Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 90

Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 90
ÞARNA ER VERIÐ AÐ FJALLA UM ÞAÐ AÐ FINNA FEGURÐ Í ÞVÍ SEM VIÐ EIGUM Í STAÐ ÞESS AÐ VERA ENDALAUST AÐ BÚA TIL EITTHVAÐ NÝTT. Þögult vor er sýning í aðalsal Hafnarborgar með verk u m e f t i r myndlistarkonurnar Herttu Kiiski, Katrínu Elvarsdóttur og Lilju Birgisdóttur. Sýningarstjóri er Daría Sól Andrews. Vanrækt umhverfi „Þetta er samsýning þriggja lista- kvenna. Ljósmyndasýning þar sem líka er unnið með innsetningar, skúlptúr, vídeóverk og hljóðlist,“ segir Daría. „Sýningin snýst um umhverfismál, loftslagsbreyting- ar, umhverfisvá, loftslagskvíða og ábyrgðina sem við berum á plánet- unni okkar. Listakonurnar fram- kalla hlýjar og ljúfar tilfinningar gagnvart náttúrunni og umhverfi okkar. Þetta er ekki sýning sem einkennist af reiði heldur af ást á umhverfi sem er vanrækt og á barmi glötunar. Þarna er verið að fjalla um það að finna fegurð í því sem við eigum í stað þess að vera endalaust að búa til eitthvað nýtt sem síðan þarf að henda. Hug- myndin um að minnka sóun og sorpframleiðslu endurspeglast til dæmis í því hvernig verkin eru framleidd og sömuleiðis í sýning- unni sjálfri.“ Daría nefnir dæmi um þetta. „Á þessari sýningu er ljósmynda- sería sem Lilja vann í samstarfi við Þjóðminjasafnið og Ljósmynda- safn Reykjavíkur. Hún vann með ljósmyndir úr safneign þessara staða og bjó til nýtt verk úr þeim. Katrín og Hertta vinna báðar með gamlar ljósmyndafilmur sínar sem þær hafa aldrei sýnt áður og nota gamlan við í rammana. Hertta er finnsk og reyndi að skapa verk sín sem mest hún gat á Íslandi til að minnka kolefnissporið. Lista- konurnar eru samt ekki að þykjast vera fullkomnar þegar kemur að umhverfisvernd. Þær eru að opna samtal um það hversu erfitt og oft yfirþyrmandi það er að leitast við að vera hundrað prósent umhverf- isvænn.“ Góð samvinna Listakonurnar hafa unnið saman áður. „Nokkur verk á þessari sýn- ingu hafa þær unnið saman, þann- ig að verkin eru ekki endilega eftir einn listamann,“ segir Daría. Dæmi um þetta er stórt og skemmtilegt skúlptúrverk eftir Herttu, minning um hval sem gert er úr endurunni efni. Áhorfandinn getur gengið inn í skúlptúrinn og hlustað þar á hljóð- list eftir Lilju. Sunnudaginn 26. janúar klukkan 14.00 verða listakonurnar Hertta, Katrín og Lilja með listamannaspjall ásamt sýningarstjóranum Daríu Sól. Þess má að lokum geta að aðstand- endur sýningarinnar gerðu samning við Skógræktarfélagið og fyrir hvern þann gest sem mætti á sýningaropn- um verður tré gróðursett. Hlýjar tilfinningar gagnvart náttúrunni Þrjár myndlistarkonur, Hertta Kiiski, Katrín Elvarsdóttir og Lilja Birgisdóttir sýna verk sín í Hafnarborg. Sýningin snýst um umhverfismál og ábyrgð okkar á plánetunni. Sýningarstjóri er Daría Sól Andrews. Sýningin snýst um umhverfismál, segir Daría Sól. