Skessuhorn


Skessuhorn - 05.06.2019, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 05.06.2019, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 5. júnÍ 2019 25 Hreyfivika í Borgarbyggð í síð- ustu viku var að sögn Sigurðar Guðmundssonar, framkvæmda- stjóra UMSB, mjög vel heppnuð í alla staði. „Það var rosalega gam- an að sjá hversu margir nýttu sér það sem var í boði þessa vikuna,“ segir Sigurður. Boðið var upp á fjölbreytta hreyfingu alla vikuna; göngur, Crossfit, dansfjör og jóga svo dæmi séu tekin. Hápunkt- ur vikunnar að sögn Sigurðar var ferð yfir Skarðsheiði þar sem lagt var af stað hjá melunum við Fiskilæk og endað við Hreppslaug þar sem göngu,- hlaupa- og hjó- lagarpar slökuðu á í lauginni og fengu sér pylsur. „Þetta var rosa- lega skemmtileg ferð, það mættu um 50 manns og allir voru að ég best veit mjög ánægðir,“ segir Sig- urður. arg/ Ljósm. UMSB Slakað á í Hreppslaug eftir góða ferð yfir Skarðsheiði. Vel heppnuð hreyfivika í Borgarbyggð Frá ferð yfir Skarðsheiði. Mánudaginn 20.maí sl var haldinn fundur í Þorpinu, miðstöð frísitunda og forvarna á Akranesi, þar sem Mar- grét Lilja Guðmundsdóttir frá Rann- sóknum og greiningu fór yfir niður- stöður úr könnuninni Ungt fólk 2019 - um vímuefnaneyslu ungs fólks. Rétt er að halda því til haga að flest eru börnin okkar í góðum málum, stunda heilbrigðan lífstíl og eru þátttakend- ur í skipulögðu æskulýðs- og íþrótta- starfi. En því miður eru blikur á lofti. Vísbendingar eru um að neysla sé að aukast. Það á við hvort sem við skoð- um neyslu á áfengi, reyk-,munn- og neftóbaki sem og kannabis. Það er hætt við því að þegar vel gengur að við tökum stöðunni sem sjálfsagðri. Þess vegna er mikilvægt að hafa þess- ar rannsóknir sem vekja okkur upp og minna okkur á að það má aldrei slaka á. Áhrifaríkar forvarnir byggja á niður- stöðum rannsókna og sýna rétta mynd af stöðu ákveðinnar hegðunar. Forvarnir og forvarna- fræðsla Þegar neysla hjá ungu fólki fer upp á við eru margir fljótir að hlaupa til og trúa að skyndilausnir séu málið. „Hvað varð um alla forvarnarfyrilestrana eins og voru þegar eldri sonur minn var í skóla,“ segja foreldrar gjarnan. Við sem störfum að forvörnum reynum að gera það með faglegum hætti. Forvarnir í sinni víðustu mynd er það sem við viljum sjá. Embætti landlæknis hefur gefið út staðreynd- arblað um það sem virkar í forvörn- um. Þar kemur m.a fram að „heilsu- eflingar- og forvarnarstarf skal ávallt byggt á gagnreyndum aðferðum, sem búið er að sýna fram á með vísinda- legum rannsóknum að bera árangur“. Umfram allt er forsenda árangursríkra forvarna sýnileg stefna hvort sem er bæjarfélags eða skóla, uppbyggilegt umhverfi og fagmenntað starfsfólk. Þegar talað er um gagnvirkar for- varnir er megináherslan lögð á um- ræður þar sem börn og ungmenni eru virkir þátttakendur. Það geta verið opnar umræður um ákvarðanatöku og þjálfun í samskiptahæfni sem styrkir félagslega hæfni barna og ungmenna, sjálfsmynd þeirra og getu til að forðast áhættuhegðun, t.d. að afþakka tóbak og vímuefni þegar þau eru í boði. Árangursríkar forvarnir: Byggja á fræðilegum grunni• Leggja áherslu