveinsdóttir
Fanney Björk Ásbjörnsdóttir Tómas Jóhannesson
Ester Ásbjörnsdóttir Einar Egilsson
Þrátt fyrir erfiða lífsreynslu í síðustu viku, þegar snjóflóð lenti á húsi hennar á Flateyri og elsta barnið af þremur lá undir þungu fargi þess í fjörutíu mínútur, er Anna
Sigríður Sigurðardóttir kennslustjóri
hughraust og yfirveguð. „Ég hef það bara
gott. Er á fullu að fara yfir eigur mínar,
sortera og henda og líka svara í símann.
Þegar róast fer ég kannski að finna meira
fyrir áfallinu,“ segir hún þegar hún er
spurð um líðan sína.
Eitthvað af eigum fjölskyldunnar
er nothæft eftir hamfarirnar, að sögn
Önnu Sigríðar. „Margt slapp, til dæmis
föt sem konur hér á Flateyri voru f ljótar
að grípa til að þvo og þurrka. En innan-
stokksmunir eru auðvitað ekki heilir,
engin rúm til dæmis, og það er raki í
öllu.“
Hún kveðst hafa fengið húsaskjól
fyrir sig og börnin þrjú, að minnsta
kosti eitthvað fram í febrúar, og ætla að
halda ótrauð áfram að sinna starfi sínu
sem kennslustjóri við Lýðháskólann.
Hljótt hefur verið um skólann í
fjölmiðlum að undanförnu svo Anna
Sigríður er hreinlega spurð hvort ein-
hverjir nemendur hafi verið á staðnum
þegar snjóf lóðin féllu. „Já, já, skóla-
starfið var í fullum gangi. Það voru
allir á sínum stað og eru enn, enda er
starfið komið aftur á skrið. Það er ekki
uppgjöf í fólki hér.“ Sem dæmi nefnir
hún að Ölmu Sóleyju, dóttur hennar
sem lenti í snjóf lóðinu, hafi boðist að
koma suður í gamla skólann sinn og
ljúka tíunda bekknum þar. „En hún
valdi að vera hér áfram fyrir vestan og
klára grunnskólann með vinum sínum
hér. Svo ætlar hún suður til pabba síns
næsta haust og fara í framhaldsskóla
þar, það var alltaf ákveðið. Þannig er
að minnsta kosti planið núna.“
Anna Sigríður segir nýtt Rauða kross-
teymi komið vestur á Flateyri til að
veita fólki á staðnum sálræna aðstoð
áfram. Það leysi annað sambærilegt
teymi af hólmi sem hafi verið búið að
standa sig vel.
gun@frettabladid.is
Engin uppgjöf er í fólki
Anna Sigríður Sigurðardóttir, kennslustjóri við Lýðháskólann á Flateyri, ætlar að búa
áfram á staðnum þrátt fyrir að snjóflóð hafi farið gegnum heimilið í síðustu viku.
Anna heldur ótrauð áfram sínu starfi í Lýðháskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Merkisatburðir
1924 Fyrstu vetrarólympíuleikar sögunnar eru settir í
Chamonix í Frakklandi.
1958 Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi
1990 Skógrækt ríkisins er fyrsta ríkisstofnunin sem flutt
er út á land. Hún fer til Egilsstaða.
1990 Íslensku bókmenntaverðlaunin eru veitt í fyrsta
sinn. Stefán Hörður Grímsson hlýtur þau.
1992 Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir Þorgeiri Þor-
geirsyni í vil, gegn íslenska ríkinu, hann hafði krafist þess
að vera skrifaður Þorgeirson.
2011 Hæstiréttur Íslands ógildir kosningar til stjórnlaga-
þings á Íslandi 2010 vegna galla á framkvæmd þeirra.
2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT