Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 15 ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR NET LAGERSALA SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS Borgarsókn Áður auglýstur aðalsafnaðarfundur Borgarsóknar verður haldinn að Borg sunnudaginn 10. mars að lokinni messu sem verður kl. 14. Meðal annars verða ræddar framkvæmdir í kirkjugarði. Sóknarnefnd. SK ES SU H O R N 2 01 9 FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Búðardalur 2019 Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf. Vesturbraut 20 Fimmtudagur 14. mars Föstudagur 15. mars Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE SS U H O R N 2 01 9 Þekking Gæði Þjónusta Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388 Ómar Bjarki Hauksson er mat- ráður í Brákarhlíð í Borgarnesi. Hann var býsna brattur síðast- liðinn föstudagsmorgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit við í eldhúsinu hjá honum. Um síð- ustu áramót voru fimm ár frá því Ómar tók til starfa sem matráð- ur í Brákarhlíð en áður hafði hann lengst af unnið við kjötiðn. Hann er kjötiðnaðarmeistari að mennt og starfaði við þá iðn í Borgar- nesi þar til starfsemi kjötvinnsl- unnar var lögð niður. „Þá fór ég til Reykjavíkur og vann í kjötvinnslu þar til konan mín hvatti mig til að fara í matsveinanám. Eftir það fékk ég vinnu í eldhúsinu hjá N1 hér í Borgarnesi þar til ég tók við þessu starfi,“ segir Ómar. „Ég er rosalega þakklátur konunni minni að hafa hvatt mig áfram til náms því þannig endaði ég hér og mér líkar þetta starf mjög vel,“ bætir hann við. Tóku upp Timian kerfi Aðspurður segist Ómar vera Borg- nesingur þó hann hafi ekki flutt þangað fyrr en sex ára gamall. „Hér ólst ég upp, gekk í skóla og hef verið nær alla tíð,“ segir Ómar og brosir. Í eldhúsinu í Brákarhlíð er eldaður hádegismatur alla daga fyrir íbúa heimilisins, aldraðra og öryrkja sem búa annars stað- ar, starfsfólk heilsugæslunnar og Brákarhlíðar auk íbúa í eldri borg- ara blokkinni sem er sambyggð við Brákarhlíð. „Við erum að elda fyrir svona 120 manns í hádeg- inu. Hér í Brákarhlíð búa svo um 50 manns sem fá sinn mat upp á sín heimili. Á kvöldin eldum við svo bara fyrir íbúana hér,“ útskýr- ir Ómar. Þá segir hann það einn- ig koma í hans hlut að panta inn allan mat fyrir heimilin í Brákar- hlíð. „Það eru fimm heimili innan Brákarhlíðar og á hverju heimili er eldhús sem ég sé um að kaupa inn fyrir auk þess sem ég kaupi auð- vitað fyrir mötuneytiseldhúsið. Við tókum fyrir stuttu upp svo- kallað Timian kerfi sem auðveld- ar mér þessa vinnu. Í þessu kerfi get ég fengið hugmyndir af mat- seðlum og hvað þurfi að kaupa inn fyrir máltíðirnar á seðlunum. All- ar máltíðirnar eru vel samsettar af næringarfræðingum en íbúar, að- standendur og aðrir geta fylgst með matseðlunum og séð nær- ingargildi á heimasíðunni okkar. Þetta kerfi hefur reynst okkur vel en við erum enn að læra á það og því ekki farin að nýta það alveg til fulls,“ segir Ómar. Lítið um sérfæði Spurður hvernig vinnudagur mat- ráðs sé alla jafnan segist Ómar mæta klukkan hálf átta alla daga og byrja að undirbúa hádegis- mat. „Fyrstu bakkarnir fara út um klukkan ellefu og svo fer maturinn á heimilin hér og starfsmenn borða síðastir, um klukkan hálf eitt. Eft- ir hádegismat fáum við bakkana til baka og þurfum að þrífa og ganga frá áður en við undirbúum kvöld- matinn. En starfsmenn á heimil- unum sjá um frágang eftir kvöld- mat svo við þurfum ekki að vera hér í eldhúsinu að bíða eftir því,“ segir Ómar. Í mötuneytinu eru alla jafnan þrír starfsmenn auk þess sem einu sinni í viku kemur starfsmaður að baka fyrir heimilið. En í Brákarhlíð er lagt upp úr því að hafa kökur og annað bakkelsi heimabakað. „Svo erum við hepp- in að fá hana Helgu Hannesdótt- ur til okkar tvisvar í viku en hún vinnur annars í Öldunni. Hún er alveg frábær starfskraftur og hef- ur kennt okkur ýmislegt. Það er alltaf gaman þegar hún kemur í vinnuna,“ segir Ómar og brosir. Aðspurður segist Ómar hafa ver- ið heppinn með að fáir sem hann eldi fyrir þurfi sérfæði. „Það er bara í einstaka tilfellum sem ég þarf að gera eitthvað sérstaklega en annars erum við heppin með þetta. Það er lítið um að fólk sé með ofnæmi eða borði ekki eitt- hvað ákveðið. En ég held að þetta gæti breyst með tímanum. Það er mín tilfinning að ofnæmi og óþol sé að aukast. Svo er orðið algeng- ara að fólk velji sér sérfæði eins og að vera vegan. En þetta hefur ekki enn náð hingað inn,“ segir Ómar að endingu. arg Kjötiðnaðarmaður sem söðlaði um og fór í matsveinanám Ómar Bjarki Hauksson hefur kokkað í fólkið í Brákarhlíð í fimm ár Ómar Bjarki Hauksson matráður á Brákarhlíð í Borgarnesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.