á fjölbreyttar, • sveigjanlegar og gagnvirkar að- ferðir sem auka færni barna og ungmenna og mæta þörfum þeirra Byggja á fagmennsku og þjálfum • þeirra sem sinna kennslunni Byggja upp seiglu barna og ung-• menna og tengsl þeirra við skóla- samfélagið Eru aldursmiðaðar• Leggja áherslu á félags og tilfinn-• ingafærni Varast ber að valda skaða með hræðsluáróðri eða einhliða fræðslu sem hefur lítil sem engin áhrif á fjöldann en hugsanlega neikvæð áhrif á hegðun ákveðinna aðila. Þó hræðslu- áróður sé stundum eftirminnilegur og börn og ungmenni áhugasöm um slíka fræðslu sýna rannsóknir að hún hefur ekki tilætluð áhrif. Slík fræðsla getur haft neikvæð áhrif á hegðun og hugs- anlega ýtt undir áhættuhegðun hjá ákveðnum aðilum. Í þessu tilliti þarf að hafa í huga að valda ekki skaða þó ásetningurinn sé góður. Fræðsluerindi sem einungis leggja áherslu á aukna þekkingu geta verið nauðsynleg en eru sjaldan nægjanleg til að hafa áhrif á hegðun. Hlutverk foreldra Foreldrar eru ein mikilvægasta fyrir- mynd barna sinna. Þeir eru líka bestu forvarnarfulltrúarnir. Mikilvægt er að foreldrar tali við börn sín og ung- menni um tóbak, áfengi og önnur vímuefni og taki skýra afstöðu gegn því að þau prófi eða noti slík efni. For- eldrar geta stuðst við eftirfarandi ráð til að sporna gegn því að börn og ung- menni noti tóbak, áfengi eða önnur vímuefni: Byggja upp traust og náið sam-• band. Setja mörk og halda fast við þau. • Fylgjast með hvað þau eru að • gera og hvar þau eru. Kaupa hvorki áfengi né tóbak • fyrir börn undir lögaldri. Leyfa ekki eftirlitslaus partí.• Tala opinskátt og heiðarlega • um áhættuna af notkun tóbaks, áfengis og annarra vímuefna Íslenska módelið og þróun vímuefnaneyslu á Íslandi Árangur Íslendinga í forvörnum hef- ur vakið athygli víða um heim og hafa erlendir fjölmiðlar fjallað um þennan árangur, þ.e. hvernig íslendingum hef- ur tekist að draga úr áfengis og vímu- efnaneyslu ungmenna hér á landi. Á tíunda áratug síðustu aldar var áfeng- isneysla ungmenna vaxandi vandamál. Ljóst var að þær aðferðir, sem eink- um fólust í því að fræða börn og ung- menni um skaðsemi vímuefna, virk- uðu ekki, í það minnsta ekki einar og sér. Meira þurfti til. Það var þá sem mismunandi aðilar tóku höndum saman. Rannsakendur, stjórnmálamenn, fólk sem starfaði með börnum og ungmennum og foreldrar, lögðust á eitt og unnu saman í því að leita lausna og finna hvað virkaði í for- vörnum. Þá varð til Íslenska módelið s.k. Það snýst um samspil rannsókna og stefnumótunar á sviði áfengis- og vímu- efnamála þegar kemur að ungu fólki og forvörnum. Í því felst einnig að litið er á tómstundastarf sem lykilþátt í öllu for- varnastarfi. Menntaðir þjálfarar frá því íþróttaþátttaka barna hefst, mikið fram- boð skipulagðs íþrótta- og tómstunda- starfs frá unga aldri og stuðningur hins opinbera, til dæmis í formi frístunda- styrks sveitarfélaga, skipti sköpum. Við tölum oft um áhættu- og verndandi þætti í lífi barnanna okkar. Það er mik- ilvægt að við sem eigum börn og ung- menni eða störfum með þeim gerum okkur grein fyrir því hvaða þættir það eru sem hafa verndandi vs. áhættuáhrif á líf þeirra. Áhætturþættir geta verið: jafningjahópurinn (þ.e að eiga vini • sem nota t.d tóbak, áfengi og önn- ur vímuefni) Óskipulagðar athafnir, hópamynd-• anir sem ekki flokkast undir skipu- lagt starf. ,,Hangs“• Foreldralaus partí• Verndandi þættir: Skipulagt íþrótta- og tómstunda-• starf s.s þátttaka í íþróttastarfi, félagsmiðstöðvastarfi, tónlistar- skóla, skátastarfi o.