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LEIKHÚS Hans klaufi Tjarnarbíó Leikhópurinn Lotta Leikstjórar: Anna Bergljót Thor- arensen og Þórunn Lárusdóttir Höfundar laga og texta: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Gunnar Ben og Snæbjörn Ragnars- son Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir Leikhópurinn Lotta hóf sína árlegu vetrarheimsókn í Tjarnarbíó um síðastliðna helgi. Hópurinn hefur eytt síðastliðnum áratug á þeytingi um landið þvert og endilangt til að færa yngsta leikhúsáhugafólkinu okkar litrík ævintýri. Lotta stekkur nú á svið með útfærslu á ævintýrinu um Hans klaufa, sem fyrst var frumsýnt af leikhópnum árið 2010 en hefur nú verið endur- skrifað að stórum hluta . Skipt á milli sjónarhorna Hans klaufi er í miðju kafi að skrifa sitt eigið ævintýri en óvæntur dauðdagi og dans- leikur orsaka að hann verður aðalpersóna í raunverulegu ævintýri. Eða hvað? Fókus- inn í handritinu er ekki skýr og stöðugt skipt á milli sjónarhorna. Eftir að Ösku- buska er kynnt til sögunnar er miklu eðlilegra að kalla hana aðalpersónu fremur en Hans klaufa. Ekki var nógu gott sviðssamband á milli leikhópsins og leikstjóranna, Önnu Bergljótar Thorarensen og Þórunnar Lárusdóttur. Framsetn- ingin var ekki nægilega f læðandi en þó voru söngatriðin yfirleitt vel heppnuð og enn og aftur má hrósa hópnum fyrir metnaðinn í laga- skrifum. Lotta hefur ekki hikað við að draga gamaldags ævintýri inn í nútímann, sem er vel. Sömuleiðis sáldra þau fullorðinsbröndurum djarf lega yfir herlegheitin sem er yfirleitt þakklátt og ágætlega unnið. Endurvinnsluherferðin Flokk it vakti mikla kátínu sem og bráð- fyndið titlatal tveggja persóna. En stundum var of mikið af því góða. Eineltistilburðir vondu systranna í garð Öskubusku voru f u r ð u l e g a h a r k a l e g i r miðað við efni og áhorf- endahóp sýningarinnar. Einnig mætti endurskoða s t að a l í my nd i r n a r u m grunnhyggnu systurnar í hlutverkum óþokkanna og þörf Öskubusku til að ját- ast prinsinum áður en hún getur bjargað heiminum. Gallað handrit Í gegnum tíðina hefur Sig- steinn spilað lykilhlutverk í sýningum Lottu en finnur aldrei rétta taktinn í titil- hlutverkinu. Hnyttnar línur hurfu í æðibunuganginum og hann var yfirleitt utanveltu í sýningunni, ekki ólíkt Hans klaufa í sögunni. Orri Huginn Ágústsson gerði sér lítið fyrir og stal senunni sem montni prinsinn og vonda syst- irin, fullur af orku og lúmskum áherslum. Stefán Benedikt Vil- helmsson situr uppi með óáhuga- verðasta hlutverkið sem hinn hreini og beini krónprins sem vill að allir séu jafnir, alls ekki slæm hugmynd en persónutöfrana vantaði. Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir reyndi að halda í við Orra Hugin í hlutverkum tveggja vondra systra en yfirdrifna persónutúlkunin hitti ekki alltaf í mark. Andrea Ösp Karlsdóttir lék hina hjartahreinu Öskubusku af skynsemi og kærleik, þannig mynd- ast falleg tenging á milli hennar og áhorfenda. Öll púsluspilin eru til staðar en handritið er gallað, framvindan hökti allt of oft og töfrarnir voru af skorum skammti. Meira að segja leikmyndin stenst ekki fyllilega kröfur, oft tekst hópnum nefnilega að búa til ævintýraheima úr örlitlu. Ungir leikhúsgestir eiga án efa eftir að hrífast með og þeir eldri brosa í kampinn en lítið situr eftir. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Lítið um listræna lipurð, Lotta getur betur. Öll púslin eru til staðar 2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.