Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 13
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Þær Anna Lind Björnsdóttir og Pá-
lína Ósk Hraundal ætla að bjóða upp
á útilífsnámskeið fyrir leikskólakenn-
ara og foreldra á Vesturlandi á næstu
dögum. „Útivera er mikilvæg og með
námskeiðinu viljum við hvetja kenn-
ara til meiri útiveru og útikennslu í
daglegu starfi. Okkar áherslur eru
einnig að hvetja foreldra og börn til
meiri útiveru í daglegu lífi. Útivist er
fyrir alla og ávinningur hennar er svo
mikill. Það þarf ekki mikla fyrirhöfn
né tíma í daglegu lífi til þess að bæta
inn nokkrum útistundum fyrir fjöl-
skylduna. Rannsóknir sýna að auk-
in útivera hefur til dæmis góð áhrif á
andlega heilsu,“ segir Anna í samtali
við Skessuhorn. „Samverustund fjöl-
skyldunnar er líka öðruvísi úti held-
ur en innandyra. Það þarf ekki að fara
langt eða vera lengi í einu til að njóta
góðs af,“ segir Anna.
Námskeiðin byrja á fyrirlestri þar
sem þær Anna og Pálína fjalla um
ávinning af útiveru, hugmyndir og
innblástur að aukinni útiveru. „Svo
förum við út í verklega kennslu þar
sem við kennum leiki sem styrkja
náttúruupplifunina og á sumum nám-
skeiðunum kennum við útieldun yfir
báli.“ Þær Anna og Pálína elda til
dæmis kvöldmatinn utandyra allan
ársins hring með sínum fjölskyldum
og ná þannig oft auka útiveru inn í
hversdagsleikann.
Á morgun og föstudag verða þær
með námskeið fyrir leikskólakenn-
ara í leikskólum á Akranesi. Næstu
daga verða þær með útikennslu fyrir
börn og fyrirlestur í Grundarfirði. Á
laugardaginn verða þær með nám-
skeið fyrir fullorðna á Heilsudögum í
Snæfellsbæ. Síðasta námskeiðið verð-
ur svo fyrir foreldra í Stykkishólmi á
mánudaginn.
arg
Jón Einar Jónsson frá Rannsókna-
setri Háskóla Íslands í Stykkis-
hólmi heimsótti nemendur í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Grundar-
firði síðastliðinn fimmtudagsmorg-
un. Að því er fram kemur í frétt á
vef skólans aðstoðaði Jón Einar
nemendur við krufningu á æðar-
fugli. Nemendur skoðuðu líffær-
in og opnuðu maga og skoðuðu
hvað það er sem æðarfuglinn étur.
Í janúar fengu nemendur einn-
ig fræðslu um spendýr þegar Ró-
bert Arnar Stefánsson og Menja
Von Schmalensee frá Náttúru-
stofu Vesturlands krufðu mink fyr-
ir nemendur og kynntu rannsókn-
ir. „Það er mikilvægt fyrir áfanga
líkt og dýrafræði að nemendur fái
að kynnast starfi vísindamanna af
svæðinu sem stunda rannsóknir á
íslenskum dýrategundum,“ segir í
frétt skólans.
arg
Nemendur FSN
krufðu æðarfugl
Nemendur fengu að prófa að kryfja æðarfugl. Ljósm. af heimasíðu FSN.
Skaginn 3X á Akranesi hefur ráðið
tvo nýja lykilstjórnendur til starfa.
Baldvin Johnsen er nýr fjármála-
stjóri og Alda Hlín Karlsdóttir mun
leiða sölu- og markaðssvið félagsins.
Baldvin er fyrrverandi fjármálastjóri
og síðar framkvæmdastjóri FrigoC-
are í Noregi, dótturfélags Samskipa.
Hann er menntaður viðskiptafræð-
ingur frá Háskólanum í Reykjavík.
Alda Hlín Karlsdóttir mun stýra
sölu- og markaðsmálum félagins í
samvinnu við Ingólf Árnason, fram-
kvæmdastjóra og stofnanda félags-
ins, auk þess að stýra skrifstofu
Skagans 3X í Reykjavík. Áður en
Alda gekk til liðs við Skagann 3X var
hún rekstrarstjóri Icelandic Group.
Hún hefur áralanga reynslu í sölu-
og rekstrarmálum og hefur sinnt
slíkum stöfum fyrir sveitarfélög og
fjármálafyrirtæki. mm
Skaginn 3X styrkir
stjórnendateymi sitt
Baldvin og Alda Hlín.
Útilífsnámskeið á
Vesturlandi næstu daga
Anna Lind Björnsdóttir verður með útilífsnámskeið ásamt Pálínu Ósk Hraundal í landshlutanum næstu daga.
Ljósm. af Facebook síðu Útistunda.