Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 201920 Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Af því tilefni stemdir stjórn deildar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og nágrenni fyrir því á afmælisárinu að birta greinar eftir hjúkrunar- fræðinga í Skessuhorni. Greinarn- ar eru birtar jafnt og þétt yfir af- mælisárið og í þeim munu lesend- um fá smá innsýn í þau fjölbreyttu störf og áskoranir sem hjúkrunar- fræðingar fást við. Að þessu sinni kynnir sig til leiks Helga Guðrún Jómundsdóttir nemandi í hjúkrun- arfræði við HÍ. Ég heiti Helga Guðrún Jómunds- dóttir og er 21 árs. Ég bý á Heggs- stöðum í Andakílshreppi, foreldrar mínir heita Margrét Friðjónsdótt- ir og Jómundur Geir Hjörleifsson. Ég á eina systur sem heitir Björk og hún á eina þriggja ára dóttur sem heitir Dagný Freyja. Einnig á ég tvær yndislegar ömmur sem heita Guðrún Jómundsdóttir og Björk Halldórsdóttir. Ég stunda nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Ís- lands. Á meðan ég stunda nám bý ég í Reykjavík en ég er svo heima- kær að ég kem heim í sveitina við hvert tækifæri sem gefst. Ég er mikil sveitastelpa og hef áhuga á allri úti- vist, elska að vera með fjölskyldu og vinum, hlusta á tónlist og svo spila ég líka á píanó. Ég var í Grunn- skóla Borgarfjarðar, lauk stúdents- prófi frá Menntaskóla Borgarfjarð- ar árið 2016 og árið 2017 hóf ég nám í Hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Var hrædd við nálar og ábyrgðina Ég var harðákveðin í því að ég ætl- aði aldrei í hjúkrunarfræði því ég var svo hrædd við nálar og ábyrgð- ina sem fylgdi starfinu. En sem betur fer tók ég U-beygju í þeirri hugsun og skráði mig í námið og sé ekki eftir því. Ég valdi það út frá því að mér hefur alla tíð fund- ist gott að vera í nærveru fólks, geta aðstoðað og gefið af mér. Ég hef unnið í nokkur ár á hjúkrunar- heimilinu Brákarhlíð og þar fann ég hvað mér fannst gott að vinna við umönnunarstörf. Ég valdi námið einnig út frá því að það er svo góður grunnur fyrir margt annað, fjölbreytt nám sem býður uppá marga möguleika. Ég kynnt- ist starfinu á Landspítalanum í vet- ur í verknámi og svo vann ég þar aðeins samhliða námi. Þar sá ég hvað starfið er fjölbreytt og áhuga- vert og þar er enginn dagur eins. Að geta gefið af sér í vinnunni er svo góð tilfinning og mér finnst ég vera að sinna mikilvægu starfi. Starfið getur verið mjög krefjandi því aðstæður fólks geta verið mjög erfiðar. Ábyrgð starfsfólks er mik- il og álagið einnig. Starfið er krefj- andi en jafnframt mjög gefandi. Menntun sem býður upp á mikla möguleika Menntunin hefur upp á margt að bjóða fyrir mig. Hjúkrunarfræði er góður grunnur að svo mörgu öðru. Það opnast margar dyr að námi loknu, ég get bætt við mig mast- ersgráðu eða farið í diplómunám í ótal mörgu sem er mjög spenn- andi. Ég hlakka til að finna út hvað heillar mig mest. Menntunin gef- ur mér þá möguleika að geta unn- ið hvar á landi sem er og einnig víða erlendis. Alls staðar er þörf á hjúkrunarfræðingum. Mér finnst þetta mjög flottur titill, að geta kallað sig heilbrigðisstarfsmann. Það segir manni hvað námið og starfið er mikilvægt. Hjúkrunar- fræði er menntun og reynsla sem nýtist vel í samfélaginu. Kostur þess að vera hjúkrunarfræðingur er að sinna mikilvægu starfi og að geta gert góðverk á hverjum degi þegar þú mætir til vinnu. Atvinnu- tækifærin eru ótalmörg, spennandi og auðvelt fyrir hjúkrunarfræðinga að fá vinnu. Lifandi og skemmtilegt nám Að mínu mati er þetta mjög gott nám og sérstaklega er ég ánægð með verklegu kennsluna. Við öðl- umst góða færni í verklegri kennslu sem gerir okkur örugg fyrir verk- nám og að fara út á vinnustað. Við æfum okkur hvert á öðru sem er mjög skemmtilegt. Þetta er lif- andi og skemmtilegt nám því það er blandað af verklegri og bóklegri kennslu. Strax á fyrsta ári förum við í verknám og lærum klínísk at- riði, eins og að sprauta og setja upp æðaleggi. Á fyrri önninni á öðru ári fórum við í verknám á Land- spítalanum. Það var