Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 201922 Það var líf og fjör á leiksviðinu í félagsheimilinu Þinghamri í Staf- holtstungum síðastliðinn sunnudag þegar Leikdeild Umf. Stafholts- tungna frumsýndi barna- og fjöl- skylduverkið Rympa á ruslahaugn- um. Verkið er eftir Herdísi Egils- dóttur, kennara og leikritaskáld og var það fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu 1980. Leikstjóri er Þröstur Guð- bjartsson sem nokkrum sinnum áður hefur leikstýrt Tungnamönn- um við góðan orðstír. Skemmst er frá því að segja að uppfærsla á verk- inu var afar vönduð og hvert og eitt hlutverk mannað af kostgæfni. Einkar gleðilegt var að sjá svo marga og upprennandi leikara stíga á svið, jafnvel ungmenni á grunn- skólaaldri, sem leystu sín hlutverk með prýði. Rympa á ruslahaugnum fjallar um unga konu sem lent hefur félagslega utan gátta við hið hefð- bundna skilgreinda norm. Býr hún því á haugunum og hennar traust- asti vinur er dúkkan Volti, en einn- ig nokkrar persónur sem þangað leggja leið sína. Verkið er félagsleg ádeila þar sem aðstæður og hlut- skipti ungs fólks og eldri borg- ara koma við sögu. Með burðar- hlutverk, Rympu sjálfa, fer Sigur- laug Kjartansdóttir. Þar er á ferð- inni leikkona sem sýnt hefur áður, en aldrei sem nú, hversu afburða áhugaleikkona hún er. Svipbrigði hennar, leikur, flutningur texta og söngur, allan tímann lifir hún sig inn í þann margbrotna karakter sem hún túlkar. Þetta gaf sýning- unni afar létt og skemmtilegt yfir- bragð og þá er leikur annarra sem koma við sögu einkar góður. Ekk- ert fer á milli mála að handritið var fullæft talsvert fyrir frumsýningu. Meira að segja gáði undirritaður að því undir lok sýningar hvort hvísl- arinn væri nokkuð farinn að hengja haus vegna verkefnaskorts, en svo var reyndar ekki. Í verkinu er jafn- framt tónlistarflutningur og tals- vert sungið, en Hafsteinn Þórisson stýrði tónlistinni og spilaði undir. Herdís Egilsdóttir, höfundur verksins, var viðstödd frumsýn- inguna. Eftir að henni hafði verið færð blóm ávarpaði hún gesti, en einkum leikhópinn sjálfan. Sagðist hún vart eiga orð yfir gleði hversu vel var unnið úr öllum persónum og leikgleðin hefði verið fölskva- laus allan tímann. Hægt er að taka undir orð höfundar og hvetja alla sem vettlingi geta valdið að kíkja á sýningu í Þinghamri. Þessi sýn- ing hentar börnum frá sirka sex ára aldri jafnt sem fullorðnum. Næsta sýning á Rympu verður næstkom- andi fimmtudagskvöld, þá miðdeg- issýning laugardag og kvöldsýn- ing sunnudagskvöld. Miðapantan- ir og nánari upplýsingar eru í síma 824-1988. mm Helgina 15. - 17. mars verður Landsmót barna- og unglingakóra haldið í Grundaskóla á Akranesi. Mót eins og þessi eru haldin ann- að hvert ár á mismunandi stöðum á landinu og nú er komið að Akra- nesi. Það er eldri hópur Skólakórs Grundaskóla sem er gestgjafakór í ár og stjórnandi kórsins, Valgerður Jónsdóttir, heldur utan um skipulag og framkvæmd mótsins fyrir hönd Tónmenntakennarafélags Ísland, KórÍs og Grundaskóla. „Von er á um 250 söngglöðum krökkum frá 5. bekk og upp úr en þau munu vinna saman í söngs- miðjum og halda svo lokatónleika í Grundaskóla sunnudaginn 17. mars kl. 13.30. Flestir eru kórarnir af Suðvesturlandi en nokkrir þeirra koma lengra, að t.a.m. einn frá Ak- ureyri,“ segir Valgerður. „Áhersla er lögð á að tengja mótið við bæj- arlífið þannig að bæjarbúar geta átt von á að rekast á kórana á flakki um bæinn á laugardeginum. Þá koma nokkrir kóranna fram á Dvalar- heimilinu Höfða og í Akraneskirkju auk þess sem lokatónleikarnir eru öllum opnir.