þ.h. Foreldar og aðrir forráðamenn • sem veita stuðning, umhyggju og hlýju Eftirlit og áhugi. Að vita hvar og • með hverjum ungmennið er á kvöldin og um helgar Tíma varið með foreldrum og fjöl-• skyldu. Því meiri tími, því betra Forvarnir á Akranesi Hér á Akranesi er öflugt íþrótta- og tómstundastarf. Öll börn ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér er einnig öflug samvinna á milli allra þeirra sem koma að starfi með börn- um og ungmennum. Innan grunnskól- anna er öflug forvarnarfræðsla allt árið um kring. Þar eru t.d heilsuþemavikur, fyrirlestar, sjálfstyrkingahópar og ým- islegt fleira. Umsjónarkennarar gegna stóru hlutverki í forvarnarstarfi. Í skól- anum eru tekin fyrir mikilvæg málefni þar sem kennsla er gagnvirk, sveigjan- leg, umhyggjusöm og án innrætingar þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til þess að tjá sig. Þar eru börnin þjálf- uð í félagsfærni, ákvarðanatöku, mark- miðasetningu, að standast félagsþrýst- ing og að setja sig í spor annarra. Skól- arnir hafa einnig fengið utanaðkom- and fræðslu inn en ávallt með þeim for- merkjum að sú fræðsla standist þau við- mið sem gerð eru. Má þar t.d. nefna vit- undarvakningu Minningarsjóðs Einars Darra, Ég á bara eitt líf. Brúin forvarnarhópur hefur undan- farin ár staðið fyrir forvarnarfræðslu fyrir foreldra með fyrirlestrum og fræðslukvöldum, ein og sér eða í sam- starfi við aðra. Má þar nefna fyrirlestur um tölvur og tölvufíkn, fræðsluerindi um misnotkun kannabis, lyfseðilskyldra lyfja (læknadóps), lyfjamenningu, við- horfum og ástæðum misnotkunar slíkra lyfja svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur Brú- Pennagrein Hvað svo kæru foreldrar? Hvað virkar í forvörnum og hlutverk foreldra in verið með erindi frá Hugarfrelsi um kvíða barna og fræðslu frá Rannsóknum og greiningu svo eitthvað sé nefnt. Sumarið er tíminn! Sumarið er einstaklega viðkvæmur tími í lífi ungmenna. Þá er enginn skóli og margt skipulagt tómstundastarf er í fríi. Þá er hlutverk foreldra í forvörnum enn mikilvægara en áður. Samanhópurinn sendir foreldrum skýr skilaboð og hefur bent á að samvera foreldra og barna er besta forvörnin. Mikilvægt er að hafa í huga að ást án aga er jafnskaðleg og agi án ástar. Leggjum ekki meiri ábyrgð á börnin okkar en þau eru fær um að axla, leiðbeinum þeim og styðjum, elskum þau óhikað og finnum okkar eigið öryggi í foreldrahlutverk- inu. Höfum hugfast að það fylgir 18 ára ábyrgð með hverju barni! Heiðrún Janusardóttir, Höf. er verkefnisstjóri æskulýðs- og for- varnarmála á Akranesi. Þróun vímuefnaneyslu unglinga í 10. bekk á Íslandi árin 1998 til 2019 Áhættuþættir/Verndandi þættir í lífi barnanna okkar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.