mjög gaman að fá tækifæri til að bæði nýta og framkvæma þá þekkingu og færni sem við höfðum öðlast í verklegri kennslu. Ásamt því að fá að sinna störfum hjúkrunarfræðinga í verk- náminu fengum við líka að fylgjast með aðgerðum og rannsóknum, sem var mikil upplifun. Eignast dýrmæta vini í náminu Nú á vorönninni er námið að mestu leyti bara bóklegt. Við erum í mjög áhugaverðum áföngum eins og skurðlækningafræði, lyfjafræði, sálfræði og næringarfræði. Hefð- bundinn skóladagur hjá mér núna er að mæta í skólann klukkan 8:20 og sitja á fyrirlestrum til kl. 11:30. Þá er skólinn búinn og fer ég oftast niður í lærdómsaðstöðuna í skól- anum og nota tímann til að læra. Nýlega var opnuð lærdómsað- staða fyrir okkur í Eirbergi en þar er einnig eldhússaðstaða svo um- hverfið er bæði mjög huggulegt og heimilislegt og þar er gott að læra. Út frá verklegri kennslu kynn- ist maður samnemendunum sín- um enn betur. Ég hef því eignast fullt af dýrmætum vinum í náminu sem er ómetanlegt. Eftir 10-30 ár sé ég fyrir mér að ég verði búin að mennta mig enn meira og öðlast sérþekkingu á einhverju sviði sem ég heillast af. Margt sem ég hefði getað hugsað mér Ef ég hefði ekki farið í hjúkrun er margt sem ég hefði getað hugs- að mér, t.d. sjúkraþjálfun, sál- fræði, næringarfræði eða að starfa sem námsráðgjafi. Það er svo mik- ið námsframboð og margt sem mér finnst áhugavert. Það er ekki skrýtið að fólki finnist erfitt að finna sér háskólanám þegar það er svona margt spennandi í boði, sem er frábært. Þessi tvö fyrstu ár í náminu hafa verið krefjandi, lærdómsrík og skemmtileg. Félagslífið í skól- anum er mikið og alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi. Ég er ánægð með valið mitt á hjúkrunarfræði og mæli með því námi því það eru ótal margir möguleikar sem fylgja því. Helga Guðrún Jómundsdóttir Var harðákveðin í að læra ekki hjúkrunarfræði Helga Guðrún er hér til hægri ásamt samnemanda sínum Stefaníu Elsu Jónsdóttur. Sirkus Íslands lagði land undir fót um síðustu helgi með nýja sýningu sem þeir nefna Bæjarsirkusinn. Sýnt var í Hjálmakletti í Borgarnesi á laugardaginn og Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík daginn eftir. Að- sókn var góð á báðar sýningar en þó voru mun fleiri gestir á sýningunni í Ólafsvík þar sem um 150 manns á öllum aldri mættu og skemmtu sér konunglega. Sirkus Íslands sýndi mörg skemmtileg atriði og stóðu áhorf- endur á öndinni á tímabili einkum þegar loftfimleikastúlkurnar sýndu atriði sín. Aðstandendur Sirkus Ís- lands voru hæstánægðir með að- sóknina. af Sirkus Íslands á ferð um Vesturland Háskóladagurinn var haldinn í þremur háskólum í Reykjavík á laugardaginn. Talið er að met- fjöldi hafi sótt viðburðina, en há- skóladagurinn er samstarfsverk- efni allra sjö háskólanna á Íslandi. Þar gátu áhugasamir kynnt sér yfir 500 námsleiðir sem í boði eru hér á landi. „Frábær stemning var í öllum þremur skólunum þar sem kynn- ingin fór fram. Greinilegur áhuga er fyrir háskólanámi á Íslandi,“ seg- ir í tilkynningu. Háskóladeginum verður svo fram haldið í þessari viku með heimsóknum á sex framhaldsskóla á landsbyggðinni. Hér á Vesturlandi verður Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi sóttur heim á morgun, fimmtudaginn 7. mars. Þangað eru allir velkomnir í heimsókn. mm Metfjöldi á háskóladeginum Háskóladagurinn í Fjölbrautaskóla Vesturlands 7. mars Svipmynd frá háskóladeginum í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Íbúar í Borgarnesi hafa tekið eft- ir því að búið er að setja upp skilti sem segja að hámarkshraði hafi ver- ið lækkaður um Borgarbraut, aðal- götu bæjarins, frá miðbæ og niður- úr. Nú er einungis leyfilegt að aka á 30 km/klst hraða um götuna í stað 50 km hraða áður. Breytingin hef- ur ekki verið kynnt opinberlega að öðru leyti en því að skilti hafa ver- ið sett á staura. Því ættu íbúar og aðrir vegfarendur að gæta að sér við aksturinn. mm/ Ljósm. þg Lækkaður hámarkshraði á Borgarbraut í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.