“ Valgerður segir að tónlistin sem unnið verður með sé að hluta til eft- ir Skagafólk og leitað var til tónlist- arfólks og kennara á Akranesi með ýmislegt tengt mótinu. Einnig æfa kórarnir nýtt tónverk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur. „Verkið heitir Fögnuður og var samið serstaklega fyrir mótið. Skólakór Grundaskóla fékk á dögunum úthlutað menn- ingarstyrk frá Akraneskaupstað sem gerir kórnum enn frekar kleift að standa vel að mótinu. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta á lokatón- leika kóramótsins sunnudaginn 17. mars kl. 13.30 í sal Grundaskóla,“ segir Valgerður Jónsdóttir. mm Landsmót barna- og unglingakóra verður á Akranesi Eldri hópur Skólakórs Grundaskóla ásamt stjórnandanum. Ljósm. Elís Þór Sigurðsson. „En allt breytist í þessu lífi.“ Svo skrifaði Muggur í sögunni um Dim- malimm. Oft verður manni hugs- að til þessa þegar maður verður í sí- fellu að endurmeta hlutina. Atburð- ir líðandi stundar knýja okkur til að opna augun fyrir alþjóðleika og fjöl- breytni. Sjálflægnin hopar og aðrar þjóðir verða ekki lengur svo fjarlæg- ar. Oft heyrum við af átökum úti í hinum stóra heimi sem leiða af sér hörmungar. Þar ásakar hver annan. Á sama tíma vitum við ekki alltaf hvað af daglegum fréttum er sann- leikur. Kannski ætti að skoða bet- ur það sem ekki var sagt, í því felst líka sögutúlkun sem getur haft áhrif á viðhorf okkar. Um nákvæmlega þetta fjallaði mögnuð sögumennska Bjarna Harð- arsonar á Sögulofti Landnámseturs síðastliðinn laugardag. Enn einu sinni var upplifun að heimsækja Söguloftið og upp í hugann kom þakklæti áheyrandans til frumkvöðl- anna Sigríðar Margrétar og Kjart- ans sem þar ráða ríkjum. Söguefnið í þetta sinn var sjálf Brennu-Njálssaga sem hér stökk síung fram á sjónarsviðið, sögð af þekkingu, spennu og þéttum stíg- anda. Maður sá Skarphéðin glotta við tönn. Hér var orðheppinn og hnyttinn sögumaður á ferð og oft var hlegið. Þó duldist engum djúp- ur undirtónninn og viss gagnrýni á þessa bók sem svo lengi hefur fylgt okkur og svo oft virst ósnertan- leg. Verkið er sígilt og Bjarni vitn- aði óspart til samtímans með því að benda á hliðstæður. Sjálfur á hann rætur á sögusviði bókarinnar en hef- ur líka leitað víðari sýnar á fjarlæg- um slóðum, dvalið í Afríku og sett Njálu þar í nýtt samhengi. Áheyr- endum Söguloftsins var bent á að horfa til nýrra stranda, efast um allt og alla og ekki síst okkur sjálf. Það er hluti af þroskasögu þjóðar. Ég hvet fólk til að fara og hlýða á þessa frá- sögn, sem hrópar til okkar að hugsa, greina og ræða - halda vöku okkar. Njála er öflug og hefur enn sann- að gildi sitt sem orðræðuvaki. Það neistar þegar henni er stungið í sam- band við nútímann. Guðrún Jónsdóttir Rafmögnuð Njála á Söguloftinu Skemmtun og boðskapur í uppfærslu Rympu í Þinghamri Hópurinn að aflokinni sýningu. Herdís Egilsdóttir, Sigurlaug Kjartansdóttir (Rympa) með dóttur sína og Þröstur Guðbjartsson. Tvær af fastagestum á ruslahaugunum í gervi sínu. Áslaug Þorvaldsdóttir og Inger Elísabet Eyjólfsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.