Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 20196 Bifreiðastöðum ábótavant VESTURLAND: Töluvert hefur verið um það undanfarið að íbúar hafi samband við lög- reglu og kvarti yfir því hvernig bílum er lagt. Lögregla minn- ir ökumenn á að þeir verði að gæta þess að leggja löglega, rétt- um megin götunnar og þannig að bifreiðastöður hindri ekki út- sýni á götuna. Þetta er sérstak- lega mikilvægt við gangbraut- ir og kemur verst við börn sem eru á ferðinni. Lögregla minnir enn fremur á að sektir liggja við ólöglegum bifreiðastöðum. -kgk Töluvert um hraðakstur VESTURLAND: Ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Vest- urlandsvegi á föstudag, grun- aður um ölvun við akstur. Lög- regla segir að íbúar í landshlut- anum og vegfarendur séu dug- legir að tilkynna ef þá grunar að einhver aki undir áhrifum áfeng- is eða fíkniefna, eða þyki akst- urslag einkennilegt. Lögregla kannar slíkt og þá kemur í ljós hvort grunurinn reynist á rök- um reistur. Þá var töluvert um of hraðann akstur í umdæminu í vikunni sem leið, en myndavél- arnar sjá að miklu leyti um það. Þá voru nokkrir gripnir við akst- ur án ökuréttinda í vikunni sem leið, en lögregla fylgist náið með slíku háttarlagi við umferðareft- irlitið. -kgk Smeykur ökumaður SNÆFELLSNES: Vegfar- andi hafði samband við lögreglu skömmu eftir miðnætti laugar- daginn 2. mars sl. Hann var þá staddur í röð kyrrstæðra bifreiða á Snæfellsnesvegi við Búlands- höfða. Snjóþekja var á veginum, 14 m/s og ökumaðurinn var óör- uggur í umferðinni og vildi fá að vita hvað olli töfinni. Kom þá í ljós að ökumaður fremsta bílsins var svo smeykur að aka áfram að hann stöðvaði för sína. Hann ók ekki áfram og enginn fór fram úr svo að þarna myndaðist löng röð kyrrstæðra bifreiða á eftir hon- um. Þá barst lögreglu beiðni um aðstoð vegna ferðamanna sem voru fastir í snjó á Laxárdalsheiði kl. 20:00 á laugardagskvöld. Haft var samband við bílaleiguna og málunum bjargað. Engin hætta var á ferðum. -kgk Spreyjað á vinnuskúra VESTURLAND: Tilkynnt var um eignaspjöll í umdæmi Lög- reglunnar á Vesturlandi í vik- unni sem leið. Á fimmtudag var haft samband við lögreglu og látið vita að spreyjað hefði verið á vinnuskúra á Vatnaleið á Snæ- fellsnesi. Hjólför sáust á vett- vangi og því telur lögregla víst að þarna hafi ekki verið nein- ir krakkar á ferðinni, heldur fólk sem er í það minnsta kom- ið á bílprófsaldur. Spreyjararn- ir fundust ekki. Þá var tilkynnt um skemmdir á lóð á Akranesi í vikunni. Greinileg merki mátti sjá um að bifreið hefði verið ekið inn á lóðina og skemmd- um valdið, því djúp hjólför voru á lóðinni. -kgk Velti bíl undir áhrifum VESTURLAND: Umferð- aróhapp varð á Stangar- holtsvegi við Þórdísarbyggð, skammt vestan við Borgar- nes á mánudaginn. Par var þar á ferðinni, bílnum var ekið útaf þar sem hann valt ofan í skurð. Lögregla og sjúkralið voru send á staðinn en enginn slys urðu á fólki. Ökumaðurinn var hins veg- ar grunaður um að hafa ver- ið í annarlegu ástandi. Hann viðurkenndi brot sitt og fólk- inu var ekið heim eftir yfir- heyrslu lögreglu. Minnihátt- ar árekstur varð á Kirkju- braut á Akranesi á miðviku- daginn í síðustu viku. Engin slys urðu á fólki og ökumenn fylltu saman út tjónatilkynn- ingu á staðnum. Þá varð einnig minniháttar árekstur á bílaplaninu á Egilsgötu í Borgarnesi á mánudag. -kgk Naut á vegi NORÐURÁRDALUR: Tilkynnt var um lausa- göngu búfjár á Vesturlands- vegi á miðvikudag í síðustu viku. Hjörð nautgripa hafði sloppið úr girðingu norð- an Bifrastar og álpast út á þjóðveginn. Lögregla minn- ir á að lausaganga stórgripa er óheimil og getur skapað hættu í umferðinni. -kgk Ber að ofan AKRANES: Lögreglu barst tilkynning um ungan mann, beran að ofan, sem hljóp í veg fyrir bifreið á umferð- arljósum á Akranesi nálægt miðnætti eitt kvöldið í vik- unni sem leið. Lögregla at- hugaði málið og fann mann- inn í annarlegu ástandi, liggj- andi á gangstétt en kominn í úlpu. -kgk Hlutastarfandi slökkviliðsmenn á Akranesi, Borgarbyggð og Kjal- arnesi sátu um síðustu helgi nám- skeið á Akranesi og nutu bæði bók- legrar kennslu og verklegrar þjálf- unar. Námskeið þetta er liður í undirbúningi fyrir nýliða til að afla sér menntunar í samræmi við þá þjónustu sem slökkvilið skulu veita samkvæmt reglugerð og mið- ast við stærð viðkomandi sveitar- félags. Námsefni slökkviliðsmanna skiptist í fjóra hluta auk endur- menntunar. Slökkviliðsmenn sem gegna hlutastarfi skulu a.m.k. hafa lokið námskeiði 1 sem haldið var um helgina á Akranesi og er alls 30 stunda nám. Fornám þetta er í umsjón og á ábyrgð viðkomandi slökkviliðs en Brunamálaskólinn skaffar námsgögn og í þessu tilfelli leiðbeinendur einnig. Sigurður Þór Elísson er annar af tveimur æfingastjórum Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og hélt utan um framkvæmd þess. Hann segir námskeiðið hafa ver- ið í senn fróðlegt og skemmtilegt. Ekki síst hafi verið ánægjulegt að samnýta húsnæði og aðstöðu og bjóða nágrönnum úr slökkvilið- unum í Borgarbyggð og Kjalarnesi að slást í hópinn. Eins og nýverið kom fram í Skessuhorni bættust tíu nýir menn í Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar nýverið og sátu þeir námskeiðið. mm Héldu sameiginlegt námskeið fyrir slökkviliðsmenn Þátttakendur og leiðbeinendur í Slökkvistöðinni á Akranesi. Ljósm. mm. Hluti verklegrar kennslu fór fram við slökkvistöðina. Ljósm. sþe. Æfingar voru á og við hafnarsvæðið á Akranesi. Hér er dælan látin ganga. Ljósm. sþe.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.