Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 201928 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Heilsuvika Snæfellsbæjar verð- ur haldin í fjórða skipti dagana 8. til 15. mars næstkomandi. Það er íþrótta- og æskulýðsnefnd Snæfells- bæjar sem á veg og vanda að dagskrá heilsuvikunnar. Fjölmargir viðburð- ir eru í boði, allt frá líkamsræktar- tíma til fyrirlestra og námskeiða. Má til að mynda nefna Buttlift og Cor&toen, samflot í sundlauginni í Ólafsvík, sundnámsekið í boði HSH fyrir börn og fullorðna, opinn blaktíma fyrir ungar dömur, MMA kennslu frá Mjölni, danskennslu, opinn bocciatíma, knattspyrnumót grunnskólabarna og opið hús í reið- höllinni. Útistundir flytja fyrirlest- ur um aukna útiveru fjölskyldunnar, Pálmar Ragnarsson mætir með fyr- irlestur sinn um jákvæð samskipti og Sölvi Tryggvason ræðir um leiðir til að bæta andlega og líkamlega heilsu. „Óhætt er að segja að heilsuvikan hafi hitt í mark meðal íbúa Snæfells- bæjar og vakið athygli langt út fyr- ir bæjarmörkin. Hefur heilsuvikan fest sig í sessi sem einn af hápunkt- um ársins hjá mörgum íbúum, enda heilsan eitthvað sem öllum er ofar- lega í huga,“ segir í frétt á vef Snæ- fellsbæjar. Áhugasömum íbúum er bent á að aðgangur að öllum viðburðum heilsuvikunnar er ókeypis, nema annað sé tekið fram. Ítarlega dag- skrá heilsuvikunnar má sjá í auglýs- ingu í Skessuhorni vikunnar. kgk Fjórða heilsuvikan framundan í Snæfellsbæ Frá samfloti í heilsuviku Snæfellsbæjar fyrir tveimur árum síðan. Leikurinn verður endurtekinn að þessu sinni. Ljósm. úr safni/ þa. Eitt hinna mikilvægustu samfélags- verkefna er heilbrigðisþjónusta en hún hefur þróast á ýmsa vegu á Ís- landi á undanförnum áratugum. Einstaka þættir hennar hafa sprott- ið fram fyrir tilstuðlan félagasam- taka án hagnaðarsjónarmiða og þar má nefna sjúkraflutninga í landinu. Félagar í Rauða krossinum hófu sjúkraflutninga í sjálfboðaliðavinnu fyrir nærfellt einni öld og hafa staðið vörð um þennan þátt æ síð- an. Eftir því sem næst verður kom- ist, þá hefur verið staðið vel að allri þessari þjónustu, bæði hvað varð- ar faglega og kostnaðarlega þætti. Snurða hefur nú hlaupið á þráðinn. Sjúkraflutningar eru einn af þeim mikilvægu hlekkjum í heilbrigðis- þjónustunni sem landsmenn reiða sig á, bæði á þéttbýlum svæðum, en ekki síst á landsbyggðinni. Stop- ul læknamönnun víða undirstrikar mikilvægi þessa enn frekar. Áhafn- ir sjúkrabíla eru vel þjálfaðir heil- brigðisstarfsmenn og takast iðulega á við krefjandi verkefni sem skipta sköpum enda styðst þessi þjón- usta við ákvæði í lögum um heil- brigðisþjónustu og reglugerð nr. 262/2011. Á dögunum var frá því greint í fjölmiðlum að enn væri óleyst deila um þessa þjónustu á milli Rauða krossins og ráðuneytis og að brýn endurnýjun bifreiða og búnaðar biði enn um sinn. Engir samning- ar væru lengur í gildi á milli þess- ara aðila, enginn áhugi á viðræðum og þannig hefði það verið frá árs- byrjun 2016. Nú væri svo komið að Rauði krossinn, úr því sem komið væri, vildi losa sig út úr verkefninu og leita eftir uppgjöri eftir meira en 90 ára samfellda samvinnu. Eftir því sem fram hefur komið stendur deilan m.a. um eignarhald- ið á sjúkrabílum, en vegna ástands- ins hafa engir nýir bílar verið keypt- ir frá árinu 2015. Ráðherra hafði þó forgöngu um útboð á 25 nýjum bíl- um um mitt síðasta ár en opnun til- boða var frestað í þriðja sinn nú fyr- ir skömmu. Það vekur umhugsun að ekkert fé er á fjárlögum til kaupa á nýjum sjúkrabílum. Ég hef ítrekað leitað eftir svörum ráðherra á vettvangi þingsins. Í ljós hefur komið að engar áhættugrein- ingar hafa farið fram sem fylgja munu yfirfærslu þjónustunnar til annarra aðila. Engin áætlun ligg- ur heldur fyrir um kostnaðaráhrif breytinganna, þ.e. hvort fjárhags- leg hagkvæmni sé tryggð. Þegar svo veigamikil breyting er gerð á þjónustunni sem varað hefur með ágætum í nærri 100 ár hlýtur að liggja að baki eitthvert ósætti, annaðhvort með framkvæmd þjón- ustunnar eða kostnað. Hvort er það? Hversu mikið sparast með því að hafna samningum við Rauða krossinn og fela öðrum aðila verk- efnið? Ráðherra verður að svara því skýrt og afdráttarlaust hver hin raunverulega staða er, hvað þetta brambolt kostar og hvernig hún sjái fyrir sér trygga lausn málsins til framtíðar. Guðjón S. Brjánsson Höf. er alþingismaður Samfylking- arinnar í NV kjördæmi. Öryggisþjónusta í uppnámi Pennagrein Nýjar og breyttar golfreglur tóku gildi um áramótin síðustu. Breyt- ingarnar eru töluvert margar, eða samtals 45 talsins og miða að því að nútímavæða reglur leiksins. Golf- klúbburinn Oddur í Garðabæ hef- ur tekið saman þær tuttugu reglu- breytingar sem helst hafa áhrif á leik kylfinga. Við þá samantekt er stuðst hér. Tuttugu helstu breyt- ingarnar eru eftirfarandi: Leitartími er styttur úr fimm mínútum og niður í þrjár. Ef bolti hreyfist við leit skal hann lagður aftur á fyrri stað, vítalaust. Ef bolti er sokkinn er vítalaus lausn utan brauta. Bolti er látinn falla úr hné- hæð í stað axlarhæðar áður og við mælingu þegar bolti er látinn falla skal notuð lengsta kylfan, (önnur en pútter). Ekki er leyfilegt að taka sér stöðu á rangri flöt en lausn er vítalaus. Vítalaust er ef leikmaður slær bolta í sjálfan sig eða útbún- að sinn og ef bolti er tvísleginn skal það talið sem eitt högg, víta- laust. Tilfallandi snerting á sandi í glompu er leyfð, fjarlægja má laus- ung hvar sem er og lagfæra má svo til allar skemmdir á flötum. Taka má lausn úr glompu gegn tveimur vítahöggum. Vatnstorfærur kallast vítasvæði og leyfilegt er að snerta vatn eða jörð innan vítasvæðis. Ef bolti hreyfist á flöt eftir að hafa verið merktur, lyft og lagður niður aftur skal hann lagður aftur á fyrri stað, vítalaust. Ef bolti er hreyfð- ur fyrir slysni á flötinni skal hann sömuleiðis lagður aftur á fyrri stað, vítalaust. Ekki er heimilt að leggja kylfu niður til aðstoðar við miðun og kylfuberi má sömuleiðis ekki aðstoða við miðun. Leyfilegt er að hafa flaggstöng í holu þegar púttað er og ef bolti skorðast við flaggstöng telst hann í holunni. Ef kylfingar og aðrir áhuga- samir vilja kynna sér breytingarn- ar á golfreglunum nánar er vakin athygli á því að þær er að finna ásamt skýringum á vef Golfsam- bands Íslands. kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk. Töluverðar breytingar á golfreglum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.