Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 32
Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar: Skipulags- og umhverfissvið Störf flokkstjóra við vinnuskólann, fyrir 20 ára og eldri• Störf við rekstur og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 18 ára og eldri• Byggðasafnið í Görðum Sumarstarf á Byggðasafninu í Görðum• Skóla- og frístundasvið Sumarafleysing, karl og kona, í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum• Sumarafleysing í Guðlaugu á Langasandi• Velferðar- og mannréttindasvið Sumarafleysing í vaktavinnu við að veita stuðning og aðstoð við fatlað fólk • í búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar Sumarstörf hjá Akraneskaupstað Nánari upplýsingar um störfin ásamt umsóknareyðublöðum má finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is/lausstorf SK ES SU H O R N 2 01 9 Gunnlaugur Lárusson, húsasmíða- meistari í Stykkishólmi, festi á dög- unum kaup á nýjum fararskjóta. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að fararskjót- inn verður að teljast óvenjulegur. Um er að ræða yfirbyggða rafskutlu, þá einu í Stykkishólmi og líklega þó víðar væri leitað. Yfirbyggðar raf- skutlur þekkjast víða erlendis en hafa til þessa verið sjaldséðar á Íslandi. Gunnlaugur kveðst þó vita af einni, annarrar tegundar, á Akranesi. Skutl- an gerir Gunnlaugi kleift að komast auðveldlega allra ferða sinna, hvern- ig sem viðrar. „Ég fékk heilablóð- fall fyrir nokkrum árum síðan og get ekki mikið gengið. En ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því að geta far- ið um óhindrað. Eftir að ég veiktist þá var mér sagt að ég gæti fengið raf- skutlu til að komast á milli. Ég þáði það og stóð ekki á því, mér var send skutla heim að dyrum. En mér fannst alltaf vanta húsið á hana svo ég fór að spyrjast fyrir um hvar ég gæti fengið yfirbyggða skutlu,“ segir Gunnlaug- ur í samtali við Skessuhorn. „Til að gera langa sögu stutta leitaði ég á net- inu og fann fyrirtæki í Kína sem mér leist vel á. Barnabarn mitt, Bergþór Smárason, aðstoðaði mig við að kom- ast í samband við fyrirtækið. Mér leist vel á verðið svo ég hafði samband við tollinn og fannst þetta koma ágætlega út. Ég ákvað því að láta slag standa og pantaði mér yfirbyggða skutlu frá Kína. Allt saman gekk þetta eins og í sögu því 51 degi síðar var hún komin alla leið frá Sjanghæ til Reykjavíkur. Lokaspölinn kláruðu bræðurnir hjá BB & sonum sem komu með skutl- una í kassa alla leið inn í bílskúr, við mikla ánægju fjölskyldunnar,“ bætir hann við. „Allir vegir færir“ „Þannig að nú er ég kominn með yf- irbyggða rafskutlu og eru allir vegir færir. Það sem kom mér mest á óvart þegar ég fékk hana er hvað það var í raun og veru kalt á gömlu skutlunni, þessari hefðbundnu. Maður þarf að vera dúðaður til að geta ferðast um á henni. En þessi nýja er með einangr- uðu húsi, miðstöð og teppi á gólfinu þannig að mér er aldrei kalt þegar ég er á ferðinni. Ef mér verður síðan heitt á skutlunni í sumar þá skrúfa ég bara niður rúðurnar,“ segir hann létt- ur í bragði. „Þetta er alveg ómetan- legt. Ef svona tæki á ekki við á Íslandi þá veit ég ekki hvar. Ég er ofboðslega ánægður með þetta,“ segir Gunn- laugur og bætir því við að honum þyki afar gott að ferðast um á skutlunni. „Sætið er gott, það má færa fram og aftur eftir þörfum og stýrið líka. All- ar aðgerðirnar eru í stýrinu og síðan kemur hún með göngustillingu. Þá getur maður stillt hana inn á hraða þess sem gengur með manni. Ef það rignir þá er rúðuþurrka og ef rúð- an er skítug þá set ég rúðupissið á. Ef ég þarf að komast aðeins hraðar á milli þá nær hún allt að 15 km hraða á klukkustund og þegar ég bakka þá pípir skutlan, eins og stóru vélarn- ar. Það er meira að segja hægt að fá þessar skutlur með bakkmyndavél,“ segir hann. Mest finnst honum þó vert um að komast greiðlega ferða sinna hvernig sem viðrar. „Skutlan er lítil og nett og hægt að fara mjög víða á henni. Maður kemst upp á gangstéttir og getur farið svolítið frjáls um allt. Það er mjög þægilegt að fara á henni út í búð. Fyrir aft- an sætið er smá hólf þar sem mað- ur getur stungið innkaupapokan- um á leiðinni heim. Þá benti gamli nágranni minn, hann Emil Þór, á að það væri ekki mikið verk að smíða grind aftan á skutluna. Voru þær til- lögur allar samþykktar af þungavikt- arhópnum á Bensó,“ bætir hann við, léttur í bragði. Kæmist í Grundarfjörð á hleðslunni Gunnlaugur upplýsir að skutlan hafi kostað 521 þúsund krónur komin til landsins, en tekur það fram að hann hafi auðvitað pantað hana milli- liðalaust beint frá Kína. Hann seg- ist einstaklega ánægður með að hafa látið af þessu verða. „Það var eng- inn vandi að panta svona frá Kína. Ég var ekki í samskiptum við annað en heiðarlegt og gott fólk alla leið og allt saman gekk þetta greiðlega fyr- ir sig. Ég var ánægður með verðið og maður þarf bara að standa klár á að borga það sem á að borga,“ seg- ir hann og bætir því við að rekstr- arkostnaðurinn sé ekki mikill þeg- ar skutlan er komin í notkun. „Hún gengur fyrir rafmagni og ég sting henni bara í samband heima þeg- ar ég er ekki að nota hana. Batterí- in duga vel, það er uppgefið að ég geti farið um það bil 45 kílómetra á hleðslunni. Þannig að ég kæmist á skutlunni alla leið í Grundarfjörð, en þá þyrfti ég að komast í samband,“ segir hann. „Ég er hæstánægður með þetta allt saman myndi hiklaust hvetja aðra til að velta þessu fyrir sér. Skutlan gerbreytir lífi manns,“ segir Gunnlaugur Lárusson að endingu. kgk/ Ljósm. sá. Gunnlaugur Lárusson í Stykkishólmi pantaði sér fararskjóta frá Kína „Skutlan gerbreytir lífi manns“ Gunnlaugur í skutlunni góðu. Skutlan er lítil og nett og á henni kemst Gunnlaugur allra sinna ferða.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.